Víðir - 26.05.1951, Page 4
V í Ð IR flytur efni, sem
ekki er annars staðar.
i
Þeir. sem vilja fylgjast
vel með, lesa V í ÐI.
|
jtf
m
Gaeftir
hafa verið ágætar, hæg
austanatt.
Aflabrögð.
Afli hefur verið ágætur í
grunnflóanum og miklu meiri
en í fyrra og' fleiri undanfarin
ár, hvað lengi, sem þetta
helzt, en útlitið' er gott eins
og er.
Þessir bátar hafa’ m. a.
komið inn með afla sinn í vik-
unni: Hafdís með 13 lestir, ís-
lendingur 7, Hermóður 4,
Bragi 29, Otur 25, Þristur 4,
Stígandi (Ólafsfirði) 9, Egg-
ert Ólafsson 5%, Siglunesið
11%, Arinbjörn 16, Drífa 9
og Stella (Austfj.) 4.
Skógarfoss fékk í dragnót-
ina 3 lestir og Hilmir 1 % lest.
Var þetta útdrátturinn.
Bátar, sem eru á lúðuveið-
um, hafa yfirleitt ekki komið
inn og vafasamt, að þeir komi
mikið inn fvrr en eftir helgina.
Togararnir.
Aflabrögðin hafa verið'
mjög treg undanfarið hjá
þeim, sem liafa verið á þorsk-
veiðum, og karfinn hefur ver-
ið tregari seinustu dagana.
Tíðin hefur verið góð.
Einir 4 togarar eru nú á
ísfiskveiðum, Maí og Jón for-
seti, sem eru á heimleið, og
Egill Skallagrímsson og Éll-
iðaey, sem eru á útleið. Egill
selur á mánudag og Elliðaey
á þriðjudag. Allir að'rir togar-
ar eru á veiðum fyrir heima-
markað.
Það er hugsanlegt, að
þýzku togararnir fari á síld-
veiðar með fyrra móti og ís-
lendingar geti þá byrjað að
sigla til Þýzkalands fyrr en
1. ágúst, sem gert hefur verið
rgð fyrir, ef þeir þá kæra sig
um það.
Salan hjá Jóni forseta var
góð með tilliti til þess, að'
hann var með um 1000 kítt
af svokölluðu rusli. Þorskur-
inn seldist á 62—66 shillinga,
ýsan á 100 sh., ufsinn á 20
sh. og steinbítur á 30 sh.
V estmannaey j ar.
Norðaustanstormur hefur
verið þessa viku og lítið hægt
fið komast á sjó. Afli var á-
gætur fram að síðustu helgi,
en sjómenn óttast, að' fiskur
hafi tvístrazt í austanrmnb-
unni, þó kom Suðureyjan inn
með 15 lestir eftir 1—2 daga
útivist.
Hjá dragnótabátunum var
ágætisafli, 2—4 lestir vfir
daginn. Koli sést varla í afl-
anum. Ilefur mjög lítið geng-
ið af þykkvalúru í vor.
Lítið heyrist minnzt á að
fara norður, undanfarið liafa
íarið einir 18 bátar.
Ekki er enn búið að taka
saman vertíðaraflann. Tefur
það mikið fyrir, að' sumt af
fiskinum ‘var vegið með slóg-
inu, og þarf að breyta þung-
anum yfir í slægðan fisk. Mik-
ill mismunur er á fiskinum
slægðum og óslægðurn eftir
fisktegundum og eins á hvaða
tíma hann var veiddur og í
hvaða veiðarfæri, eða frá
5l/2% upp í 30%, lúða t. d.
■ 5%%—7%%. Þorskurinn frá
18.2% upp í 30%. í sílisfisk-
inum undan Sandi var slógið
30%, í netafiskinum í apríl
var það 22—24%, í Jínufisk-
inum var það 18—19%.
Grijidavík.
Allir bátar eru nú hættir
þorskveiðum, en tveir eru
byrjaðir að veiða lúðu.
Hæsti báturinn á vetrar-
vertíðinni var Grindvíkingur,
og fékk hann 580 lestir í 69
róðrum og um 53.000 1. af
lifur.
Mikill hugur er í mönnum
að byrja snemma á rekneta-
veiðum, en enginn minnist á
að fara norður, þó að ein-.
hverjir kunni að fara það'.
Undanfarið hafa 5—6 bátar
farið norður.
SandgerSi.
2 bátar eru að ennþá með
línu, Mummi og Muninn II.,
en sennilega munu þeir hætta
núna um helgina. Afli hefur
verið tregur, 5—6 lestri í
róðri, og leit út fyrir síðustu
daga vikunnar, að aflabrögð-
in væru alveg að fjara út.
Þeim bátum, sem hættir
eru, er lagt, og alveg óvíst,
hvað við tekur. Það er heldur
dauft hljóðið í mönnum með
að’ fara norður, fyrr en sést,
hvort síldin ætlar að koma.
