Víðir - 01.06.1934, Síða 1
VI. árg.
14. tbl,
Vestmannacyjum, 1. júní 1934
lnnilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför fósturdóttur okkar Svanhvít-
ar K. Éinarsdóttur.
Valgerður Þorvaldsdóitir Guðjón Þócðarson.
Fortíð og framtíð.
i.
Saga hins íslenska stjórnarfars og
afkomu ríkissjóðs síðustu 10—12
árin er lærdómsrík.
Fram til kosninganna 1923 fóru
með stjórn landsins samsteypu-
stjórnir — stundum studdar af
andstæðum flokkum, sem þá voru
í engu samtaka. — Síðustu árin
fyrir 1923 varFramsóknarflokkur-
inn leiðandi flokkurinn að stjórnar-
stuðningi.
Þá kom svo mikil óreiða á
fjárhag ríkisins að fjármálaráðherra
Framsóknar sagði skuldir ríkis
vera annaðhvort þetta eða hitt,
sem sé vissi hvorki upp né niður
um ástandið.
Það var tekið með vetlingatök-
um á öllum málum engin föst
stefna í fjármálum, alt látið reka
á reiðanum. — Þessu ófremdar-
ástandi hrundi þjoðin af sér við
kosningar 1923 er hún fól Borgara-
flokknum — núverandi Sjálfstæðís-
flokki, að annast stjórnarmyndun.
Sú stjórn, sem þá var mynduð,
undir forustu Jóns Magnússonar
Og með Jón Þorláksson sem fjár-
málaráðherra, sýndi greinilega
stefnubreytingu 1 fjármálastjórn
ríkisins. — Skuldir voru borgaðar
niður, skattar og tollar lækkaðir,
en þrátt fyrir það unnið mikið
að verklegum íramkvæmdum. Það
var stefnt að því að gera ríkið
skuldlaust og sjálfstætt, losa það
úndan oki lánardrotnanna og leyfa
því að krefjast þess eins af gjald-
endum, sem það þurfti til reksturs
ríkisins og til framkvæmda.
Stjórnir áranna 1923-^1927
stigu átór spor í þessa átt, enda
stöð að baki þeim sterkur, einhuga
meirihlutaflokkur, sem gat fylgt
fram réttu máli, án þess að
eiga úrslit þess undir geðþótta
annarra flokka. Þetta er saga
áranna 1923—’27, þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk einn ráðið
stefnu ríkisst.jórnarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn beið ósigur
við kosningar 1927, vegna ófyrir
leitinna og óréttmætra árása
andstöðu ílokkanna, samfara tak-
markalausum skrumloforðum og
falsloforðum þeirra sömu flokka.
Framsóknarflokkurinn tók að
sér stjórnarmyndun með „hlut-
leysi" kratanna.
Þessir flokkar fóru með stjórn
landsins árin 1927—1931. Fór
þar saman gengdariaust bruðl og
óvit í fjármálum hjá Framsöknar-
ráðherrunum og frekja og tak-
markalaus eiginhagsmunapólitík
kratabroddanna, sem héldu lífi
stjóinarinnar í höndum sér. Fram-
sóknarflokkurinn bafði ekki þing-
meiiihluta og hófst þá verslunin
við krata, Stjórnin bjó til „feit“
embætti eitt af öðru og leiddi
þangað krataforingjana i halarófu.
Komnir á „stallinn“ voru kratarnir
leiðitamir í bili, þeim hafði tekist
að koma fram þeim einu áformum,
sem öllum krataforingjum hér á
landi eru hjartfólgin: Að auðga
sjálfa sig á kostnað þeirra mál-
efna, sem þeim er trúað fyrir.
Þessi vöruskiftaverslun stóð 4 ár.
Rikisskuldir tvöfölduðust, skattar
og tollar. hækkuðu, og fjármála
ö*reiðan í ríkisbúskapnum komst í
algleyxning. Þetta var auðvitað
ekkert merkilegt. Það vantaði
samhuga og st.erkan þingmeirihluta
er fyldi ákveðinni og gætilegri
stefnu í fjármálum. Slíku var ekki
til að dreifa. Stjóinin fórnaði öllu
til þess að lafa og bitlingahlt krat-
anna varð aldrei mettuð.
Fyiir tveimur árum tókst loks
Sjálfstæðismönnum, ásamt vitrari
hluta Framsóknarflokksins, að
stemma stigu fyrir framhaldi þessa
ósóma. Krataliðinu var htundið
úr jötunni, eyðsluseggjunum vikið
á brott og tekiu upp gætileg og
heiðarleg stefna í fjármálum. Þetta
var aðeins fyrsta sporið til_ þess
að leiða þjóðina út úr þeim ógöng-
um, som hún lenti í, á árunum
1927—’31. Nú gefst þjóðinni sjálfri
tækifæii til þess að stíga annnað
og stærra spor fram til Ijóss og
velgengis
II.
