Víðir


Víðir - 03.03.1951, Qupperneq 1

Víðir - 03.03.1951, Qupperneq 1
XXIII. Reykjavík, laugardaginn 3. marz 1951. 9. tölublað. Olían og freðfiskurinn. innlend, en þeir hafa svo ná- Þorsknótin. Pétur Ottesen flytur eftir- farandi þingsályktunartillögu í Sameinuðu þingi: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um, að stjórn Fiskimálasjóðs kaupi í Noregi herpinót til þorskveiða í tilraunaskyni, og verði þær tilraunir fram- kvæmdar annað hvort á veg- um sjóðsins eða af öðrum, sem sjóðsstjórnin felur að hafa þær með höndum“. I greinargerð segir: „Einn þáttur hinnar nýju tækni á sviði fiskveiðanna er að nota herpinót til þorsk- veið'a. Á síðastliðnu ári hófu Norðmenn þorskveiðar með herpinót. Hafa tilraunir þeirra á þessu sviði borið þann ár- angur, að á þessu ári færast þeir mjög í aukana um þess- ar veiðar. Það er einkum við Lófót, sem þessi veiðiaðferð hefur verið stunduo, en þar hagar að' sumu leyti svipað til, að kunnugra manna sögn, um fiskigöngur og íiskveiða- aðstöðu og hér á vetrarver- tíðarsvæðunum við suðvest- urscrönd landsins. Það er t. d. alkunnugt, að þegar fiskur er í göngu meðfram suður- ströndinni, er hann þar í mjög þéttum torfum. Sama máli gegnir um ýmis önnur veiði- svæði, einkum þegar mikil sílisgegnd er. Það benda því allar líkur til þess, að veiði- aðferð þessi geti orðið íslend- ingum að miklu gagni, eins og komið er á daginn hjá frænd- um vorum, Norðmönnum. Það er þess vegna ekki áhorfs- mál fyrir íslendinga að gera tilraun með þessa veiðiaðferð og ganga úr skugga um not- hæfni hennar hér. Það liggja því rölc að því, að vakin sé athygli á þessari merkilegu nýjung. Málinu er með tillög- unni beint inn á þá braut, að ríkisstjórnin eigi frumkvæði að því, að hér verði hafizt handa og að Fiskimálasjóður beri kos'tnað af tilraunum þessum, en það er eitt af hlut- verkum hans að standa undir tilraunum með nýjar veiðiað- ferðir. Þá er ráð fyrir því gert, að stjórn Fiskimálasjóðs hafi með höndum framkvæmd þessa máls, annað hvort á eig- in spýtur eða feli liana öðr- um“. Fullkomnasta dreifingar- kerfi.á erlendri vöru hér er á olíunni. A síðasta aldarfjórð- ungi hefur verið varið liér tugum miljóna króna til að byggja stórar olíustöðvar, skip og bifreiðir til innan- landsflntninga og benzín- og olíugeyma við verzlanir og íbúðarhús um allt land. Nýj- ustu og fullkomnustu af- greiðslutæki, sem völ er á í heiminum, hafa verið sett upp á Keflavíkurflugvellin- um. Og enn er verið að bvggja nýjar geysistórar olíustöðvar á Örfirisey og Kletti. Sjálf- sagt kostar olíudreifingarkerf- ið í landinu ekki undir 200 milj. króna, og er upphæð þessi þó alveg nefnd út í blá- inn. Þegar Shellstöðin var byggð í Skerjafirðinum, þótti hún svo stór, að þar hlyti að leynast bak við dulbúin birgðastöð fyrir her, og hefur þó Shellstöðin sennijega verið stækkuð nokkuð síðan. Sýnir þetta, hve þróun þessara mála hefur farið langt fratn úr því, sem almenningur gat gert sér í hugarlund, og nú eru allir löngu hættir að brjóta heilann um, hvort framkvæmdir olíufélaganna svara til þarfa landsmanna eða ekki. En