Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 12

Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 12
88 H E I M 1 R ur á af öllum sönglögum sinum, ásamt laginu „Ingjaldr í skinnfeldi“. Ennfremur eru þar „Vorgyðjn kemur“, „Áfram“, „KirkjuhvoII“, „Rósin“, „Þess bera menn sér“, „Nótt“ (Nú ríkir kyrð í djúpum dal), sem er mjög list- rænt lag og gegnumofið, „Fögur sem forðum“ o. fl. Árið 1913 komu út eftir hann „Þrjú sönglög úr „Lén- harði fógeta“, „Dauðinn ríður“ er eitt af þessum lögum. I textanum segir: „Hann ríður svo liart um rifahjarn. Nú heyri ég hófadyninn.“ Árni liefir lýst í undirspil- inu hófadyninum á áhrifamikinn hátt, en þannig liafði liann ekki gengið frá laginu í fyrstu. Hann breytti undir- spilinu þannig eftir ósk leikkonunnar Stefaníu Guð- mundsdóttur, sem hafði það lilutverk i „Lénharði fó- geta“, að syngja þetta lag, þegar hann var leikinn hér í Reykjavík árið 1913. Einsöngslög /.—III. og IV. heftir komu út 1922. I þessum heftum eru nokkur hinna eldn laga, en hin eru þó fleiri, sem ekki höfðu verið prentuð áður. Af þeim má nefna „Söng Víkinganna“, hljóm- þrungið lag, og „Ingjaldr í skinnfeldi“, allforneskju- legt, gert upp úr einu stefi. Raddgangurinn er þrótt- mikill í vinstri hcndi (áttundir) og hljóðfallið sérkenni- legt. Fyrirferðarmesl er „Kveldriður". í því er Árni djarfari og tilþrifameiri en áður. Undirleikurinn er ekki aðeins til útfyllingar og stuðnings laglínunni, lieldur hefir liann sjálfstætt gildi og þýðingarmikið. Ilann á að leiða í Ijós og draga upp í línum þá viðburði, sem felast í efninu, svo vart má hugsa sér lagið án hans. Forspilið gefur til kynna liinn dularfulla og geigvæn- lega blæ lagsins. Þelta lag hefir ekki náð eins mikillí útbreiðslu hjá almenningi og lag Sigvalda Kaldalóns við sama texla, og hjrgg ég það slafi af því, að Árni hefir ekki valið þau gripin, sem falla léttast fyrir fing- urna á heimasælunum. „Friður á jörðu“ er vinsælt lag. „Kveldklukkan“ er föst heild. Það á sérstöðu meðal sönglaga Árna fyrir það, að undirleikurinn er marg- liðaður (polephoniskur). Tín karlakórslög eftir hann

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.