Víðir - 17.03.1951, Blaðsíða 4
Þeir, sem vilja íylgjast
vel meS, lesa V í D I.
7HÖ
ii*
VÍÐIR flytur efni, sem
ekki er annars staðar.
Gæftir
voru st.irðar, þó reru bátar
yfirleitt flesta dagana. Vind-
ur var við norður og oft hvass
og stundum mikið frost og
leiðinleg sjóveð’ur.
Aflabrögð
hafa verið heldur rýr á lín-
una, langalgengast um 5 lest-
ir í róðri. Dagur fékk þó einn
daginn tnV2 lest. En aflinn
komst líka niður í 2 lestir.
IJtilegubátar, sem veiða með
línu, komu inn með afla sinn
í vikunni, Freydís með 30 og
Ágúsl Þórarinsson einnig með
30 lestir.
Togbátarnir hafa aflað
heldur vel, Bragi kom t. d.
einn daginn með 311/,. Icst,
Marz með 18 lestir og Hvítá
með 10 lestir.
Toaararnir.
Tíð hefur verið slæm hjá
togurunum, norðan og norð-
austanáttir og þar af leiðandi
lítill afli.
Fáir eða engir togarar hafa
verið á Halanum undanfarið
vegna veðurlagsins, og hafa
þeir þá einkum verið við Jök-
ulinn og á Eldeyjar- og Sel-
vogsbankanum.
Þegar togararnir eru að
veiða fvrir frystihúsin og
verksmiðjumar er allt hirt. Á
ísfiskveiðum er karfanum og
ufsanum fleygt, ef góður afli
er, því að hann hentar ekki
fyrir brezka markaðinn. En
fyrir þýzka markaðinn er það
ágætur fiskur.
Markaðurinn hefur verið
góður þessa viku. Sérstaklega
var hann ágætur um miðja
vikuna.
18 togarar eru nú á veið-
um fyrir frystihiis og verh-
sm.iðjur, og er staðurinn, sem
skipið leggur upp á, í svigum
fyrir aftan nafn skipsins:
Akurey (Rvík), Bjarni Ól-
afsson (Akranes), Biarni ridd-
ari fHafnarfj.), EgiII Skalla-
grímsson (Rvík, eingöngu
Faxi), Fylkir (Hafnárfj.)
Hallveig Fróðadóttir (Rvík),
Helgafell (Rvík), Hvalfell
(Hafnarfj.), Tngólfur Arnar-
son (Rvík, eingöngu Faxi),
ísborg (ísaf.), Júlí (Hafnar-
fj.), Júní (Hafnarfj.), Keflvík-
ingur (Keflavík), Maí (Hafn-
arfj.), RöðuII (Hafnarfj.),
Skúli Magnússon (Rvík),
Tryggvi gamli (Rvík) og Úr-
anus (Rvík).
10 togarar veið'a í ís:
Askur (kemur frá Bretlandi
á morgun), F.lliðaey (selur í
Bretlandi á mánudag), Geir
(lcemur í dag frá Bretlandi),
Goðanes (selur 2. í páskum),
Harðbakur (fer í dag til Bret-
lands), Jón forseti (fer til
j Bretlands í dag), Jón Þorláks-
j son (væntanlegur frá Bret-
landi á mánudag), Jörundur
(kom í gær frá Bretlandi),
j Karlsefni ffer í dag á ísfisk-
veiðar) og Marz (selur í dag).
8 togarar eru á saltfiskveið-
urn:
B'arnarey. Egill rauði, Ell-
iði. Tsólfur, Kaldbakur, Nep-
túnus, Ólafur Jóhannesson og
Þorsteinn Tngólfsson.
Garðar Þorsteinsson er að
flytja til Siglufjarðar, og Sval-
bakur er í viðgerð á Akureyri.
V estmannaeyjar.
Svo má heita, að fiskilaust
sé á línu og í net. Algengast-
ur afli hjá línu- og netabát-
um er 2—3 lestir, fyrir kem-
ur, að einstaka bátur fær upp
í 6 lestir, en sumir fá líka
helzt ekkert. Netabátar eru
rétt að byrja að verða varir
við fisk í djúpinu.
Afli er sæmilegur í botn-
vörpu. Skjöldur kom inn á
fimmtudaginn með 40 lestir
og rétt fyrir helgina með aðr-
ar 40 lestir, en þetta er líka
það mesta.
T dragnótina hefur verið'
sæmilegur afli, og fékk einn
bátur 8 lestir í vikunni.
Lítið hefur verið um loðnu-
veiðar, enda enginn markaður
fyrir hana, þegar flestir línu-
bátar hafa nú tekið net eða
botnvörpu. Fiskur virðist
ekki hafa gengið eins og' oft
áður með loðnunni.
verið 3—3V2 lest í róðri og
það niður í ekki neitt.
Grindvíkingur er aflahæst-
ur með um 265 lestir eftir
róðurinn á miðvikudaginn.
