Víðir


Víðir - 19.10.1929, Síða 1

Víðir - 19.10.1929, Síða 1
I. árg. 48. tbl. Vestmannaeyjum, 19. okt. 1929. Svar við ,Greinargerð‘ lolka í spítalamálinu. í „Greinargerð* Kolka læknis í síðasta tbl. Víðis, skýrir hann frá því, að væntanlegur spítala- læknir hjer muni hafa svo að segja alla uppskurðarsjúklinga, eins og hann hafi nú. Vill hann með þessu gefa hjeraðsbúum í skyn, að hann einn sje nú þeg- ar skurðlæknir spítaians. Til þess að sýna og útskýra fyrir hjeraðsbúum, þann yfir- gang og undirróður, sem hjerer nú á ferð, en að vísu engin ný- lunda, síðan jeg varð hjeraðslækn- ir í hjeraðinu, leyfi jegmjerhjer með, hjeraðsbúum til leiðbein- ingar og fróðleiks, að birta skýrslu úr dagbók bsejarspítalans, sem nær yfir 1 ár, síðasta iniss- eri fyrra árs og fyrra misseri þessa árs. Skýrslan sýnir, hvernig skurð- lækninga- og-lyflækningasjúkling- ar hafa skifst á okkur læknana þennan tíma, hve marga sjúk- linga hverrar tegundar fyrir sig, hver um sig hefur haft. Á tímabilinu frá 2. júlí 1928 tji 31. des. s. ár hefur hjeraðs læknir haft til meðferðar: Skurðlækningasjúklinga 35, þar af innl. 20, útl. 15. Lyfiækninga- ajúklinga 12 þar af innl. 9, útl. 3, alls 47 sjúklingar. í fjarvist hjeraðslæknis minnir mig, að Kolka hafa haft eitthvað af þessum útl. sjúklingum. , Kolka læknir hefur á sama tfmabili haft: Skurðlækningasjúklinga 21. lyfiækningasjúklinga 12, alls 33 cjúklinga. Alls voru á spítalanum þenn- «n tíma 80 sjúklingar, þar afjl8 útlendingar. Kolka reynist ekki síður lyf- læknir en skurðlæknir þetta misseri. Á t'mabilinu frá 1. jan. 1929— 30. júní s. ár, hefur hjeraðslækn- ir haft til meðferðar: Skurðlækningasjúklinga 58 jnnl. 18 útl. 40. Lyflækningasjúk- linga 71 innl. 26 útl. 45. Kolka læknir hefur haft: Skurðlækningasjúkl. 33. Lyf- l»kningasjúkl. 19. Guðmundur augnl, Guðfinns- son hafbi tvo upp skurðarsjúkl. á sjúkrahúsinu. Að þeim með- löldum voru alls til 1. júli 183 sjúklingar. Engin kvörtun hefur komið til mfn útaf ijelegri lækning útl. skurðlækn.sjúkl. nje innlendra, nje út af hinum. Af þessum tölum geta allir, sem augu hafa opin, og sjá vilja, sjeð hversu rangt og villandi læknirinn skýrir frá, eingöngu til þess að hnekkja áliti mínu á þessu sviði lækninga, þar, scm hann vill komast að sjálfur. Hann vill algerlega banna mjer að taka útlenda skurðlækninga- sjúklinga til meðferðar, og hann vill láta bæjarstjórnina banna mjer það. Hjer er sagan hálf. Sagan öll er á þá leið, að þegar skurð- iæknir er ráðinn við spftaiann, hver fer þá að láta lyflækni þar skera sig upp? það er skylda mín, að verjast í lengstu lög, svona yfirgangi, ekki sjálfs míns vegna, hcld- ur vegna þess, að hjeraðslækn- ar koma á eftir mjer í Vestm,- eyjahjerað,sem ekki munu gera sjer að góðu svona hömlur á sviði almennra lækninga. Hjeraðsbúar sjá nú þá ,hvítu og hreinu" samvinnuhönd, sem læknirinn telur sjálfan sig og bæjarstjórn rjetta mjcr í spítala- málinu. Hún sviftir hjeraðslækna, fyrst útlendum sjúklingum, sem skurð- lækningar þurfa, og því næst þeiin innlendu, því hverning geta menn í fullri alvöru búist við því að hjeraðsbúar fari eftirleiðis að leita tii lyflæknanna, til að láta þá skera sig upp? Eigi að ráða sjcrfrmðitig t skurðlækningum að sjúkrahús- inu, þá er vissa um þekking og hæfni, og við því er ekkert að segja, þvívið almennnu læknarn- ir .finnum það skyldu okkar, oft og tíðum, að ráðleggja sjúkl. að leita þeirra ráða.Gengi Kolka sjálfur inn á þessa fjarstæðu, ef hann væri hjeraðsl. ? Nei, síður en svo, ekki frekar en t. d. að láta praktiserandi lækni hjer hafa skipaskoðun, ef hann væri hjer embættislælolir, með skyldu til að vinna verkið. Hjeraðslæknar eiga, samkv. stöðu s'nni, að hlynna sð öllum heilþrigðismálum hjeraðsins, eins og Kolka læknir segir í grein- inni. það veit jeg að hann mundi gera, þegar hann erorðinn hjer- aðslæknir. Á ísafirði hafa hjer- aðslæknar eftirleiðis aðalráð sjúkrahússins