Víðir - 19.05.1951, Page 1
XXIII.
Reykjavík, laugardaginn 19. maí 19.51.
19. tölublað.
Fiskirannsóknir
og vorvertíð.
tjóni við þessar tilraunir og
þá fyrst og fremst með því
að greiða það', sem á kynni
að vanta, að hefðist fyrir
tryggingu skipverja. Hvar er
hlutverk Fiskimálasjóðs, ef
ekki hér. Þeir menn, sem þar
stjórna, mega ekki dotta á
\rerðinum.
Hér eru einnig margháttuð
verkef'ni fyrir fiskifræðingana.
Það væri ekki of mikið, þó
að þjóð eins og íslendingar,
sem á svo mikið undir gjöful-
leik hafsins, hefði alltaf skip
í hafrannsóknum eins og
Norðmenn. Það myndi áreið-
anlega koma margfalt aftur.
Skatttekjum þjóðarinnar er
áreiðanlega varið í einhvern
meiri óþarfa.
Lofotveiðunum lokið. Finnmerkur-
veiðarnar taka við.
rödd frá þeim sömu, sem ]ýs-
Aflas-bergmálsdýpfarmælar.
Getum útvegað þessa
þekktu dýptarmæla með
stuttum fyrirvara.
Verkfræðingur er vænt-
anlegur frá verksmiðj-
unni í næstu viku til að
setja niður fvrstu mæl-
ana.
Veitir liann allar frek-
ari upplýsingar á skrif-
stofu vorri.
Jónsson & Júlíusson
Garðastræti 2, Reykjavík. Sími 5480.
Nú eru bátarnir, sem stund-
að hafa línuveiðar, að hætta,
og nú liggur ekki annað fyrir
en þeir liggi, þangað til farið
verður norður til síldveiða
eftir hálfan annan mánuð eða
á reknetaveið'ar hér sunnan-
lands eftir tvo mánuði. Þeir
bátar, sem ætla sér á lúðu-
veiðar, eru sjálfsagt flestir
byrjaðir á þeim.
Hér er um allmikinn flota
að ræða, sem gæti aflað mik-
ið, ef fisk væri að fá. Hér áð-
ur fyrr var lialdið áfram að
veiða með línu allt frarn und-
ir Jónsmessu, eð'a rúman mán-
uð eftir að vetrarvertíðinni
lauk. Aflaðist þá oft vel. En
nú er eins og enginn vilji leng-
ur sinna þessum veiðum, enda
sjálfsagt ekki mikið- að hafa.
Þó hel'nr verið sæmilegur afli
á línu alveg fram undir þetta.
En er ekki liægt að finna
auðugri fiskimið lengra i
burtu? Bátarnir eru nú orðnir
svo stórir og ganggóðir, að
það' ætti að vera vel vinnandi
vegur að sækja þó nokkuð
langt á þeim um þetta leyti
árs. Hvað þarf t. d. að fara
langt vestur, til þess að kom-
ast þar í fisk? Ilryggur liggur
frá Vestfjörðum vestur til
Grænlands. Er engan fisk að
hafa á því grunni nema á svo-
nefndum Halamiðum. Tunga
liggur einnig vestur af
Reykjanesi langt vestur í haf,
þar sem er ekki ýkja mikið
dýpi. Er elcki unnt að veiða
þarna fisk? Hvernig er líka
með hin eldri mið núna út af
Jökli og á Selvogsbanka.
Gætu útilegubátar ekki fengið
sæmilegan afla á þessum slóð'-
um?
I fyn*a tóku íslendingar
fyrst fyrir alvöru að liagnýta
sér ný lúðumið, eftir að út-
lendingar höfðu áratugum
saman stundað þau, og eru
þó sjálfsagt ýmis þein*a ó-
könnuð enn af fslendingum,
eins og út af Vestfjörðum.
Veiddu Ameríkanar þar ekki
mikla lúðu á sínum tíma?
