Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Blaðsíða 16

Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Blaðsíða 16
40 Baldur Andrésson: Prins Gustaf kórlög og syngja á heimilinu. Sungu þeir mikið lög eftir Olto Lindblad, sem þá voru alveg ný. Auk þeirra tveggja laga, sem hér liefir verið talað um að frainan, liefir Gústaf prins samið mörg önnur lög, hæði kórlög og einssöngslög, eins og að líkindum lætur, svo og sorgargöngulag og hergöngulög o. fl. Flest lögin eru nú gleymd, en þó hafa nokkur lifað og eru oft sung- in, þar á meðal er sálmurinn í sænsku kóralbókinni: „Mina levnadstimmar stupa“, sem er djúpt lag og vel gert, ennfremur sönglagið: „I rosens duft“, sem náð hefir út- breiðslu utan Norðurlanda, og kórlagið: „Du undersköna dal, o ság.“ I sænsku stúdentasöngbókinni eru kórlögin eftir liann merkt: G****. Auk tónlistarinnar hafði hann yndi af sagnfræði, og var lionum falin umsjá með útgáfu: „Arlcivet till upp- lysning om svenska krigens och kriginráttningarnes historia'1, og safnaði hann sjálfur drögum að sögu 30 ára stríðsins. , Þegar á það er litið, að Gúslaf prins varð aðeins 25 ára gamall, þá verður ekki liægt annað en að viðurkenna, að liann hefir afrekað mikið á stutlri æfi. Á heimleið úr ferðalagi um Evrópu varð hann innkulsa, en virtist fljótt ætla að ná sér aftur. En á sjóðleiðinni frá Þýzka- landi til Noregs, en þangað var ferðinni lieitið, hreppti skipið storma mikla og varð að leita hafnar í Fredriks- havn. Næsla dag var ferðinni samt haldið áfram til Oslo, og var þá enn sjógangur mikilk Prinsinn hefir ekki þolað sjóvolkið, því að honum sló niður aftur, fékk hita- sótt og andaðist fáum dögum síðar, 24. sept. 1852. Var hann öllum mikill harmdauði. ; Minningin um hann mun lifa með lögum lians á með- an hjörtu æskunnar „ldappa med friska slag“, og á með- an hún trúir á „Ijusnande framtid“ og „hoppet ár var ván och vi dess löften tro“, eins og segir í stúdentasöngn- um hans ódauðlega.

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.