Eini báturinn, sem hefur
verið á reknetaveiðum, Har-
aldur, er nú hættur, hafði
hann ekki vonir um að geta
selt meira. af þessari síld, en
liann var búinn að afla.
Heildaraflinn er um 8000
lestir hjá 21 bát í 1460 sjó-
ferðum. Meðalafli er því tæp-
ar 400 lestir hjá bát.
Hæstir eru:
Mummi, 89 sjóf., 557 lestir.
Muninn II., 82 sjóf., 520 I.
Pétur Jónss., 90 sjóf., 512 1.
Gæftir hafa veirð óvenju-
lega góðar, eins og sést á
róðrafjöldanum, þar sem ekki
var byrjað fyrr en í endaðan
janúar.
Keflavík.
I verkfallinu var stöðvun í
2—3 daga. Bátar reru þó, og
gerðu skipverjarnir sjálfir að
aflanum og söltuðu hann.
Enn er svipaður reytingur og
undanfarið, 5—7 lestir á bát
í róðri. Þó var aflinn minni
síðustu daga vikunnar, um 4
lestir. Er að' verða hver sein-
astur með róðra, aðeins 4 bat-
ar eru enn að, og sennilega
hætta þeir núna um haígina.
Færaveiðar hafa lítið verið
stundaðar undanfarið. I drag-
nótina hefur verið sæmilegur
afli. Bátur, Tjaldurinn, fékk
t. d. um daginn 9 lestir eftir
nóttina, en það var líka lang-
bezt. 5 bátar eru á botnvörpu-
veiðum og fá 4—6 lestir yfir
sólarhringinn. 2 bátar, Kefl-
víkingur og Hihnir, eru á
lúðuveiðum, og fleiri fara inn-
an skannns á þær veiðar.
Það liggur heldur létt í
mönnum hljóðið. Það er óá-
kveðið, hvort menn fara al-
mennt á síld. Ef gott verð
verður á reknetasíldinni, á-
kveða menn sig ekki almennt
með norðurferð, að svo konmu
máli. Þeir ætla að eiga allt
tilbúið', nætur og báta í lagi,
ef síld kemur eitthvað, sem
heitir, og geta þá brugðið við
skjótt, en almennt ætla menn
ekld að hætta á norðurferð,
ef eitthvað annað gagnlegt
verður hægt að gera heima.
Olíusamlagið er að byrja á
nokkuð stórri byggingu niðri
við höfnirfa. Þar verður skrif-
stofa, afgreiðsla og geymsla
o. þ. 1.
Hafnarfjörður.
5 bátar eru nú byrjaðir á
botnvörpuveiðum og hafa
aflað sæmilega, 3—4 lestir eft-
ir nóttina, Hafbjörg lcom einn
daginn í vikunni með 12 lest-
ir eftir 2 nætur.
Aflahæstur af Hafnarfjarð-
arbátum var Tllugi. Var hann
með 556% lest af fiski,
58.417 lítra af lifur. Hann
tók upp netin 8. maí. Fór
hann síðan norð'ur fyrir land
3 dögum seinna og revndi í
Húnaflóa og Skagafirði, en
fékk ekkert. Það hefur áður
aflazt vel í net fyrir norðan,
en það hefur verið nokkru
fyrr á tima, þegar loðnan lief-
ur gengið. Þetta hefur þó ekki
verið reynt í nokkur ár.
Á lúðuveiðum eru Bjarnar-
ey og Dóra, og hefur afli ver-
ið lítill.
Akranes.
Allir bátar eru nú hættir
þorskveiðum, og fóru þeir síð-
ustu í róður 18. maí, var þá
afli sviþaður og undanfarna
daga, 2—6 lestir á bát.
5 bátar stunda lúðuveiðar,
og einn er að búa sig út til
viðbótar. Aðrir bátar liggja,
enginn bátur er á botnvörpu-
veiðum eða dragnótaveiðum.
Menn hafa viljað byrja á
reknetum, því að þeir vita af
nógri síkl, en enginn markað-
ur er fyrir síldina ennþá. Bát-
ar verða hafðir tilbúnir til að
fara norður, ef fréttist um
veiði, en ekki heyrist nefnt
að fara út í óvissu.
A vetrarvertíðinni reru 15
bátar, og öfluðu þeir 4424
lestir af fiski í 833 sjóferðum.
I fyrra voru bátarnir 18 og
öfluðu þá 5889 lestir í 1065
sjóferð'um.
Afli Akranesbáta í vetur
var, talið í lestum:
Sigufari 68 sjóf., 430 lestir.
Ásmundur 65 sjóf., 410 1.
Sigrún 69 sjóf., 392% lest.
Ól. Magnúss. 61 sjóf., 343 1.
Fram 64 sjóf. 329 lestir.
Farsæll 63 sjóf., 327 lestir.