Þannig geta víða legið ónot-
uð tækifæri til þess að ausa
auðlegð' úr djúpum hafsins.
Þá er það síldin. Einn bátur
stundar nú reknetaveiðar og
aflar vel, en enginn markaður
er talinn fyrir þessa síld nema
sem beita fyrir þá, er veiða
lúðu, og ]jað er takmarkað.
Síldin er ekki nógu feit, til
þess að hægt sé að bræða
hana og gefa það verð fyrir
hana, sem þarf, til þess að' út-
gerðin beri sig. '*
Fyrir Norðurlandi er síldin
mjög misjöfn að fitumagni.
Hún er feitari eftir því sem
vestar dregnr. Getur þessu
ekki verið eins háttað með
síldina sunnanlands, ýð hún
sé misfeit, eftir því hvar hún
veiðist. „Haglendið“ getur
verið misjafnt, átan meiri í
sjónum á einum staðnum en
öðrum. En hvað er gert til
þess að kanna þetta? Það er
látið sitja við' veiðar þessa
eina báts, sem hefur vita-
skuld önnur sjónarmið en að
kanna veiðisvæðin fyrir allan
flotann.
Þá má minnast hér enn á
eitt, sem áreiðanlega býr í
mikil auðlegð fyrir lands-
menn, ef þeir fást til að hag-
nýta sér það, og það' eru
rækjuveiðar. Það er nokkurn
veginn vissa fyrir því, að á
milli Grænlands og íslands
eru mikil rækjumið. Rækjur
eru að verða stór útflutning-
ur hjá Grænlendingum. Þetta
er mjög dýr vara alls staðar í
heiminum og veitir mikla at-
vinnu í landi.
Hér eru mikil verkefni fyr-
ir útgerðina. Núna þyrfti að
láta báta reyna fyrir þorsk
með línu á nýjum og gömlum
miðum og einkum þó nýjum
og vita, hvort ekki væri hægt
að framlengja með því vertíð’-
ina fram að síld. Þá þarf að
láta báta kanna svæði, þar
sem vorsíld fæst og vita, hvort
hún er ekki misfeit og hægt
væri einhvers staðar að hefja
veiðar, þar sem lnin væri það
feit, að viðunandi verð feng-
ist fyrir hana. En það er ekki
von, að einstakir útgerð'ar-
menn geti lagt hér fé í rann-
sóknir, sem vafasamt er, að
beri árangur. Það þarf að fá
þrjá til fjóra báta og góða
fiskimenn til þess að leita að
nýjum fiskimiðum og tryggja
þeim, að þeir verði eklri fyi'ir
Eftirlitinu við Lófóten lauk
25. apríl, og þá var í raun og
veru vetrarvertíðinni þar lok-
ið. Þegar þessum veiðúm var
að' ljúka að þessu sinni, kvein-
aði margur og ikvartaði, bæði
manna á milli °g eins í blöð-
unum. Aðallega voru það þeir,
sem voi*u með handfærin og
línuna, sem báru sig illa og
þurí'tu að létta á sinninu, og
þá einkum hella sér yfh* þá,
sem voru með næturnar, sem
þeir ásökuðu um að vera or-
sök þess, að fiskveiðai*nar
gengu ekki sem bezt hjá þeim.
Sumir lýsa nótaveiðunum
svo sem þær stxáð'i á rnóti lög-
málum náttúrunnar, sem fyrr
eða seinna hljóti að enda með
skelfingu, og eigi fiskinæturn-
ar að verða framtíðar veiðar-
færi við Lófóten, vei’ði að
flytja minnst. 10.000 fiski-
menn, sem nú stundi þar fisk-
veiðar, yfir í aðrar atvinnu-
greinar. Aðrir geta um þá
í-ingulreið, sem komizt hafi
af stað við notkun þessa veið-
arfæiás, og aðrir segja, að eigi
fiskinótin að vera í notkun
við Lófóten, verði að minnsta
kosti að heimta, að hún fái
sitt eigið svæði eins og netin
og línan.
