Víðir


Víðir - 23.06.1934, Qupperneq 1

Víðir - 23.06.1934, Qupperneq 1
VI. árg. 19. tbl, Vestmannaeyjnm, 28. júní 1934 Vestmannaeyingar. Áður en ltjósandi gengur að kjörborðinu verður hann, vegna sjálfs síns, héraðs síns og landa síns, að gera sér grein fyrir tvennu að minsta kosti. í fyrsta lagi verður kjósandi að mynda sér skoðun um hver fram- bjóðenda þeirra, sem nú eru 1 kjöri hér í Vestmannaeyjum, sé líklegastur til að koma fram mál- efnum héraðsins, svo að líklegt verði að hagur einstaklinga batni og velmegun vaxi. f öðru lagi verður kjósandi að gera sér sem Ijósasta grein fyrir því hver af frambjóðendunum sé líklegastur til að vinna þjóðinni mest gagn raeð starfi sínu sem löggjafi á alþingi. En fjárhagslegt og andlegt sjálfstæði sérhverrar þjóðar, er komið undir löggjöf viturra manna. Svar við þessu tvennu fæst með því, að bera saman atgiörfi fram- bjóðenda, dæma í huganum um kosti þeirra og lesti, bera saman stefnu hinna ýmsu flokka og síð- ast en ekki síst forsögu flokkanna, því reynslan er í þeim efnum, sem öðrum, ólýgnust. Jóhann f5. Jösefsson heflr verið þingmaður Vestmannaeyja í 10 ár. Á þeim árum hefir hróður hans sem manns og þingmanns stöðugt farið vaxandi. Öll þau máJ, sem héraðsbúar hafa faiið honum að koma í fram- kvsemd á alþitrgi. hafa fengið far- sæla lausn, Eyjunum til hagsbóta, Jóhanni f>. Jósefssyni til sóma. Honum er það að þakka, að nið- ur er feld Monbergsskuldin. Baggi sem riðið hefði atvinnulífi Eyjabúa að fullu. Hans verk er það, að undanfarandi ár hefir alþingi veitt tugi þúsunda til ræktunarvega hér í Vestmannaeyjum. En slik íjár- veiting er óþekt í öðrum héruð- um, og einsdæmi í sögu fjárlaga okkar íslendinga. En ræktunar- vegakerfið mun á skömmum tíma gjörbreyta atvinnuhoríum márgra hér. Ðæmafárri lægni og festu J. Þ. J. ber að þakka það, að við höf- um nú á vetri hverjum björgun- arskip við Eyjarnar, án nokkuira sérstakra útgjalda fyrir héraðið. En það ágæta málefni var, á sín- um tima, að verða fjárhag Eyj- anna ofviða. Festu og harðfylgi Jóhanns Þ. Jösefssonar á alþingi ber að þakka það, að stórfé er fengið til kaupa á dýpkunarskipi. En slíkt tæki mun, ef vel og giftusamlega er á haldið, gera Vestmannaeyjar að farsælustu fiskistöð landsins. í utanríkismálum okkar Islend- inga hefir J. f>. J. ef til vill unn- ið stærra þrekvirki, heldur en dæmi eru til, i okkar stuttu sögu sem sjálfstæðrar þjóðar. Þannig hefirhann komist að betri samning- um við erlenda stórþjóð fyrir hönd íslensku Þjöðarinnar, heldur en „bestukjara" samningar gera ráð fyrir. Þingsaga J. Þ. J. ber vott um það að Vestmannaeyjar hafa átt sem fulltrúa gáfaðan mann og giftudijúgan, héraði og landi. Það er lífsnauðsyn íslensku þjóðinni, að málum hennar skipi vitrir menn, studdir af sterkum flokki. Bolir nokkur hinna fram- bjióðendanna samanburð^við J. Þ. J. Hjá öllum réttdæmum mönnum verður svarið neitandi. Kjósendur góðir munið þess vegna, að gigur Sjálfstæðisflokksins er sigur þjoðarinnar. Ástþór Matthiasson. Síðasta ornstan. Útifundur var enn haldinn hér á fimtudaginn var. Voru þai mættir'frambjóðendur þriggja ílokk- anna, Sjálfstæðisílokksins. Krata- ílokksins og Kommúnistaflokksins, og forvígismaður í’jóðernissinna i Reykjavik, í stað frambjóðandans.. Fyrstur kom á svalimar þing- mannsefni Sjálfstæðisflokksins, Jóhann Þ. Jósefsson. Talaði hann um málin eins og þau höfðu að undan förnu gengið, og horfðu nú við, enda er hann þaulkunnugur þingsögu hinna síðari ára. Var ræða hans vel flutt og skýr eins og vænta mátti. Næstur kom íram Páll Þorbjörns- son frambjóðandi kratanna. Bar þar lítið á kunnugleik, en mikið