Aðalbjörg 59 sjóf., 299 I.
Svanur* * 52 sjóf., 295 lestir.
Ásbjörn 63 sjóf., 293 lestir.
Fylkir 59 sjóf., 290 lestir.
Sv. Guðm.s. 54 sjóf., 277 1.
Bjarni Jóh. 51 sjóf., 248 ].
Keilir** 40 sjóf., 212 lestir.
Valur 44 sjóf., 165 lestir.
Frigg 21 sjóf., 203 lestir.
Ýmsir 9 lestir.
1
Ólafsvík.
Bátamir eru nú hættir
róðrum og er verið að búa þá
alla 8 út á dragnótaveiðar. 3
trillur eru á handfæraveiðum
og hafa aflað sæmilega. Afl-
inn hefur verið þorskur, milli-
fiskur, 16—18 þumlungar.
Nýj a fiski mj ölsverksmiðj an
vann í vetur 150 lestir af
mjöli. Verið er nú í undirbún-
ingi með að' flytja beinin frá
Sandi, sem hafa safnazt þar
fyrir í vetur. Eru það um 300
lestir af blautbeinum. Á Sandi
er nú einn þilfarsbátur á
handfæra- og lóðarveiðum og
einar 5 trillur. Hefur afli ver-
ið sæmilcgur.
Það stendur nú til að fara
að lengja varnargarðinn og
gera bryggju innan á honum.
Þar geta þá legið 6 vélbátar.
Svo er fyrirhugað að byrja í
sumar á rirkjun Fossár, sem
er rétt fyrir innan kauptúnið,
** Hætti 23. apr., fór á lúðuveiðar.
* IlættÍ 3. maí, fór á lúðuveiðar.
og fær þá Sandur einnig raf-
magn þaðan.
Aflahæstir voru í vetur, tal- |
ið' í lestum, vegið með slóg-
inu:
Hafaldan 72 sjóf., 333 lestir. ,
Egill 67 sjóf., 290 lestir.
Erlingur 64 sjóf., 243 lestir.
Víkingur 72 sjóf., 245 lestir.
Björn/Snæf. 59 sjóf., 273 1.
Grundarfjörður.
2 bátar eru nú hættir, anu- :
ar þeirra, Runólfur, er farinn 'i
á lúðuveiðar, og hefur afli
verið 'heldur tregur, hinn, Far- ;
sæll, er farinn á dragnóta- j
veiðar, og fara ekki fleiri 'á .
þær veiðar. Hinir 3 fara norð- ,
ur á síldveið'ar. Viðbúið er, að
allir verði hættir núna utn
helgina. '
Reytingsafli hefur verið á
línuna undanfarna daga,
þetta 6 lestir í róðri.
5—6 trillubátar eru á hand-
færaveiðum, og hefur afli hjá
þeim verið góð'ur. Trillurnar
verða 10—12, sem stunda
veiðar, þegar til kemur.
Grundfirðingur hafði feng-
ið 403 lestir í vetur fram til
20. ]). m., og er hann afla-
hæstur.
Frystihúsið hefur fryst 18.-
000 kassa af fiskfJökiim.
í Grafarnesi í Grundarfirði
eru nú rúmir 200 íbúar.
ísafjörSur.
ísborgin kom inn í vikunni
með 300 lestir af karfa. Fói*u
200 lestir af honum í frysti-
húsin í bænum og nágrenn-
mu, en 100 lestir varð hún
að fara með suður og losa þær
þar. Frystihúsin voru treg til
að taka meiri karfa, þar sem
óvíst var, hvaða. verð þau
gætu gert sér úr úrganginum,
en svo sem kunnugt er
slcemmdi st fiskimj öl sverk-
smiðjan nýlega mikið af eldi.
Er helzt ráðgert að' flytja úr-
ganginn með skipi eitthvað
þangað, sem verksmiðja er,
sem getur unnið hann.
Allir stærri bátarnir eru nú
hættir. Trillubátarnir hafa
aflað sæmilega á kúfisk, en
þó mjög misjafnt.
Smásíld hefur veiðzt tvisv-
ar í lás, 200—300 tunnur,
fyrst í Seyðisfirði og svo 1000
—2000 tunnur í Álftafirði. Er
sú síld enn í nótinni, og er
verið að tala um að selja hana
í verksmið'ju til Siglufjarðar.
„Nótabrúkið“ á Brynjólfur
Jónsson. Er það sá eini, sem
hefur verið með „nótabrúk“
á ísafirði undanfarið.
/?' - —
Rœðið við kunningja
ykkar og vini um blað-
ið. Sendið því nöfn
þeirra, sem hafa sömu
áhugamál ocj rœðir. blaðið
Undirritaður óskar eftir að cjerast áskrifandi að Víði.
Nafn ...........................................
Heimili ........................................
Uóststöð ..........................
TU vUcublaðsins Víðir, Reykjavík. (Sími 2685)