í smáblöð'unum úti á land-
inu þarna noi*ður frá er alltaf
verið að skrifa um þessi mál,
og beiskjan virðist vera mikil.
Fiskimennirnir, sem voru með
handfærin, kenna nótinni og
bergm álsdýptarmælinu m um,
að ufsinn hefur ekki viljað
taka hjá þeim í ár. En það
heyrist þó einnig við, og við
ir meira jafnvægi og sem við-
urkennir fúslega hina framúr-
skarandi eiginleika fiskinótar-
innar. Og ef þetta sé þróunin,
þá sé að taka því, og þeir
verði að fá sér nætur, annað'
hvort með því að slá sér sam-
an eða ríkið veiti þeim að-
stoð til þess að eignast nætur.
„Við megum bara ekki berja
höfðinu við steininn og gef-
ast upp“. Einn þeirra héldur
því fram, að ef byrjað' hefði
verið að veiða með nót fyrir
30 árum frá Finnmörkinni og
Lófóten, þá hefði verið veidd-
ur svo milrill fiskur þar fyrir
brezkan markað, að ekki einn
einasti enskur togari hefði nú
verið þar til að keppa við
Norðmenn á þeirra eigin fiski-
mið'uin. Jæja, ætli það nú?
Skoðanirnar eru skiptar og
misjöfnu haldið fram. Berg-
málsdýptarmælirinn hefur
ekki hvað sízt orðið fyrir
barðinu á þeim, sem hafa orð-
ið út úr því: Aflabresturinn
stafar af þvj, að rafmagns-
straumur frá bergmálsdýptar-
mælinum fer niður í fiskitorf-
urnar og gerir fiskinn ruglað-
an og firrir hann matarlyst-
inni. En þegar þessi rök voru
borin á borð fyrir ganrian
handfærafiskimann í Stam-
sund, spýtti hann uin tönn og
sagði: „Nei, hættið' nú, strák-
ar, við skulum nú ekki verða
eins ruglaðir og þorskurinn“.
Aflamagnið við Lófóten
náði sennilega 120.000 lestum
áður en lauk. Margur skip-
stjórinn fékk það tvöfalda á
við það, sem liann fékk í
fyrra En aflinn var misjafn,
sem bezt sést á því, að þeir,
sem voru með næturnar,
fengu 59% af aflanum, neta-
bátarnir 19% og línu- og
handfærabátarnir 11% livor-
ir. Á línu- og handfæraveið-
unum er þó skipt í flesLa
staði, og er þá auðskilið, að.
allir hiutirnir hafa eklri verið
stórir. Mestan afla hafði bát-
ur, sem var með nót, 390 lest-
ir. Ekki blöskrar mönnum
það sjálfsagt hér, þegar afla-
hæsti báturinn er með 668
lestir. Var hann með net. Að
vísu var hann mun hæstur yf-
ir flotann.
í lok vertíðarinnar, þegar
aflinn fór að minnka, fóru
fiskkaupmennirnir að bjóða í
fiskinn eins og á uppboði, og
fór hann upp í 60 aura norska
kg„ eða sem svarar ísl. kr.
1.37. Á það sennilega við
hausaðan fisk og slægðan. Nú
hefur verðið fallið aftur niður
í það venjulega, um 52 aura
norska kg.
Það er mikil þátttaka í
Finnmerkurveiðinni, sem nú
er nýbyrjuð.
Verð á hákarlalifur er mjög
hátt í Noregi eða sem svarar
3 krónum ísl. líterinn og jafn-
vel enn hærra verð. Það‘ er
búizt við, að margir verði til
þess að stunda hákarlaveiðar.
ÍSFISKSÖLUR:
Dagar milli
Söludagur: Skipsnajn: sölu: Sölust.: Lestir: Meðalv.kg.:
12. liiaí.. Guir, Reykjavik 21 ' Grlmsby 192 £ 6725 kr. 1.60