Reynsla undanfarinna ára heflr
sýnt, að ríkinu var best stjórnað
þegar einn sterkur, samhentur og
gætinn flokkur fór með völdin. —
Á stjbrnarárum Sjálfstæðisflokks-
ins 1923—’27 var ríkisbúskapur-
inn r6kinn á heilbrigðum grund-
velli. Þeir voru einir om ráðin
og gátu óhindrað unnið að velferð
þjóðfélagsins. Framsóknar og krata-
árin (1927—’31) byggist alt á
mútum til handa krötum og er
ríkissjóður látinn borga brúsann.
Það var ekki von að vel færi. —
Nú standa kosningar fyrir dyr-
um. Nýju kosningalögin gefa kjós-
endum meiri rétt en þau gömlu, en
þau leggja þeim einnig meiri skyld-
ur á herðar. Uppbótarsætin jafna
að nokkru þann órétt, sem áður
ríkti á milli hinna einstöku kjör-
dæma. —
Nú kemur hvert atkvæði til
góða bæði þingmannsefni kjósenda
og stjórnmálaflokki þeim, sem hann
tilheyrir. Við útreikning uppbót-
arþingsæta eru nctaðar þær at-
kvæðatölur samanlagðar, sem
frambjóðendur flokksins fá í öll-
um kjördæmum landsins, auk
þeii ra atkvæða, sem landlisti sama
flokks kann að fá. það er þess
vegna áríðandi að hver frambjóð-
andi fái sem flest atkvæði.
Það eru margir flokkar, sem
hafa frambjóðendur í kjöri við
kosningarnar 24. júní n. k., og
mislit er hjörðin.
Sjálfstæðisflokkurinn gnæflr þar
yfir alla hina. Iiann heflr sýnt
það í verkum, að stjórnmálastefna
hans er ríki, og þjóð heillavæn-
leg. Hann er stærsti flokkurinn
og þess vegua líklegastur til þess
að ná meirihluta þingsæta og geta
myndað starfshæfa meirihluta-
stjórn. Með honum einum ábyr-g-
um fyrir stjórn landsins, getum
við búist við að bat.nandi tímar
fari í hönd, hér á landi. Með sigri
hans er girt fyrir það, að mútu-
lið kratanna láti greipar sópa um
ríkissjóð, eins og það gerði á ár-
unum 1927—’31. f
Það er glæsilegifr hópur. sem
flokkurinn býður fram til kosn-
inga um land alt, og það verður
gifturíkt starf, sem þessir menn
munu leysa af hendi, ef þjóðin
ber gæfu til að fela þeim með-
ferð málefna hennar í framtíð-
inni. —
Við Vestmannaeyingar höfum
verið svo lánsamir, öll arin síðan
1923, að eiga á þingi ágætan
fulltrúa, þar sem er Jóhann Þ.
Jósefsson. Hann hefir ávalt bar-
ist ötullega fyrir málsfnum þessa
bæjar á þingi, og er að allra dómi
talin einna bestur þeirra manna,
sem setu hafa átt á þingi hin
síðustu ár.
Hann heflr enn þá einu sinni
geflð okkur kost á að senda sig,
sem fulltrúa á þing, og er það
vel farið. Vestmannaeyingar munu
skipa sér þétt um hann við kosn-
ingarnar 24. júní n. k.
En að lokum vil ég minna ykk-
ur á eitt sjálfstæðismenn. Við
þessar kosningar eru þið ekki að-
eins að velja ykkur þingmann
fyrir Eyjarnar, þið eruð einnig að
bæta við atkvæðatölu Sjálfstæðis-
flokksins, þess eina flokks, er þjóð-
in getur byggt á vonir um góða
framtíð fyrir land og lýð.
Sigur hans er gaafa þjóðarinnar.
Baldur.
Deilur og
dómar.
Að deila 'um málefni, á að vera
hægt, án þess að meiða persónur
manna, þó að oft vilji verða mis-
brestur á því að það takist. Að
deila um menn er mikið vanda-
samara og viðkvæmara mál, og
endar löngum með hita, sem trufl-
ar alla dómgreind, og verður þá
oft skamt öfganna milli.
Lengi heflr haldist vakandi deila
um spítalann hér, — hið svo-
kallaða spítalamál, — og létu
margir sér fát.t um flnnast, alt
til síðustu daga.
En nú hefir fjöldi fólks fengið
nýjan vind í seglin, úr einhverri
átt, og siglir hraðbyri eitthvað
út í loftið, án þess að líta til
hægri eða vinstri, uns skipið tek-
ur grutm við öfganna strendur.
Það er engu líkara en að nú
sé annaihvor maður Orðinn lækn-
ir og jafnvel lyfjafiæðingur, þó að
ekki sé talað um hvað fólkið er
orðið skarpskygnt á menn og hin
vandasömustu málefni.