Víðir


Víðir - 15.01.1948, Page 3

Víðir - 15.01.1948, Page 3
V í Ð I R o Vestmannaeyjar 1947 Niðurfelling lánsviðskifta Vegna hins óeðlilega verzlunarástands, sjá með- limir félags vors sér ekki fært, að veita lán, svo sem að' undanförnu. Fastir reikningsmenn verða að gera upp reikninga sína fyrir 6. næsta mán. eftir að skuld var stofnuð, ella verður reikningi þá lokað. Heimlán á vörum hætta frá deginum í dag. Vestmannaeyjum, 3. janúar 1948. Féiag Kaupsýslumanna ’^rVTrV^PV^rV“VTrvt-Vttv T v^rv1 1F Stofnlánadeildarbréf ^Vegna eignakönnunarinnar er nauð syniegt fyrir þó# sem eiga ósóft stofn lónadeildarbréf, að vitjo þeirra sem fyrst. Vestmannaeyjum, 9. janúar 1948. Útvegsbanki íslands h.f. útibúið í Vestmannaeyjum. Framhald af r. siðu. hey, en óvenjumikið er um kvilla í kúm, sem taldir eru stafa af miklum sýklum í hinum skemmdu heyjum. Norðan úr Eyjafirði voru keyptir um 700 hestburðir af töðu, einkum handa Dalabúinu. Það keypti einnig hér í Eyjum um 200 hest- burði. Kartöfluuppskeran mun ekki hafa verið nema um 1/$ af meðal uppskeru, en gulrófur spruttu hinsvegar vel í sandgörðum og gerði þar ekki vart við sig hin vonda rófnasýki. Um áramótin síðustu voru hér um 227 kýr. Þar af eru í Dalabú- inu 50. Sauðfjáreign hefur heldur gengið saman. í Sæfellinu gekk ekkert fé í sumar. I úteyjum mun ekki hafa verið fullsett í að sumrinu. Fjáreigendur eru nti komnir upp á að flytja fé sitt heim úr úteyjum og af Heima- landinu .yfir veturinn og gefa því inni, og eru þannig hættir við útiganginn. Það má þó geta þess hér, sem einkennandi fyrir þá. tíma sem við lifum á, að í Suðurey voru settar haustið 1946 20—30 kindur og var aldrei farið í eyna og ekki litið til þeirra fyrr en þær voru sóttar í Iiaust og voru þá í rúböggum. Enga þeirra \ antaði og vóru þær með afbrigð um fallegar. Það er eins dæmi, að ekki sé vitjað um lé í úteyj- um á jafnlöngum tíma og ekki einu sinni farið til að rýja. Hrossum fækkaði töluvert. og eru nú dráttarvélar að koma í slað þeirra. Hænsnarækt færðist hér í auk- ana og voru stofnuð tvö allstór bú á árinu. Nýrækt var með alminnsta móti. Eggjataka tapaðist að mestu vegna ótíðar og er það nær eins- dæmi. Lundi var mikill en lítið þýddi að veiða, því að t’ólk fékkst ekki til þess að reita fuglinn, en ‘dmenningur vildi ekki kaupa dann nema reittan. Iðnaður. Sömu iðnfyrirtæki voru rekin hér og árið áður, 4 lrystihús, 4 netagerðir og við- gerðarstofur, 3 vélaverkstajði, 3 skipasnúðastöðvar og 1 prent- smiðja, og mörg smærri iðnfyr- ittseki. Á árinu 1947 voru tekin í notkun 15 (13) ný íbúðarhús og endurbyggð 4 (2) eldri hús. í þessum 19 byggingum voru 18 (26) íbúðir. Mörg önnur liús V()|di byggð, stærst þeirra var raf- stöð, símstöð, netagerð og síldar- * nótáhús. Samanlögð stærð nýrra húsa er tekin voru í notkun hér á árinu var 19113 rúmmetrar. / smíðum eru mörg íbúðarhús og margar stórbyggingar. 5 vélbátar voru fullsmíðaðir hér á árinu, samtals rúmar 400 smálestir að stærð. Eitt þessara skipa er stærsta skip, sem smíðað hefur verið hér á landi. Nú er hér«ekkert skip í smíðum og er illa farið, ef skipasmíðar leggjast hér niður. 4 þessara skipa eru eign Eyjamanna. Hingað ’var keyptur einn bátur, en 3 voru seldir burtu. Framkvœmdir bœjarsjóðs. