Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Blaðsíða 4

Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Blaðsíða 4
28 Sigfús Einatrsson Og fremst. „Ett sjungande folk“ — það á sænska þjóð- in að verða! Söngfólkið mun liafa saknað vinar i stað, er það kom til mótsins. Aðalsöngstjóri Sambandsins var þá fyrir skömmu látinn. Hafði hann andazt 22. maí á minnis- stæðan liátt: Er þau Friðrik rikiserfingi og Ingiríður prinsessa höfðu birt trúlofun sina, fór fram móttöku- hátíð í Stokkhólmi, að tilhlutun horgarstjórnarinnar. Sven Lizell sljórnaði söngflokknum og liljómsveitinni. Þegar kom að síðasta erindinu í Morgunsöngnum úr „Elverskud“ eftir Gade, gekk Sven Lizell niður af stjórn- pallinum og hneig niður örendur, en kórinn lauk söngn- um yfir hinum látna liöfðingja og ástsæla foringja: „Og med Guds Sol udgaar fra 0st en himmelsk Glands paa Jord, et Glimt fra Paradisets Kyst, livor Livcts Abild gror.“ Virðist svo sem þelta liafi verið fagur dauðdagi manns, er verið hafði einn af aðalleiðtogum þjóðar sinnar í sönglegum efnum, um langt skeið, en var nú farinn að lieilsu, svo að hann liafði verið varaður við því að taka að sér söngstjórnina við fyrgreint tækifæri. Auk Svíanna tóku Norðmenn, Sænsk-finnar og Est- lendingar ])ált í mótinu, og kom einn flokkur („Re- præsentalionskór“) frá hverju landi. í þeim síðasttalda voru 75, en fleiri miklu í hinum, eða nálægt 200 manns í hvorum. Var þá söngfólkið orðið töluvcrt á 6. þúsund. Ivvöldið áður en mótið liófst, héldu Sænsk-finnar sam- söng í Engilbrektskirkju. Stendur kirkjan „hátt á bjargi" og er hið fegursta musteri, hvar sem litið er, inni og úti. Eg hafði hlakkað mikið til að hlusta á söng i slíku umhverfi, en varð óneitanlega fyrir nokkrum vonhrigð- um. Það var ekki fyrir þá sök, að söngurinn væri ekki prýðilegur, heldur vegna efnisins, er var að visu frem- ur einhæft, en þó sérstaldega ókirkjulegt. Og fyrir þvi

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.