Heimir : söngmálablað - 01.06.1936, Síða 4
34 Jónas Tómasson
og tvinna band.“ Og stjórn sambandsins liefir teygt lög
þess og spunnið band, spunnið tvo merka þætti.
Annar þátturinn er útgáfa laga eftir Sv. Sveinbjörns-
son, sem út kemur 1932. Eru það 12 lög, x-addsett fyiár
karlakór, prentuð á vandaðan pappír —- með mynd af
höfundinum. Stjórn S. 1. K. hefir að vísu ekki lánast að
spinna þennan þátt Ixláþráðalausan, því nokkrar prent-
villur eru í heftinu. En þrátt fyrir það er útgáfa þessi
sambandinu til sóma og ætti að verða til þess, að lög
Sv. Sv. yrðu sungin meira en ella af kórum sambands-
ins víðsvegar um land. Væri slíkt vel farið.
Hinn þátturinn er ráðning Sig. Birkis sem söngkenn-
ara sambandsins. Veit eg, að hver einstaklingur innan
S. í. K., sem notið befir kennslu Birkis, eða kynnst henni,
hefir fundið, hversu nauðsynlegt það er sambandinu, að
bafa slíkan kennara í framtíðinni. Þegar um er að ræða
að bæta, fegra sönginn, er elcki vafi á, að þarna er spunn-
inn merkasti þátturinn.
En um þetta skal ekki fjölyrt nú, því annað var mér
sérstaklega í huga. Eg vildi benda á eitt af mörgu, sem
gera þarf.
Samband ísl. kai'Iakóra þarf að gefa út „Program-hefli“.
Nafnið gæti verið íslenzkara, enda ætti slíkt liefti að
vera svo íslenzkt sem föng eru á, ekki aðeins að nafn-
inu til, heldur einnig að efni. I heftinu ættu að vera 10—
12 lög, valin þannig, að þau væru yfirleitt ekki of þung
fyrir minni kórana. Það ætti að koma út á hverju hausti.
Vonandi mætti gera ráð fyrir, að hægt væri að fá nokkur
ísl. lög í hvert hefti. Að öðru leyti mestmegnis útlend úr-
valslög með íslenzkum textum, þýddum eða frumortum.
Hver kór innan sambandsins yrði svo að kaupa 1 ein-
tak l’yrir hvern félaga. Þelta liefti yrði svo aðalverkefnið
fyrir þann vetur. Stærri kórarnir mundu auðvitað fara
sinna ferða með stærri lög og þyngri verkefni eins fyi'-
ir þessu. • /'