þar, sem læknar þess opinbera, þó þeir sjeu ekki sjúkrahúslæknar. Með yfirgangi og undirróðri, er hjer verið að spyrna á móti áhrifum hjeraðslæknis á heilia- vænleg úrslit þess, sem Kolka telur fstæðsta heilbrigðismálið, spítala bæjarbúa. það áaðleyfa honum aðgang að spftalanum eft- irieiðis með afarkostum, og taki hann þvf ekki, þá er honum hótað því, að hann fái ekki að- göngu þar með sjúklinga. Jafnvel þóhjeraðsbúar færu svona að ráði sínu, eða bæjarstjórnin fyrir þeirra hönd, þá kæmi mjeraldr- ei bl hugar að rœgja spítal- ann, og ginna sjúklinga heim til mín á þann hátt, og getur Kolka læknir þar rjett til. í öllum lönd- um eru sjúkrahús rekin af ein- stökum læknum í smáum stíl, mjög eftirsóttar Prívatklinikur. þar þykir yfirleitt best að vera á almennum spítölum. Jeg hvorki vil nje get, nje ætla mjer að vera sjúkrahússlaus f Vestm.eyjah. eftirleiðis, og vænti þess, að ekki komi til þess, að svo verði, hvernig sem alt fer. Slikar æsingar, undirróður og yfirgangur, sem haföar hafa verið frammi í spítalamáli Vestmanna- eyja, munu hvergi eiga sinn líka annarsstaðar a þessu landl. Á Seyðisfirði, ísafirði, Akur- eyri og annarsstaðar í hjeruðum landsins starfa hjeraðslæknarnir óáreittir við sjúkrahúsin, studdir af hjeraðsbúum í vandasömu starfi. Sú öld rís hjer vonandi upp, að samvinna og góð eining ríki milli hjeraðsbúa og hjeraðs- lækna f því, sem Kolka nefnir stæðsta hjeilbrigðismáHÖ — spít- alamálinu. Ól. Ó. Látusson. Reglugerð sjúkrahússins. Á síðasta bæjarstjórnarfundi var frumvarp fjárhagsnefndar að reglugerð fyrir sjúkrahúsið til fyrstu umræðu í bæjarstjórninni, og var um það fjallað af fulltrú- unum, en auk þess tók hjeraðs- læknir tv'svar til máls um niál- ið á fundinum, að fengnu sam- þykki fundarstjóra. Er tekið var að ræða mál þetta kom það fljótt i ljós, áð mjög voru skoðanir manna skiftar og litlar líkur til samkomulags í þessum efnum. — Mál þetta er og hefur verið vandræðamál — og er meðferð þess orðin bæj- arstjórn til skammar. Auk þess hefur það orðið báðum læknun- um hjer til leiðinda og álits- hnekkis að miklum mun. í stórum dráttum er saga sjúkrahússmálsins þessi: í fyrra haust var þáverandi spítalanefnd falið að gera frum- varp að reglugerð fyrir sjúkra- húsið. Nefndina skipuðu fyrv. bæjarstj. Kr. Ólefsson, hjeraðsl. Ól.-Ó. Lárusson og Páll V. G. Kolka, læknir. — þegar til kast- anna kom, klofnaði nefndin urn málið og kom hvor með sitt frv., meiri hlutinn (bæjarstjóri og Kolka) og minni hlutinn (hjer- aðslæknir). Nokkru síðar kemur svo mál þetta fyrir bæjarstjórn, en það vill svo undarlega til, að í stað þess að ræða málið og ganga því næst til atkvæða um frumv. eins og vera ber, þá er málinu vfsað til sjerstakrar nefndar, sem kosin var á sama fundi.— Mestu mun hafa valdlð um þessa á- kvörðun bæjarstjórnar sú leiða meinloka, sem bæði fyr og síð- ar hefur gert vart við sig inn- an bæjarstjórnar, að á þetta var litið sem hagsmunamál iæknanna og nefndarklofningin afleiðing af óviðfeldinni togstreitu þeirra á milli, sem óspart hefur verið al- ið á af bæjarbúum, í stað þess að stuðla að samkomulagi, sem öllum væri fyrir bestu. Auk þess kom inn á fund þennan áskorunarskjal frá mörg- um bæjarbúum, um að sjúkra- húsinu yrði skift í tvær deildir, lyflækninga og handlækninga, og skyldl hjeraðslæknir vera lyf- læknir, en „praktiserandi°læknir handlæknir. Skjal þetta var mjög einkennilegt. þar eru ýmsir bæj- arbúar, konur og karlar, leik- menn með litla þekkingu á þessu sviði, að gera ályktanir um það, hvernig skifta eigi sjúklingum milli læknanna. En þetta var þó nóg, með öðru, til þess að rugla bæjar- stjórnina svo, að frestað var að taka ákvörðun um málið. Og þá var kosin nefnd sú, sem fyr um getur, sk'puð bæjarstj.fulltrúun- um Jóni Sverrissyni og þorbirnl Guðjónssyni, en utan bæjarstjórn- ar, Ól. AuðunssynL þorbjörn var

x

Víðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.