Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Blaðsíða 7

Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Blaðsíða 7
Söngmót í Osló og Stokkhólmi 1935 31 4. Carl Paulsson (arr.): Alll under himmelens fáste. Erik Aikerberg (arr.): Friarevisa. Folkvisor frán Nyland: 5. Martin Wegelius (arr.): Vántan. Selim Palmgren (arr.): Nácken. 6. Festkantat I: Det ljusa landet. Soli, kör och orkester. Text av Joel Rundt. — Musik av Oskar Lindberg. Efnisskrá síðari hljómleikanna var með líku sniði: þýzk og sænslc þjóðlög og að lokum liátíðarkantata eftir Gösta Lundborg við texta eflir K. E. Forsslund. Menn munu veita því athygli, að þýzkum þjóðlögum var gert hátt undir höfði á hljómleikum þessum, og reyndar einnig á þeim síðustu (úti á Sladion), svo að það sætti jafnvel hógværum aðl'innzlum. En vafalaust hefir program-nefndin komizt að þeirri niðurstöðu, að það væri heppilegra, að veitt væri heildarútsýn yfir þjóðlög einnar þjóðar, heldur en að þau væru tínd sam- an, sitt úr hverri átlinni. Söngurinn var með sömu kost- um eins og kvöldið áður og sama menningarbrag. En einhversstaðar sá eg þess getið eftir á, að hann hefði verið lielst til kyrrstæður, blíður og draumkenndur, og var þá vitanlega efnisvalinu um kennt frekar en sjálf- um söngnum. Hér var óblandin ánægja að framkomu sænsk-finnska kórsins, undir stjórn Bengts Carlson. Mesta atliygli vakti þó söngur Estlendinganna, þótt eng- mn virtist bolna neitt í þeim textum, sem þeir fóru með: 1- Meil aia áárne tánaval. 2. Pidu liakkab. 3. Kukku, sa kágu. Þessi vankunnátta okkar áheyrenda í estlenzku, liafði Uokkuð skringilegar afleiðingar, er Estlendingarnir þyrjuðu á aukalaginu. Slóð þá þingheimur upp, og hugði a® vera mundi þjóðsöngurinn. Það var ekki óskemmti- legur „þjóðsöngur" þelta, spriklandi í fjöri og kátínU

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.