Heimir : söngmálablað - 01.06.1936, Blaðsíða 22

Heimir : söngmálablað - 01.06.1936, Blaðsíða 22
52 Þórffur Kristleifsson þess, aö tónlistin og álirif hennar liggur að mestu leyti utan þess sviðs, sem tunga okkar nær til. Ilinn gáfaði bassasöngvari, Schaljapin, skýrir þelta alriði einkennilega vel með þessari spurningu: „Hverj- um tekst að túlka með orðum, það ástand tilfinning- anna, sem lýsir sér i lieimi andvarpsins?'1 Alþekktan vitmann, sem að sönnu var ekki sjálfur tónlistarmaður, iief ég iieyrl segja eitthvað á þá leið, að þær stundir, sem við bærum giftu til að dveljast í heimi sannrar listar og algjörðrar fegurðar, þær væru þau ljósbrot á leiðum okkar, sem gjörðu lífið þess vert, að því væri lifað. Battistini, Jiessi söngvari, sem liafði röddina fullkom- lega á sínu valdi, hann glímdi oft við heil óperuhlut- verk og einstök lög svo árum skipli, þrautæfði þau með rækilegri íhugun, en söng þau samt aldrei á opinber- um vettvangi, af þeirri einföldu ástæðu, að eitlhvað skorti á það lislsnið — þá slipun, sem til þess þurfti að standast hans eigin ströngu prófraun. Þess munu ekki fá dæmi, að sönglög og önnur tón- verk eru flutt opinberlega undirbúningslítið af hinum smærri spámönnum. Það hlotnast aðeins fáum að ná á þann tind frægðar og fullkomnunar, sem Battistini kleif, en þó mætti vel liafa þessa vinnuaðferð hans í huga, enda þótt áfanga flestra ljúki, áður en komið er að rótum fjallsins. Það var ekki einungis söngrödd Battistini, sem hélt sér vel til elliára lians, heldur var maðurinn sjálfur ungur hæði í anda og útsjón, enda var liann ramm- byggður og mun hafa verið heilsuhraustur alla æfi. Battistini lagði mikla stund á íþróttir og var hóf- semdar maður i öllum lifnaðarháttum. Ilann átti stóran og mikinn hóndahæ i Umhrien og dvaldist hann þar ávallt, þegar kringumstæður leyl'ðu.

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.