Víðir - 15.06.1946, Qupperneq 1

Víðir - 15.06.1946, Qupperneq 1
XVII. Vestmannaeyjum 15. júní 1946 13. tölublað Sextugsaf mæli betri árangri en við mátti bu- Jóhann Þ. Jósefsson alþingis- maður verður sextugur 17. júní þ. árs. Hann er fyrir löngu lands- kunnur maður, því gáfur hans, atorka og framtakssemi hafa gert ltann að málsvara þeirra þróun- ar- og menningarmála, sem ver- ið hafa á dagskrá, bæði hér í héraði og á þessu landi, í aldar- fjórðung. Jóhann fór snemma að gefa sig að sveitastjórnamál- um og stjórnmálum hér. Hann hugsaði og grundaði allt vel, var skoðanafastur og varði sínar skoðanir með festu. Hann stofn- aði hér verzlunarfélag með lands- kunnum manni, Gunnári Ólafs- syni, sem hingað fluttist úr \h'k í Mýrdal og um það leyti var þingmaður Vestur-Skaftfellinga, og hefur sá verzlunarfélagsskap- ur þrifizt og notið trausts og á- lits baiði hérlendis og erlendis jafnan síðan. Mikið mætti segja urn þennan merkismann, en í stuttri blaða- grein vefður látt eitt sagt. Segja má, að Jóhann hafi verið málsvari, hvatamaður og lrum- kvöðull svo að segja hvers ein- asta þróunar- og menningarmáls Eyjabúa síðan. hann komst á þing fyrir tæpum aldarfjórðungi, því að hann hefur óslitð verið þingmaður Eyjanna síðan hann var fyrst kosinn og notið þar óskoraðs trausts íbúanna. Þátttöku Jóhanns í þróunar- málum Eyjanna, hafnarmálum, landhelgis- og björgunarmálum, vitamálum, lifrarsamlagi o. 11. þekkja Eyjabúar og aðrir lands- menn. Dugur sá og hyggindi, er Jóhann einkenna, hafa orðið til þess, að ráðamenn þjóðarinnar hafa trúað honum fyrir mestu vandamálum alþjóðar fyrr og síðar. A kreþpuárunum var liann sendur erlendis, einkum til Mið-Evrópulanda, Þýzka- lands og víðar til að semja um afurðasölu, sem þá var mikl- um erfiðleikum og vandkvæð- um bundinn, eins og nt'i, því verzlunin er raunverulega hvergi frjáls. Sýndi hann þá jafnan festu og hagsýni og náði jafnan ast eftir aðstæðum. Traust það, sem Jóhann vann sér á þessum árum, mun eflaust hafa orðið til þess, að honum hefur nú verið falin formennska í nýsköpun at- vinnuveganna, sem nú er efst á baugi með þjóðinnþ en hanrt reynist ekki frekar þar en ann- arsstaðar neinn veifiskati. Jóhann er sjálfmenntaður og fjölhæfur maður. Hann er góður málamaður, talar vel frönsku, þýzku og ensku, auk Norðurlandamála. Þau lærði hann í tímakennslu hingað og þangað samfara erfiði og striti dagsins, því þá voru ekki skólar hér í Eýjum né skólaskylda fram undir tvítugt, eins og nú fer að verða. Þá máttu menn verá ólærðir. Nú er mönnunum skipað að vera lærðir. Sjálfstæðismenn í Vestmanna- . eyjum hafa enn borið gæfu til að sameina sig um framboð liins ötula þingmanns síns og þjóð- málaskörungs, Jóhanns Þ. Jó- sefssonar, við í hönd farandi al- þingiskosningar. Jóhann hefur nú átt sæti á Alþingi um margra'ára skeið. Hann hefur frá því að hann lyrst kom á þing verið í fremstu röð framfara- og vormanna Is- lands. Það hefur verið sóini Vest- mannaeyja að ciga á þingi mann jafn gjörkunnugan sjávarútvegs- málum og einarðan flytjanda umbóta á því sviði, og Jóhann er. Það nnui mála sannast, að fá- ir eða engir hafi lagt jafn drjúg- an skerf til hagsmunamála sjáv- arútvegsmanna og Jóhann og fyrst og fremst fyrir kjördæmi sitt, mesta útgerðarpláss lands- ins, en jafnframt til framdrátt- ar sjávarútvegi allra lands- manna. Sá, sem