Víðir


Víðir - 21.07.1934, Side 1

Víðir - 21.07.1934, Side 1
VI. árg. 21. tbl, Karlakór. í Morgunblaðinu frá 3. þ. m. eru myndir af sjö karlakórum landsins, þeim kórum, sem myndað hafa féiagskap sín á milli, ^sem nefnist Samband fslenskra karla- kóra, í fyrsta sinn sungu þeir allir saman á Alþingishátíðinni árið 1930, Landskórinn svouefndi. Af þessum kórum eiga þrír heima í Reykjavík: Karlakör • K. F. U. M., söngstjóri Jón Hall- dórsson, Karlakór Reykjavíkur, söngstjóri Sigurður Þörðarson, Karlakór iðnaðarmanna, söngstjóri Páll Halldórsson, einn á ísafirði, Karlakör ísafjarðar, söngstjóri Jónas Tómasson, einn áSiglufirði, „Visir", söngstjóii Þormóður Eyj- ölfsson, einn á Akureyri,„Geysir“, söngst.jóri Ingimundur Arnason, og einn á Seyðisflrði, „Bragi", söng- stjóri Jón Vigfússon. Nú hefir þetta Samband íslenskra Karlakóra komið saman í Reykja- vík og sungið opinberlega. Að sögn Páls ÍBólfssonar, sem í „mbl.“ minnist á söng þeirr'a, segir að um mikla framför se að ræða frá því er þeir sungu á Alþingishátíð- inni, og telur söng þ9irra þeim til sóma. Þegar maður les lofið' um kóra þessa, og þá ekki síður við að heyra í þeim, er eins og maður finni til af þvi, að ekki skuli vera til karlakór starfandi hér heima. Og það má kalla það undarlegt, þegar þess er gætt að Vestmanna- eyjabær er einn af fjölmennustu kaupstöðum landsins, t. d. sem næst fjórum sinnum mannfieiri en Seyðisfjarðarbær. Hver einasti ókunngar maður myndi óefað telja ástæðuna þá, að hér kunni einginn að stýra söng. Aftur á möti munu flestir kunnugir álíta að hér sé maður eða menn, sem hvgrki skorti þekkingu nó hæfileika, saman borið við söng- stjóra sumra hinna áður nefndu kóra, sem þykja góðir og enda ágætir. En það er eitthvað annað, sem vantar hér, og það hlýtur að vera áhugi til þess, því, enginn trúir því, að hér séu allir karlmenn raddlausir, enda vitanlegt að til eru hór góðir söngmenn. Það er svo sem skiljanlegt að hver sá, sem tekur að sér að æfa og st.jórna söng, hlýtur að leggja á sig mikla vinnu, venjulega fyrir litla eða enga borgun. Það er Vestmanuaeyjum, 21. júll 1934 því áhuginn einn, sem komið get- ur slíku fram. Það er fyrir löngu viðurkent, að „Söngurinn göfgar og lyftir i ljóma", og er því stórt spor í áttina til menningar. Ættu því þeir, sem finna hæfileika hjá sér til þess, að æfa og stýra söng, eigi að iáta undir höfuð leggjast, að leita uppi karlaraddir og æfa þær. Ekki er það öhugsandi að Sig- urður Birkis, hinn viðurkendi söng- kennari, fengist til að leiðbeina hór, eins og í hinum kaupstöðun- um. Áhugasamir menn ættu að láta til sín heyra um þet.ta mál og gera sitt til að það nái fram að ganga. það hefir áðvr verið minst á það hér í blaðinu að Vestmanna- eyinguin væri sjaldan boðið upp á annað til hressingar, en bíó og böll. — Þeir, sem hvorugt láta sér lynda, hafa því ekkert, verða þunglamalegir og eldast fyrir tímann. Á það jafnt við karl og konu. Það má hiklaust telja skemtana- lif hér í Eyjum á mun lægra stigi en í flestum eða öllum þeim kauptúnum landsins, sem bæjar- réttindi hafa. Það má kannske segja að skemtanir verði ekki látnar í askana, en þó er ekki eins langt frá að svo sé, sem margur í fljótu bragði hyggur. Hollar og göðar skemtanir hressa skapið og auka jafnframt viljaþróttinn til staifs og dáða. Hin innantómu böll, eins og þau venjulegast, fara fram, geta ekki talist holl skemtun eða góð. Pað mun ósjaldan koma fyrir, að nokknr hluti ballfólksins kenlur heim þreyttur og gramur yfir því að hafa komið þar. Slíkt getur aldrei hent nokkurn mann, sem með athygli hlustar á góðan söng. |pilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllll|| Kæra pökk fyrir auðsýnda vinsemd á brúðt | I kaupsdegi okkar, pann 7, p. m. Erna og Ólafur