Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Qupperneq 18

Heimir : söngmálablað - 01.10.1935, Qupperneq 18
42 Fréttir Athygli sambandskóra skal vakin á því, að senda s'kriflegar umsóknir um söngkennslu til stjórnarinnar. * Stjórn S.Í.K. óskar eftir uppá- stungum og téikningum á sam- eiginlegu merki fyrir S.Í.K., sem gert yrði úr gulli, silfri og ó- dýrara efni. Merkið verður að vera tákn- mynd (Symbol) af rnúsik og í þvi verður að standa: „Sam- band íslenzkra karlakóra“. Það skal tekið fram, að óskað er að hafa ekki hörpu, vegna þess, hve þetta tákn er orðið algengt. 50 kr. verðlaun verða veitt fyrir bestu teikninguna, ef hún álízt fullnægjandi. Réttur til þess að hafna öll- um uppástungum og teikningum er áskilinn. Teikningarnar séu komnar til stjórnar S.Í.K. fyrir 15. febr. næstk. * Siinglíf í Reykjavík. Tónleikalíf bæjarins hefir verið með daufara móti, það sem af er vetrar. Þó hafa nokkr- ir tónleikar verið haldnir, og verður þeirra lauslega getið hér. Einar Markan hélt minningar- tónleika um Markús Kristjáns- son tónskáld. Gunnar Sigur- geirsson aðstoðaði. Fjögur lög eftir Grieg voru fyrst á söng- skránni, en þar næst níu lög eftir Markús. Lög hans eru flest frumleg og geyma í sér mikla lyriska fegurð, og má lelja þau meðal beztu sönglaga, sem ]>jóð vor á. Söngur Einars var góð- ur og tónleikarnir vel undirbún- ir af beggja hálfu, söngvara og undirleikara. Naut rödd söngv- arans sín vel, og þá sérstaklega á veiku tónunum. Sigurður Skagfield söng í dómkirkjunni, með aðsloð Páls Isólfssonar lög við sálma eflir Mattliías Jochumsson, og lagði þannig sinn skerf lil liundrað ára minningar þjóðskáldsins. Aðsókn var ágæt. M.A.-kvartettinn söng í Nýja Bíó við ágæta aðsókn. A söng- skránni voru flest lögin i létt- um anda, og voru þau lipurt sungin. Annar bassi naut sín betur nú en fyr, en nokkuð bar á þreylu hjá fyrsta lenór. Mæltu fleiri taka upp þann sið, að syngja létta, glaða söngva, og ættu stúdentarnir að lcggja drýgri skerf til karlakórs- söngsins framvegis en verið hefir nú um skeið. Veigamestir voru tónleikar þeir, er Árni Kristjánsson liélt í Gamla Bíó og helgaðir voru Bach, Frescobaldi, Carl Nielsen og Choþin. Árni er mikill píanó- snillingur og stórgáfaður lista- maður. Hann gerir miklar kröf- ur til sjálfs sín og leggst djúpt í list sinni. Aðsókn var góð að þessum tónleikum, og viðtökur mjög góðar. Er það von vand- látra tónlistarvina, að ekki verði langt að bíða næslu tónleika hans. P. í. FÉLAGSPRENTSMIÐJ A N

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.