Víðir - 09.01.1946, Qupperneq 4
4
VÍÐIR
Sparisjóður Vestmannaeyja
ávaxtar fé yðar og annast allar innheimtur.
Opinn alla virka daga kl. 16—18 nema aðfaradag helgi-
dags, frá kl. 15—16. Víxlar afsagðir kl. 17 á þriðja degi,
hafi þeir þá eigi verið greiddir.
Ágóði af rekstri sjóðsins rennur í varasjóð einvörðungu
eða til menningarframkvæmda í kaupstaðnum samkv.
lögum um sparisjóði.
SPARISJÓÐUR VESTMANNAEYJA
Sjúkmsamlacf Vestmannaeyja
óskar meðlimum sínum GLEÐILEGS ÁRS og'þakkar
fyrir samvinnuna á liðna árinu. Jafnframt minnir
samlagið þá, sem eiga ógreidd iðgjöld, á að gera skil
sem allra fyrst.
SJÚKRASAMLAG VESTMANNAEYJA.
I
Télynniing frá skatfstofunni
Skv. 33. gr. skattalaganna eru þeir, sem hafa menn
í þjónustu sinni, er taka kaup fyrir starf sitt, skyld-
ir að skýra frá því, hvaða kaup þeir greiða hvei-jum
manni, þar með talin stjórnarlaun, ágóðaþóknun,
gjafir o. fl.
Skv. þessu er hér með skorað á kaupgreiðendur
að gefa upp 'launagreiðslur fyrir árið 1945 til skatt-
stofunnar fyrir 15. þ. m.
Þeir, sem ekki hafa afhent launauppgjör skv.
ofanrituðu í tæka tíð, verða látnir sæta dagsektum
skv. 51. gr. sömu laga. Auk þess verður því aðeins
veittur frádráttur fyrir greidd laun, að þau hafi
verið gefin upp og eigi meiri en upp var gefið.
Nánari upplýsingar gefnar á skattstofunni alla
virka daga frá kl. 10—12 f. h. og kl. 1—3 e. h.
SKATTSTJÓRI
AuglýsiiMj
um aðsíoðarlán íil síldar-
úivegsmanna 1945
Þeir síldarútvegsmenn, sem ætla að sækja um aðstoð-
arlán samkv. lögum nr. 104, 20. des. 1945 verða að koma
umsóknum sínum fyrir 15. janúar 1946, til Sigurðar
Kristjánssonar, alþingismanns, Eimskipafélagshúsnu
(Pósthólf 973).
Umsóknunum verða að fylgja:
7. staöfest eftirrit af skattaframtali umsælcjanda 19 U5.
2. efnaha</sreilcning.ur umsækjanda 30. se/pt. 19U5.
3. rekstrarreikningur síIdarút(/er'öar umsætyjenda 1945.
U. veðbókarvottorð skipa og fasteigna umsækjandans.
5. adrar uppl., sem umsækjandi telur máli skipta.
AÐSTOÐ ARLÁN ANE FNDIN
hjá rafstöð Vestmannaeyja, auglýst hérmeð laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur ákveðst til 15. janúar n. k.
Vestmannaeyjum, 3. janúar 1946.
BÆJARSTJÓRINN
L]ós
Allir þeir, sem skulda ljósgjöld frá árinu 1945 eru
hérmeð áminntir um að greiða þau við næsta aflestur.
Vestmannaeyjum, 3. jan. 1946.
BÆJARGJALDKERI
Áskrifendur að bókum „Listamannaþings“ í Vest-
mannaeyjum tilkynnist hérmeð að önnur bók útgáf-
unnar „Birtingur“ er komin. Geta áskrifendur vitjað
bókarinnar til umboðsmanns útgáfunnar. Þar er
einnig tekið á móti nýjum áskrifendum.
Verzlun Björn Guðmundsson Bárugötu 11.
Anglýsið í VIÐI