þetta ritar, hefur kynnzt Jóhanni sem góðum dreng, vinföstunr og trygglynd- um. Hann er gáfaður og bráð- skemmtilegur í tali og viðmóti og kann ótal skrítlur og smásög- ur, sem oft er unun að heyra hann segja frá. Jóhann er tvíkvæntur. Fyrri konu sína, Svanhvíti Olafsdértt- ur, missti lrann eftir nrjijg stutta sanrbúð, ágæta nryndarkonu. Kvæntist aftur núlifandi könu sinni, frú Magneu Þórðardótt- ur, einnig ágætri myndarkonu, og á með henni þrjú mannvæn- leg börn, 2 dætur og 1 son. Unni átti lrann áður en lrann giftist, hún var falleg og gáfuð stúlka, dó tmr tvítugt og syrgðu hana allir, er lrana þekktu. Ósktun vér afmælisbarninu til hamingju með daginn og gæfu og blessunar í framtíðinni ásamt öllu hans skylduliði. Þó starf Jóhanns á þingi lrali að nrestu verið lrelgað sjávari'rt- veginum, þá hefur lrann þó unr leið verið flytjandi eða stuðn- ingsnraður fjölmargra góðra rnála, er til Iramfara lrorfðu á sviði menningar og mannúðar, svo seirr r berklavarnarnrálun- um og sundíþróttarmálunr, en lrann barðist fyrir því á sínunr tínra, að sundskylda yrði lög- leidd fyrir allt landið. Fyrir kjördæmi sitt hefur Jó- lrann verið hinn ötulasti þing- maður. Það er af nrörgu að taka unr þátttöku lrans í franrfara- og h agsm u n anr álu m Ey j askeggj a, en það er mönnum kunnugt og því óþarft að rekja það hér; þó skal þess getið, að Jóhann lref- ur gengið rnjög ötullega fram í að tryggja björgunarskip við Eyjar á liverri vertíð nú urn margra ára skeið. Einnig Jrefur lrann látið nrjög til sín taka unr hafnarnrál Vestnrannaeyinga og Bæjarf rétlir Dánarfregrs. Kristinn Jónsson, verzlunarmaður, lézt í sjúkra- húsi í Reykjavík fyrir skömmu siðan. Hann starfaði mörg ár hér á Tanganum hjá Glunnari Ólafs- syni & Co. og vann hvers manns hylli fyrir prúðmennsku og drengilega framkomu. Hann • var kvæntur Agústu Arnbjörnsdóttur er lifir mann sinn og eignuðust þau 3 mann- vænlega syni. Um síðustu helgi kom 90 manna hópur úr Heimdalli í heimsókn hingað til Eyja og voru þar á meðal ágætur karlakvart- ett, gítarflokkur og hljómsveit, er skemmtl fólki á sameiginlegri kvöldskemmtun, er Heimdallur og Félag ungra sjálfstæðis- manna hér héldu í Samkomu- húsinu. Fór skemmtunin hið bezta fram og varð þátttakend- um til mikillar ánægju. saingöngumálin, nú síðast við að koma á flugsamgöngum við Eyj- ar. Síðast en ekki sí/.t skal þess get- ið, að Jóhann hefur verið í broddi fylkingar nýsköpunar- manna ;í íslandi. Honum hefur skilizt af langri reynslu og við- kynningu \ið hina þróttmiklu sjómenn og framkvæmdamenn í Eyjum, að afköst handarinnar, einnar nægja ekki til að skapa mönnum viðunandi lífsafkomu hér á landi. Ilann hefur því verið fylgis- maður þess, að vélamenningin yrði tekin í þjónustu handarinn- ar og hefur nú séð að sá drauni- ur mætti rætast, að afköst lrand- arinnar yrðu margfölduð, já u'- földuð eða jafnvel tvítugfölduð með nýtízku vinnuvélum, verk- smiðjum, er breyttu afurðum í margfalt verð, og stærri skipum. Það er því eigi að undra þótt Alþingi hafi falið þingmanni X'estmannaeyinga, sem er vaxinn upp úr jarðvegi hinna þrótt- miklu atorkumanna Eyjanna, forustuna í stærsta máli þjóðar- innar fyrr og síðar — nýsköpun- Framhald á 4. síðu. Ól. Ó. Lárussori. Vestmannaeyingur skrifar Um Vestmannaeying

x

Víðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.