Heimir : söngmálablað - 01.06.1936, Qupperneq 5
Eitt af mörgu
35
Nú heyrist mér spurt: Er þetla kleyft kostnaðarins
vegna?
Eg hygg, að svo sé.
Svona útgáfa, ca. 600 eint., ætli ekki að kosta yfir 500
krónur og er þá gert ráð fyrir lítilli þóknun fyrir að
undirbúa handrit. Nettó-verðið gæti þá verið 1 kr. heftið.
Mætti búast við að hálft upplagið færi til kóranna fyrir
það verð. Vonandi gætu svo kórarnir séð um sölu á ein-
hverju í sambandi við samsöngva sína. Nokkur eint. ættu
hóksalar að geta selt, og þá fyrir 2 kr. eintakið.
Þá er máske spurt: Er þörf á svona hefti?
Já, mikil þörf. Ástandið er þannig, að margir af kór-
um sambandsins eru í sífelldum vandræðum með verk-
efni. Bókakostur — með íslenzkum lögum eða lögum með
íslenzkum textunr — er sáralílill. Sumir söngstjórarnir
eru byrjendur og liafa ekki næga þekkingu til að velja
sér hentugar útlendar bækur. Á liverju liausli er eg í
miklum vanda staddur, þegar eg er að velja verkefni til
vetrarins. Nýt eg þó aðstoðar form. félagsins og fleiri
góðra félaga, og á allgóðan hókakost. Það myndi létta af
mér margri áhyggjustund, að eg ekki segi andvökunótt,
að fá svona liefti í byrjun hvers starfsárs. Ilygg eg, að
söngstjórar kóranna í sveitum og þorpum yfirleitt séu í
sama vanda staddir. Þá má og minna á, að fáir einir af
kórunum hafa ástæðu til að fjölrita þau lög, sem tekin
eru til æfinga. Söngmennirnir hafa því ekki nótur fyrir
sér til að styðjast við. Þetta er mikið mein, því það við-
heldur fáfræði söngmannanna i söngfræði. Hefði hver fé-
lagi að jafnaði fyrir sér nótur þess lags, sem hann er að
læra, mundi það hvelja hann til að læra helstu atriði
söngfræðinnar. Væri slílct mikill ávinningur. Góður radd-
maður og áliugasamur er alltaf nýtur söngmaður. En
hversn miklu betri er ekki sá, sem auk þess er söngfræð-
ingur.
Búast má við að ýmsir kórar innan sambandsins fari
söngför á einn eða annan stað. Og þá helst þangað, sem