þegar jafnmikið fjármagn er lagt í dreifingu olíunnar í landi, sem telur að- eins um 140.000 íbúa, þó aldrei nema Islendingar séu mikil fiskveiðiþjóð, hversu mikið fé er þá ekki íagt í dreifingarkerfin í stóru lönd- unum, ef það nemur hér yfir 1000 krónum á hvern íbúa? Olían hefur lengi verið sú vörutegund í heiminum, sem framleiðendur og sölufélög hafa lagt sig mest fram um að' selja. Sagan um Breta, sem áttu að hafa gefið Kínverjum miljónir olíulampa, þegar þeir voru að ryðja sölunni brant í Kína, talar sínu máli. Ekk- ert hefur verið tilsparað, hvorki stjórnmálaleg áhrif né fé. Afleiðingin hefur líka orð- ið sú, að engin vara er seld í heiminum, sem hefur jafn- sterka söluaðstöðu og olían. Geta Islendingar lært nokk- uð af söluaðferðum olíufram- leiðendanna við sölu á fram- leiðsluvörum sínum og þá einkum fiskinum? Það væri styrkur fyrir íslendinga í sam- keppni við aðrar þjóðir að geta fylgt fiskinum lengra eft- ir en nú er gert, sem oft er ekki lengra en um borð í skip í íslenzlcri höfn, þar'sem þeir geta kannske ekki einu sinni ráðið því, hvort varan er flutt með þeirra eigin skipum eða annarra þjóða, þegar hún er seld fob. Margir leggja lítið upp úr því að fylgja vörunni sem lengst eftir til neytendanna og benda á, að fyrstu pening- ar, séu beztu peningar, og það sé áhættuminnst að selja vöruna strax við landstein- ana, fob, eða í höfn neyzlu- landsins, cif. Þeir benda líka á, að það sé oft óvinsælt, að erlendir framleiðendur séu að fylgja vörunni eftir í neyzlu- landinu, og sé það illa séð af þarlendum kaupsýslumönn- um. En hverjir væru þá kost- irnir og hvernig stendur á, að þeir áðilar, sem eru komnir lengst í að skipuleggja sölu framleiðsluvara sinna, nota þetta fyrirkomulag. Við það að fylgja vörunni sem lengst eftir til neytend- anna vinnst einkum tvennt. Framleiðandinn hefur meira vald yfir markaðinum, hann hefur öruggari sölu, þegar hann hefur marga viðskipta- menn til þess að byggja á, þar sem hann hefur náð til neyt- endanna, heldur en þegar hann er háður fáum innflytj- endum, sem ganga þá stund- um allir í einn félagsskap til þess að styrkja aðstöðu sína. Þeir geta þá haft það til að kippa að sér hendinni og beina viðskiptunum annað, ef þeim býður svo við að horfa. I öðru lagi er framleiðandinn minna háður verðsveiflum, þegar hann á aðeins við neyt- endurna. Og ef það er slík vara, sem þarf mikið dreifing- arkerfi við söluna á, eins og t. d. olían, verður honum ekki bolað af markaðinum af nýj- um keppinautum nema með miklu fjármagni. Það er hverju orði sannara, að það er illa séð, þegar er- lendir framleiðendur gerast kaupsýslumenp í neyzluland- inu. Því er það, að erlendir framleiðendur stofna oft fé- lög, sem eru meira eða minna ið samstarf við. Neytandinn gerir yfirleitt ekki neinn greinarmun á, hvernig sölunni er fyrirkomið, hvað þetta snertir. Sú framleiðsluvara íslend- inga, sem næst lægi við að fylgja eftir á erlendum mark- aði, er frosni fiskurinn. Það er líkt farið með hann og olí- una, að hann verður ekki seldur nema með dýru dreif- ingarkerfi. Hann verður t. d. ekki fluttur nema