Víðir


Víðir - 04.05.1935, Qupperneq 1

Víðir - 04.05.1935, Qupperneq 1
VI. árg. 52. tbl, Vestmannaeyjum, 4. maí 1985 Ennui atvinnnbætnr. í sibasta tbl. Víðis er grein með yfii-Bkriftinni »Atvinnubætur“, eft- ir Kr. Linnet. Grein sú virðist vera orð í tíma talað. Það er ergilegt að hugsa til þess, að hing- að til Vestmannaeyja skuli ár- lega vera fluttir garðávextir, mest kartöflur, fyrir þúsundir, eða öllu heldur tugi þúsunda króna, og það alla leið frá útlöndum, Noregi, Danmörku og Englandi. Enginn vafi er á því, að hér mætti rækta kartöflur, sem nægja myndu öllum íbúum Vestmanna- eyja, og sennilega meira 6n það, ef menn aðeins leggja duglega hönd á plóginn. Leið sú, er Kr.. Linnet bendir á, til þess að auka ræktun garð- ávaxta hér að miklum mun, virð- ist eftir atvikum vel hugsuð. Sérstaklega er það athygiisvert, sé um atvinnuleysi að iæða að vor eða sumarlagi, að ólíkt er það mannlegra að taka höndum saman og vinna að ræktun jarð- arinnar sjálfum sér til gagns og börnum sínum til nytja síðar, heldur en standa vælandí framan í stjórnarvöldum kaupstaðarins, biðjandi um eiuhverja atvinnu- bótavinnu, sem oftast nær er ó- nauðsynlegri og arðminnj en vinna sú, sem hér er bent á. Eftir skrifi Kr. Linnets að dæma, geta menn búist við að hann sem umboðsmaður landsins, yrði mönnum Ihjálplegur með það, að gefa þeim kost á hinu ákjósan- legasta landi á svæði því, sem um ræðir í grein hans. Það er skemtilegt til þess að hugsa, að innan fárra ára getur eyjan okkar veiið alræktuð að mestu leyti, ef hugur og vilji 1- búanna hjálpist að, þar sem skiftast á gróin tún og garðar með jarðeplum og öðrum garðávöxtum, sem sannað er að prýðilega geta þrifist hér, Heill hverjum þeim, sem með áhuga vinnur að því að svo megi verða. — 2 herbergi til leigu fyrir ein- heypa 14 maí á Lundi. Utvarpið 1. maí. Svo var að heyra hinn 1. maí sl., að Útvarpið væri aðallega helgað sósíaldemókrötum. Sjálfur atvinnumálaráðherrann hélt ræðu og Karlakór alþýðu söng viðeig- andi söngva. Það er annars dálítið eftirtekt- arvert hvað íslendingar eru eftir- hermugjarnir. Þoir, sérstaklega þó sósíaldemókratar og kommún- istar, apa sig eftir miljóna borg- um heimsins, og slá um sig með ýmiskonar mannalátum, en þó að þau séú ekki sem best viðeigandi altaf, það flnst þeim víst gera minna til. Ekki verður betur séð, en að einmitt þennan dag befði verið öllu heppilegra, og betur að verki vei- ið af hálfu Útvarpsins, hefði það fengið snjallan ræðumann til þess að telja kjark í þjóðina, á þess- um krepp'utimum, heldur en að bjöða hlustendúm upp á það að heyra, svo að segja einvörðungu, þetta sósíalistiska hjal, sem aldrei getur orðið til annars en að lama kjark og þrótt þeirra» sem annars viija hlusta á það, og að öðru loyti taka nokkurt maik á því. Það ar á flestra vitorði, að hin kommúnistiska stefna á litlu gengi að fagna hér á landi, og getur alls eigi þrifist hér, svo ólík eru kjör hins vinnandi lýðs hér á landi og þess verkafólks, sem í miljónalöndunura býr. En það mega kommúnistar eiga, að þeir eru þö altaf hreinlyndari bii krat- arnir, sem aldrei hafa við að aka seglum eftir vindi. Það er talið, að Útvarpið sé, eða að minsta kosti eigi að vera, menningaratriði hér á landi eins og í öðium löndum heimsins, en þannig má stjórna því að áhrifin verði neikvæð. Útvarpið á að vera hlutlaust, hvort sem þessi eða hinn stjórn- málaflokkurinn fer með völdin, Óþrifnaður. Sú gata hér í bænum, sem fjöl- fornust er um vertíðina er Strand- vegurinn. Mesti fjöldi þeirra, sem vinna við útgerðina, gengur þar um margar ferðir á dag. Þeir taka ef til vill ekki vel eftir því hveinig. þar