Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 17

Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 17
H EIM IR 93 spilar undursamlega vel; þá getur hann hlegiö eins og unglingur og roðnað aí' ánægju og hrifningu. En aftur á móti þegar illa tekst, er hann mjög sorgmæddur. Illa leikin tónlist verkar á liann eins og svipuhögg. Það er mikið erfiðið fyrir tónlistarmenn að spila undir stjórn Toscaninis; en þeir þekkja hans miklu hreinskilni, hans miklu hógværð og lians logandi, sanna áhuga fyrir góðri tónlist og miklum tónsnillingum, og þeir heiðra hann. En það, sem þeim finnst þó mest til um, er hin ósegjanlega mikla auðmýkt þessa smá- vaxna manns. Menn minnast þess eitt sinn, er verið var að æfa níundu symfóníu Beelhovens, og Toscanini útskýrði með óþreytandi samvikusemi sál verksins. Listamennirnir, sigraðir af þessari þekkingu, þessum óskiljanlega töfrakrafti, sem hafði veitt þeim nýja inn- sýn i þetta meistaraverk, stóðu upp þegar æfingin var húin, allir sem einn maður, og hylltu Toscanini. Þessi litli maður handaði frá sér og reyndi að þagga nið- ur í þeim fagnaðarlætin. Loksins, þegar hin óstjórn- legu fagnaðarhróp þeirra liættu, leit hann á þá með tárin í augunum. „í guðanna hænum“, sagði hann með bænarrómi, „gerið þið það fyrir mig, að hætta þessu. Sjáið þið til, herrar mínii’, það er ekki ég, það er Beet- hoven!“ P. H. þýddi. K A R L A K Ó R S Ö N G U R I N N 0 G HUGSJÓNIR IIANS. EFTIR PRÓF. ERIK ABRAHAMSEN. Kórsöngur liefir verið iðkaður frá elztu tímum. Á öll- um öldum og eins langt aftur og söngsagan verður ralc- in, liafa mennirnir fundið lijá sér þörf að safnast sam- an til að tjá sameiginlega tilfinningar sínar, jafnt í gleði sem í liarmi. Þannig var þetta hjá Grikkjum til forna og eins var þelta á miðöldum. Kristin kirkja tók

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.