Hann hefur skarað fram úr
bæði á línunni og netunum.
Afli er mjög misjafn og lítið
hjá þeim lægstu.
Loð'na hefur aðallega veiðzt
í Grindavíkursjónum, og hafa
loðnubátar úr Keflavík og
Hafnarfirði legið við í Grinda-
vík og loðnan flutt á bílum
í verstöðvamar. Bátarnir í
Grindavík beittu loðnu núna
í vikunni, en fengu ekkert á
hana og sízt betra en á síld-
ina.
Stokksevri.
Vertíðin hefur verið léleg,
það sem af er. Ægir, sem er
24 lesta bátur, er með hæst-
an afla, 1°0 lestir eftir mið-
vikudagsróð'urinn. Næstur er
Hólmsteinn með um 80 lestir.
3 aðrir bátar róa frá Stokks-
eyri. og er aflinn 50, 60 og 70
lestir.
Afli hefur verið mjög mis-
jafn síðustu dagana, stundum
ekkert, en aðra daga ágætt.
Ægir fékk t.. d. á mánudag-
inn 20 lestir og Hólmsteinn
16 lestir af óslægðum fiski.
Þeir eru með þorskanet.
Fiskurinn er keyptur ó-
slægður, bæði af frystihúsinu
og eigendum bátanna, sem
salta sjálfir, og eru greiddir
84 aurar fyrir kg. af fiskin-
um þannig. Um helmingur af
aflanum hefur verið frystur
og hinn helmingurinn saltað-
ur.
Grindavík.
Afli hefur verið mjög treg-
ur í Grindavík síðustu daga.
Allir bátar þar eru með net
nema 2 bátar, sem eru með
bnu, en það hefur elcki verið
neitt betra hjá þeim. Hjá
skástu bátunum hefur aflinn
SandgerSi.
Aflahæsti báturinn er
Mummi, og hafði hann eftir
miðvikudagsróðurinn 263
lestir og 24.000 lítra af lifur
í 41 róðri.
Annar er Pétur Jónsson
með 2.50 lestir og 21.000 lítra
af lifur í 43 róð'rum.
Þriðji er Muninn II. með
235 lestir og 20.700 lítra af
lifur í 36 róðrum.
Fjórði er Víkingur með 225
lestir og 20.000 lítra af lifur
í 37 róðrum.
Heildaraflinn er 3500 lestir.
Meðalafli á bát er um 150
lestir, og var meðalaflinn um
100 lestum hærri í fyrra.
T marzmánuði hefur verið
róið flesta daga, þó hefur ver-
ið stormasamt og hörkur.
Beitt hefur verið nær ein-
göngu loðnu, síð'an hún fór að
veiðast 5. marz.
Margir loðnubátar hafa leg-
ið við í Sandgerði og stundað
þaðan loðnuveiðarnar. Fram-
an af vikunni gátu þeir lítið
athafnað sig, en öfluðu þó nóg
í beitu, en á fimmtudaginn
var ágæt veiði hjá þeim.
Tilraun hefur verið' gerð
með að hraðfrysta loðnu til
beitu, sem ekki hefur verið
reynt áður, en ekki er enn
byrjað að nota hana.
Það lítur illa út með ver-
tíðina. Virðist vera alveg
fiskilaust á grunnmiðum. Á
miðvikudaginn lögð'u t. d. 8
bátar á Hafnarleimum, sem
hefur verið ágætt fiskisvæði,
en þeir fengu 1%—4 lestir.
Bátarnir hafa aðallega haldið
sig á Eldeyjarbankanum, þeg-
ar þangað hefur gefið.
Nú verða sjómenn ekki var-
ir við togara á heimamiðun-
um eða Eldeyjarbanka, en
þar hefur alltaf verið fjöldi af
þeim undanfarnar vertíðir,
og bendir það til þess, að fiski-
laust sé.
loðnu, og hefur hún yfirleitt
verið nóg. Um miðja vikuna
tregaðist loð'nan í Grindavík-
ursjónum, og reyndu bátarnir
þá á Hafnarleirnum fyrir
vestan Nesið og fengu þar
góðan afla.
Aflahæstur er Keflvíking-
ur, og hafði eftir miðviku-
dagsróðurinn 240 lestir. Næst-
ur er Björgvin með 8—10
lesta minni afla.
inn, áður en hann kemst þang-
að. Á Halanum og djúpmið-
unum í landgrunnshallanum
fra Horni að Látrabjargi eru
íslenzku togararnir allir og
fjöldi af brezkum togurum
nálega allan ársins hring jg’
Akranes.
Heildarafli eftir miðviku-
dagsróðurinn var 1970 lestir
í 315 sjóferð'um, og höfðu afl-
azt síðan um síðustu mánaða-
mót 864 lestir.
Hæstu bátarnir eru Ás-
mundur og Sigurfari með um
200 lestir, munar aðeins
nokkrum kg. á þeim.