í sérstökum skipum. I hafnarborgunum verður að geyma hann í dýr- um frystihúsum, sem haldið geta miklu frosti. Þá verður að flytja hann í kælivögnum nema rétt á milli húsa, og loks verður að geyma hann í frystiklefum í verzlununum og á heimilunum í ísskápum, sé hans ekki neytt strax. Ollu er þessu svipað háttað og með olíuna. Því er það, að útilokað er að selja frosinn fisk, þar sem þessi skilyrði eru ekki fyrir hendi, og það er injög víða. Þar sem þannig háttar til, er bygging dreif- ingarkerfis mjög mikilvæg til þess að afla markaðar. Það er langt síðan frysti- húsaeigendum hér á landi varð Ijós sá ávinningur, sem gat verið fólginn í því að byggja eigið dreifingarkerfi, annað hvort á eigin spýtur eða i félagi við fyrirtæki eða menn í markaðslöndunum, og þá fyrst og fremst þar, sem ekkert dreifingarkerfi var íyrir hendi, en sala líkleg, en það var og er nóg af slíkum Framh. á S. síðu. 22. febr. Kaldbakur, Akureyri 22 22. — Maí, Ifafnarfirði 22 23. — Hallveig Fróðad., Rv. 22 23. — Hvalfell, Reykjavík 24 23. — Neptúnus, Rv* 22 23. — Bjarnarey, Ve.** 25 24. — Skúli Magnússon, Rv. 22 24. — Goðanes, Neskaupst. 27. — Keflvíkingur, Kv.*** 24 27. — Jón forseti. Rv.**** 29 28. — Júlí, Hafnarfirði Vélbátar: 22. — Súlan, Akureyri 26. — Víkingur, Neskaupst. * Neptúnus: 73 lestir óseldar ** Bjarunrey: 58 lestir óseldar. Athyglisverð þingsályktun. Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu um jöfnunarverð á olíu og ben- zíni á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara fram ýtarlega athugun á verð- laginu á olíu og benzíni, sem flutt er til landsins, með það fyrir auguin að lækka álagn- inguna og ákveða jöfnunar- verð á þeim vörum um land allt“. Um salffisframleiðsluna. Á milli heimsófriðanna (1920—1939) nam fram- leiðsla saltfisks 259.000 lest- um að meðaltali á ári miðað við þurrfisk. Fjögur lönd, Frakkland, ís- land, Nýfundnaland og Nor- egur, framleiddu mestan hluta saltfisksins. Helztu neytendurnir voru í latnesku löndunum og Suð- ur-Ameríku. Mikil truflun komst á salt- fiskframleiðsluna. á síðari styrjaldarárunum, svo að að- eins um Ys hluti af fyrra framleiðslumagni var t. d. framleiddur á árunum 1943 og 1944. Árið 1947 var þó saltfisk- framleiðslan komin upp í 253.000 lestir, sem var held- ur meira en árið 1938. Hæringur. Það er ýmislegt í deiglunni í sambandi við Hæring, og er lítill vafi á, að liann verður vel þeginn, ef skipin fara al- mennt að snúa sér að veiðum fvrir innlendan markað og eins, ef almennt verður gert út á síld í sumar. Aberdeen 115 £3007 — 1.20 Grinisby 226 £ 6660 — 1.35 Grimsbv 207 £6666 — 1.45 Grimsby 2Ó0 £ 6546 — 1.50 Hull 181 £ 5775 — 1.45 Grimsby 227 £6300 — 1.25 Grimsby 214 £ 6681 — 1.40 Grimsby 123 £4173 — 1.54 Grimsby 205 £ 6676 — 1.50 Hull 202 £5917 — 1.35 Fleetwood 111 £ 2956 — 1.20 Aberdeen 28 £ 654 — 1.30 *** Keflvíkingur: 145 lestir óseldar. **** Jón forseti: 70 lestir óseldar. ÍSFISKSÖLUR. Dagar milli Snludagur: Skipsnafn: sölu: Sölustaður: Tyestir: Meðalv. kg. Fleetwood 198 £4840 kr. 1.10

x

Víðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.