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið sem leið var m.a. gert ráð fyrir eftirfarandi verklegum framkvæmdum, eins og árið áð- ur: Gagnfræðaskóli . . kr. 150 þús Sóttvarnarhús . — 100 — íþróttaleikvangur . • - 5° - Steinsteyping vega - 50 - Elliheimili . - 50 - — Laglegar tölur, en lítið meira. Nemendur skólanna voru: Barnaskúlinn ........ 400 (400) Barnaskóli S.D.A. .. 35 ('32) Gagnfræðaskólinn . . 70 ( 88) Kvcildsk. iðnaðarm. 94 ( 96) Heilbrigðismdl. Inflúensa gekk framan af árinu og með vorinu koniu hingað mislingar, er urðu mjög útbreiddir, mest í júlí, og síðasta tilfellið kom fyrir í sept- ember. Alls varð-vart á þriðja hundrað tilfella. í kjölfar þeirra gerði vart við sig alls konar krankleiki, eins og oft vill verða. Það má heita, að sjúkrahúsið hafi alltaf verið fullt. Lítið var um aðkomusjúklinga af skipum. Berklaýarnarstöðin var rekin eins og áður í sjúkrahúsinu og ungbarnaverndin vár til hiisa í Tungu og rekin allt árið, nema 3 sumarmánuðina. LjþsbÖð voru í barnaskólanum eins og áður. Allmikið dró úr blaðaútgáf- unni frá árinu áður, sein var ár tvennra kosninga. íhúatala kaupstaðarins var við síðasta manntal 3476 (3475)> 9' barn fæddist og 27 manns dóu og liefur því flutzt úr bænum um- fram þá, sem inn hafa flutt 63 manns. En alls munu Iiafa flutt úr bænum 150 manns. Tilþrifalítið var á sviði stjórn- málanna í þessum bæ árið, sem leið. Sum stjórnmálafélögin héldu fámenna fundi, önnur enga. Það mesta, sem kveðið hef- ur að í þessum efnum munu hafa verið kvöldvökur Félags ungra Sjálfstæðismanna, sem voru prýðilega sóttar. * UM ÁRAMÓTIN. Þegar reynt er að gera sér grein fyrir horfum nti um áramótin, verður fyrst fyrir vetrarvertíðin, sem hefst innan skamms. Sri var tíð- in, að flestir kostuðu kapps um að vera tilbúnir að byrja róðra um áramót og stundum hóf ein- staka bátur róðra milli jóla og nýárs. Nú byrja fyrstu bátarnir ekki róðra fyrr en eftir miðjan mánuð og er dauft yfir öllu hér nú sem að utgerð lýtur. Enginn maður lielzt kemur nti hingað til að stunda róðra. Áður var þó tal- ið, að hingað sæktu í atvinnuleit á hverri vertíð 800—1000 manns. Þó er útlit fyrir, að héðan gangi í vetnr r.i bátur. Líkur eru til að 20 bátar standi uppi hér í vetur vegna þess að sjómenn fást ekki út á þá. Við breytta tíma, þegar stórir og góðir bátar eru komnir í nær liverja verstöð á landinu, eru sjómenn þar og úr nærsveit- unum að sjálfsögðu á sínítm heimabátum. Þetta, og að víðast er nóg um atvinnu bæði hjá ein- staklingum og því opinbera or- sakar það, að verkafólk og eink- um sjómenn sækja liingað mjög lítið í atvinnuleit. Hér æt.ti að leggja áherzlu á að byggja verkamannabústaði í stór- um stíl bæði af byggingarfélag- inu og bæjarfélaginu, eins og gert er í mörgum öðrum kaup- stöðuni. Nægilegt húsnæði myndi laða fólk hingað. Það dýr- mætasta til lífvænlegrar afkomu í einu byggðarlagi er gott verka- fólk, fullkomin framleiðslutæki og örugg höfn. Margir eru nú svartsýnir hér um þessi áramót um framtíð F.yj- anna, en engin ástæða er til þess. Að tiltölu við íbúa er hér nú mjög mikið af vönduðum og mikilvirkum tækjum til fram- leiðslu sjávarafurða, bæði bátum og verksmiðjum og enginn vali er á, að Eyjarnar geta áfrani skipað fremsta sess meðal ver- stöðva landsins, ef forystan í bæj- ar- og átvinnumálum er nógu skelegg.

x

Víðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.