Hæsti róðurinn í vikunni
var hjá Svan á miðvikudag-
inn, 18*4 lest.
Sjómenn telja, að það sé
engin fiskigengd. Fiskurinn er
á ferð og flugi, þótt ágætis-
afli sé einhvers staðar í dag,
er þar oft ekkert á morgun.
13. marz var aflahæsti dag-
urinn á vertíðinni í fyrra, og
fengu þá 18 bátar 185 lestir.
9. marz var aflahæsti dag-
urinn í ár, og fengu þá 14 bát-
ar 173 lestir.
5. marz var almennt róið,
og beitt síld, og fengu þá 12
bátar 95 lestir.
6. marz kom loðnan. Dag-
inn eftir var beitt bæði síld
og loðnu, en 8. marz var beitt
eingöngu loðnu, og fen,gu þá
15 bátar 146 lestir.
Aflinn virtist líka vera
miklu meiri árið áður, þegar
farið var að beita loðnunni.
4. marz var almennt róið
og beitt síld, og fengu þá 18
bátar 66 lestir (að vísu var
ekki gott sjóveður).
8. marz kom svo loðnan, og
9. marz reru 18 bátar með lóð-
ina beitta með loð'nu og fengu
samtals 163 lestir.
svo þýzkir togarar að ?
Ef fáeinar bröndur ko
gegnum fylkingarnar u
grunnið, frétta togar
fljótt af því og eru um^
komnir til að hirða þær.
Milli jóla og nýárs fe; gu
Vestfjarðabátarnir sæmileg m
afla 30—40 mílur út af Deild.
Þeir töluðu eitthvað óvarlega
í talstöðvarnar um aflabrögð-
in. Nokkru síðar voru 30—40
togarar komnir á miðin. ,
Á stríðsárunum var góður
afli þar um slóðir. Þá voru
aðeins íslenzku togararnir á
miðunum og mjög fiskisælt
við tundurduflasvæðið. Þeir,
sem lögðu lóðir sínar á hættu-
svæðin, öfluðu vel. Of mikið
var þó að því gert.
Keflavík.
Þar liafa verið rok, en samt
róið flesta dagana. Afli er á-
kaflega tregur, frá 2 og upp í
10 lestir, algengast er 4—5
lestir í róðri.
Bátarnir beita eingöngu
Grundarfjörður.
Gæftir voru góðar þar til
seinni hluta febrúar, en afli
var yfirleitt mjög tregur. 4
bátar ganga, allir með línu.
I janúar og febrúar voru bát-
arnir búnir að fá alls 512 lest-
ir. Aflahæstur var þá Grund-
firðingur með 143 lestir í 33
róðrum.
Aflinn hefur allur verið
frystur að undantekinni keilu
og löngu, sem er söltuð og
hert. Hraðfrystihúsið var bú-
ið að frysta 6500 lcassa í febr-
úarlok. (Er þetta mikil fiyst-
ing borið' saman við flest önn-
ur frystihús).
Fiskllaus mið.
Það er engu líkara en togar-
arnir séu búnir að eyðileggja
grunnmiðin fyrir Vestfjörð-
um. Þar kemur aldrei orðið
fiskur, af því að hann er tek-
Landqrunnið fyrir
íslendinga.
Það er athyglisvert fyi'ir
alla hugsandi menn, hvernig
farið hefur um fiskimiðin fyr-
ir Vestfiörðum. Hvar verður
næst ördevða. Standast noklc-
ur fiskimið til lengdar þá
gegndarlausu veiði, sem nú er
rekin við strendur Tslands. Og
hversu byggilegt verður í
þessu landi, þegar fiskurinn
hættir að ganga á hin fornu
fiskimið.
Víkkun landhelginnar fyrir
Norðuvhmdi var mikilvæg,
og menn óska þess almennt,
að í haust, þegar samningur-
inn við Breta rennur út, verði
landhelgin um allt land færð
út, svo að hún verði alls stað-
ar 4 mílur.
Og sjálfsagt verður látið
sitja við 4 mílna landhelgi í
bili, ef telcst að fá hana við-
urlcennda. En ekki má missa
sjónar á því að frið'a verður
landgriínnið fyrir ágangi er-
lendra veiðiskipa, eins og
margar aðrar þjóðir hafa þeg-
ar gert.
Togaraútgerð.
Það, sem hér er sagt um
víkkun landhelginnar, ber þó
engan veginn að skilja sem
svo, að það sé sagt til höfuðs
íslenzkri togaraútgerð'. Öllum
landsmönnum er ljóst mikil-
vægi togaranna fyrir íslenzk-
an þjóðarbúskap, þó að þeir
vilji reyna að vernda fiskimið-
in fyrir sig og komandi kyn-
slóðir.
Ræðið við kunningja
yklcar og vini um blað-
ið. Sendið því nöfn
þeirra, sem hafa sömu
áhugamál og blaðið
ræðir.