var um biekkingar. Þá kom fram Helgi S. Jónsson. Þjóðernissinni. Var ræða hans vel tlutt, en unglingsleg í meira lagi, að efni til. Og tæplega mun nökkur hafa sannfærBt um það, af ræðu hans, að mennirnir yrðu á svipstundu svo góðir, að alt. gengi i himnalagi, þó að Þjóðernis- sinni slysaðist inn í þingið, — sem auðvitað er engin von um, að þessu sinni, ekki einu sinni í Rvík, hvað þá hér. Þá kom síðastur á svalirnar frambjóðandi kommúnista, ísleifur Högnasen. Hann var alveg eins og hann er vanur að vera á opin- berum fundum. Úr honum flugu ósannindin eins og skæðadrífa. — Voru svona nokkuð klaufalega áberandi. Þeim ísleifi og Páli fór eins að þvi leyti, að þeir sáu Jóhann alt- af með hnakkanum, — hann stóð sem sé ekki frammi fyrir þeim. — Truflaðist við það dómgreind þeirra. Peir voru of áberandi hrædd- ir við hann. Sé nokkuð að marka, lófakiapp manna og aðra framkomu þeirra gagnvart frambjóðendum, þa átti Jóhann fundinn, ef svo mætti að orði kveða. — Enginp klappaði fyrir ísleifi. Fylgismenn hans, ef nokkrir eru, hafa líklega verið orðnir þreyttir á Alþýðuhússfund- unum. Um fund þennan er óþarfi að fara fleiri orðum. Eftir því, sem á hann leið, fór fylgi Jóhanns greinilega vaxandi, að sama skapi og hinna minkaði. Sýnir það glögt að Vestmannaeyingar eru enn ekki heilium horfnir, þrátt fyrir blekk- ingar og ósannindi óvandaðra þjóð- málaskúma. Rangfærslur reykviskra Þjúðernissinna leiðréttar. Á fundi þeim er haldinn yar hér við Barnaskölann 8. júní lét ég svo um mælt að Þjóðernissinn- arnir væru með „aðflutta útlenda stefnu". Helgi S. Jónsson sá er talinn var fyrir hópnum úr Reykjavík, er a fundinum mætti, afbakaði orð mín í svarræðu og sagði mig hafa nefnt stefnu þeirra „erlenda of- beldisstefnu". Ég mótmælti þegar á fundinum, í heyranda hljóði, þessum rangfærslum, enda voru mörg vitni að því að Helgi þessi fór rangt með orð mín. Nú hef ég séð að í blaði Þjóð- ernissinna „Island", er út var gefið í Reykjavík 17. júni s. 1., halda þeir félagar áfram með sömu rangfærslur á orðum mín- um, og verður svo á að líta, eftir það, sem á undan er gengið, að nú sé það visvitandi gert. Þessi óvandaði málílutningur hinna' reykvísku Pjóðernissinna, bendir ekki á að þeir hafi enn sem komið er öðlast þann þroska, að geta haft orð eða ummæli rétt eftir öðrum. Jóhann Þ. Jósefsson Rétt kosið. Næstkomandi sunnudan, þann 24. þ. m., — sjálfan Jónsmessu- daginn, verður gengið til kosninga um land alt, — látið til skarar skríða um það, hverjir fari með stjórn landsins, hin nastu í|ög- ui ár. Margir Sjálfstæðismenn eru svo bjavtsýnir að treysta því, að þeir komist í hreinan meirihluta við þessar kosningar. Það sjá líka allir heilvita menn, að eina ráðið til þess að leysa vandamál ríkis- ins er það, að hrein meirihluta stjórn komist að völdum. Par sem Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, sem nokkrar líkur eru til að fái meiri hluta, þá ættu allir að taka höndum saman til að styðja að gengi hans. Hér í Vestmannaeyjum er vissa fyrir því, að frambjóðandi Sjálf- stæðisflokksins sigri við kosning- una á sunnudaginn. En það er ekki nóg, sigurinn þarf að verða sem allra glæsilegastur, einkum þegar þess er gætt að á einu, eða örfáum atkvæðum getur það oltið hvort flokkuvinn fær fleiri eða færri uppbótarsæti. Pað er því um meira áð ræða en aðeins manninn, sem atkvæðið fær, það er verið að kjósa flokkinn. Hinir flokkarnir hérna, hafa enga von um sð koma manni að, það er svo langt frá því, að slíkt komi til mála. Kjósendur ættu því, helst allir, að kjósa Jóhann P. Jósefsson.

x

Víðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.