er umhorfs. Þeir eru otðnir svo vanir því að sjá til annarar hliðar, eða. kannske beggja handa, ýmiskonar óþverra, mest þó fiskúrgang og afbeitu hauga og láta sér fátt um finn- ast, enda munu sumir þeirra sek- ir um óþrifnaðinn. En þeir, sem sjaldnar fara þar um, taka betur eftir því. Nú er það vitanlegt að svo að segja allir útlendingar, sem hér koma í land, og þeir eru margir, fara um þennan veg, og þeir líta til beggja handa og sjá á hvaða þrifnáðarstigi við stöndum. Það hefir verið svo um langan tfma, að undanförnu, að víð götu- brúnina að norðanveröu, heflr mátt sjá stóra afbeituhauga, og stundum sömu flaugana dögum saman. Má svo sem nærri geta hvaða áhrif það heflr á loftslagið í bænum. Og svo er mjög líklegt, að slíkur sóðaskapur verki nokk- uð óþægilegá á ókunnugan þrifn- aðarmann, sem þar á leið um. Auðvitað er óþrifnaðurinn við götuna mest áberandi, en það, af samskonar óþverra, sem er í hin- úm ýmsu sundum, er alveg eins óholt. Það er skiljanlegt, að þeg- ar komið er sumar, liggur ekki afbeituhaugur lengi án þess að af honuin leggi ýlduþef, sem spillir loftinu í kringum hann, og auð- vitað berst einnig út um bæinn. Heilbrigðisfulltrúinn þyrfti að ganga um þennan veg og gæjast inn í sundin. lilli Leiru og Yatnsleysu. þess var getið í næst síðasta tbl. þessa blaðs, að skeð gæti, að bráðlega yrði sögð ferðasagan frá viðlegunni, sem þar er talað um, og til Yatnsjeysu. Til skýringar skal þess getið, að Sæmundur Jónsson, sem um getur í greininni, bjó á Minni- Vatnsleysu, en á Stóru-Vatnsleysu bjó Stefán, sem sá er þetta ritar ekki man hvers son var, aldraður maður. Talinn góður formaður, en hættur sjómensku, er saga þessi gerðist. Sonur Stefáns hét Bjarni, þá ungur maður og nýlega giftur dóttur Sæmundar. Yar Bjarni talinn ágætur for- maður og vaskleika sjómaður. Þegar Sæmundi fór að leiðast norðanhríðin, fór hann heim, en bað tengdasoninn Bjaina, sem einnig Já þar við, að sigla skipi sínu heim, þegar honum sýndist það fært. Þetta er nægilegur formáli, þótt annars gæti hann verið lengri, því margt getur komið til mála. Það var snemma morguns, að barið var hart á hjaliinn. „Hver er þar? var kallað innan frá. „Það er Bjarni," var svaiið. „Langar ykkur ekki til að fara heim strákar?" „Já“ sögðu allir ein um rómi og voru fiótir á fætur. Yindur var af norðri, mikið norðaust’ægur, allhvass, að minsta kosti, en um það var «kki fengist, aliir treystu formanninum. Skipið var brátt fylt með þorsk- háusum, ýmiskonar drasli og alls- konar viðlegudóti. Satt að segja var skipið fult, en ekki að sama skapi þungað. Síðan var ýtt úr vör. Vindur var beint á móti út fyrir Leiru- hólma. Allir settust undir árar ogréru, hver sem mest, hann mátti, og loks komst skipið út fyrir hólmann og á frían sjó. Þá var nú farið að seglbúa. Fyrst var siglt með öllu rifuðu, en brátt varð að taka aðra fokkuna og afturseglið, — svo var hann hvass, Sá er þetta ritar var annar framímaðurinn, en hinn var Guð- mundur nokkur Sigurðsson, einn af skipverjum Bjarna, þaulæíður og ágætur segiamaður. Síðar vaið hann skipstjóri, nú fyrir skömmu dáinn. Það var siður við Faxaflóa, á þessum tíma, þegar sigldur var beitivindur, ef að svokallað aðgæslu- leiði var, að seglaskautum var ekki fest, heldur haldið í þau. Kom þá í hlut framímannanna að passa fokkuskautin. það var ekki svo litil lyst að hagræða vel klífirnum, og gat velferð skipsins verið allmjög háð handtökum þess, sem trúað var fyrir honum. Meðal hinna snjöllustu í þeírri grein, var Guðmundur sá, er að framan getur. Áfram var haldið, siglt eina

x

Víðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.