Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 34

Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 34
106 HEIMIR krafti. Hljómblærinn, sem er sálin i tóninum, á að geta lirifið áheyrandann, og þess vegna eiga tóngæðin að koma i stað leikaratilburða. IJess vegna forðast italskir söngvar- ar — að undanteknum þeim látbrögðum, sem fyrir eru skipuð i söngverkinu — allar óþarfa tilburði, en þelta bef- ir í öðrum iöndum verið misskilið og talið Jiei’a vitni um lilla leikliæfileika. Þeir láta sér nægja að sýna þau svip- brigði og látbrigði við og við, sem eru sérkennandi fyrir söngverkið — alveg eins og Mozart krafðist af samtíðar- söngvurum sínum — og þetla nægir einnig söngverkinu. R 0 13 E R T S C H U M A N N. (8/6 1810 — 2.9/7 1856). EFTIR BALDUIi ANDRÉSSON. Hann er fæddur 8. júní 1810 í Zwickau í Saxlandi. Faðir hans var bóksali, liagsýnn maður og vel efnum búinn. Hann gaf fyrstur úl svonefndar vasaiitgáfur af klassískum bókmenntum, þýddi skáldverk Byrons og ritaði í'rá eigin brjósti um viðskiptamál. Frá honum erfði sonurinn ritsnildina, en einnig geðveikina. Hvorki bar á sönglistargáfu bjá föður hans eða móður. Er Robert Schumann að þessu leyti undantekning meðal tónskáldaskörunga, því oftast er Iiægt að benda á, livernig ættleggurinn safnar í sig músíkinni mann fram af manni, unz afburðamaður fæðist (sbr. Bach, Mozart, Beetboven o. fl.). Robert var yngstur fimm systkina og lcallaði móðir lians hann „ljósa punktinn“. Föður lians varð snemma ljóst, aö músíkin álti soninn Iieilan og ó- skiptan. Hann sneri sér þá til tónskáldsins l'ræga Carl Maria von Wcber og liað hann að kenna syni sínum, en ekkert varð úr þvi, af því að Weber dó í þeim svifum. Það var heldur ekki að skapi móðurinnar, að sonurinn yrði tónlistarmaður. Hún þóttist vita, að það vrði sult- arbrauð. Hann var þá settur til mennta.

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.