Halldórsson H Stud. tned. m Grænmeti. Nú ei sá tími yfirstandandi, sem husmóðir er kann að meta græn- meti, fer út í garðinn sinn þegar hún fer að hugsa um kvöld eða miðdagsmatinn og sækir þangað einn aðalhlut þess, sem hún þarf í matinn, og það er sama hvort hún ætlar að laga úr kjöti eða fiski, og jafnvel þó að hvortveggja vanti, þá sækir hún þangað það besta bæði að bragði og næringu, þvi húsmóðurin, sem kann að meta grænmeti, veit að tæplega er hægt að búa til ijúffengasta aðalmatinn án einhverra garðá- vaxta, auk þess veit praktíska og samviskusama húsmóðirin að það er ódýrasta og hollasta fæðan. Fáfróðustu húsmæðrunum í mat- reiðslu, hór í bæ, langar mig að gefa nokkrar leiðbeiningar um notkun grænmetis, og legg ég að- al áherslu á, að þær séu einfald- ar og fljótlegar, því mestur hluti húsmæðranna hefir mest not af þeim. Þó er það ekki skoðun mín að altaf eigi að gefa matreiðsl- unni svo lítinn tíma sem mögu- legt er að komast. af með, matur- inn er svo þýðingarmikill hluti jarðlífs mannanna, að mér finst það vera heilög skylda hverrar einustu húsmóður, að reyna að hafa áhuga fyrir matreiðslunni, bæði hvað bragð og næringu snert- ir. Og nú á dögum er hægt að komast langt i því að læra að búa til góðan mat, fyrir þá sem það vilja, þar sem flestar bóka- verslanir iandsins hafa einhverjar matreiðslubækur á boðstólum. Ég ætla að byrja á vorjurtun- um, þó að ég hafi verið búin að nefna þær áður í grein minni „Bendingu" sem ég skrifaði 1 „Víði“ í vor, og sagði þá lítið eitt um hvernig ætti að borða þær. Salat eiga húsmæður að láta heimilisfólk sitt boiða einu sinni á dag alt. sumarið. Hversdagslega er ágætt að hafa út á því ein- tóma nýja sýru og sykur, en á sunnudögum eða helst öðru hvoru rjóma auk sykurs og sýru (aldrei edik). Rjöminn má vera alveg hvort vill þeyttur eða óþeyttur. Ágætt er að blanda saman við sýruna, þegar mikið er haft við, safa úr einni appólsínu. Sömu aalatsáðninguna er hægt. að nota hórumbil alt sumarið, só sáð í raðir og blöðin tínd þétt af eða skorin af laust fyrir ofan rótina, þá vaxa fljótt ný blöð frá rót- inni aftur. Á þessum tíma árs eru egg einn ódýrasti maturinn, saman- borið við næringargildi. Úr eggj- um og spínati má búa tii afar ljúf- fenga og holla miðdagsmata, auk þess sem spinatsúpur, sósur og fleiii smáréttir úr spínati, eru hið mesta sælgæti þeim sem það þekkja T. d. eru spínatbúðingar með soðnum kartöflum og smjöri hrærðu eða bræddu og eggjakaka með stúfuðu spínati og hrærðu smjöri, follkomlega sjálfstæðir miðdagsmatar. Uppskriftir af eggjakökum eru f flestum venjulegum matreiðslu- bókum, annars skal ég gefa hér tvær fljótlegustu uppskriftir af eggjakökum, sem ég þekki. Sú ein- faldari er þannig: 3 egg, 6 matsk. mjólk, ofurlítið salt. Úr eggjun- um er helt í skál og saman við það er mjólkin látin, hrært dál., smjör er brætt á pönnu, en ekki látið brúnast, þar í er eggja- massanum helt, bakað við mjög hægan eld þar til kakan er hlaup- in í gegn, ekki snúið, pannan hrist. að öðru hvoru. Kakan er látin kólna dál. á pönnunni. Spínatblöðin eru tínd af jurt- inni, þvegin vel, soðin i 1—3 mín. best að láta þau liggja í brenn- heitu vatni í 10 mín., þá tapa þau síður næringu. Þá er þeim helt á „dörslag", söxuð eða skorin smátt á bretti. Úr ofurlitlu hveiti smjöri og mjölk er búin til þykk sósa, bætt með sykri og salti eft- ir geðþötta, út í það er spinatið hrært. Þetta er látið á hálfa eggjakökuna og hinum helmingn- um hvolít yfir, látið á fat, hrært smjör borið með. Ljúffengara fyrir óvaninga í spinatáti, er að smyrja yfirborð eggjakökunnar með sultutaui (t. d. úr rabarbara). Uppskrift hinnar eggjakökunnar er þaunig: 4 egg, 2 matsk. mjólk,

x

Víðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.