Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 38

Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Blaðsíða 38
110 F R É T TI R. H E I M I R Tíu karlakórslög eftir Friðrik Bjarnason organista í Hafnar- firði komu út i haust. Lögin eru traust, laus við prjál og ný- tízkutildur, sum djúp og skáld- leg, eins og „Við skulum ekki hafa hátt“ við fagurt kvœði eft- ir Sigurð Grímsson lögfræðing, og „Huldur“ við kvœði eftir Gríin Thomsen. Friðrik Bjarna- son er fyrir löngu orðinn land- frægur fyrir sönglög sin. „Hóla- dans“ er orðinn fastur liður að heita má á söngskrám karla- kóranna okkar, enda er lagið ramm-íslenzkt, og skólabörnin kunna mörg falleg liig eftir hann. * Karl Runólfsson hefir vakið einna mesta eftirtekt á sér af yngri tónskáldum okkar. „Föru- mannaflokkar þeysa“ og „Nú sigla svörtu skipin“, bæði sam- in fyrir karlakór með pianó- undirleik, komu út i haust. Fyrra lagið er alþekkt og með áhrifamestu kórlögum okkar. Síðara lagið sver sig i sömu ættina, en er þó öllu losara- legra í böndunum. * Sigvaldi Kaldalóns er afkasta- mikill á íslenzkan mælikvarða. „Serenaði til Reykjavíkur“ heit- ir nýtt lag eftir hann. Er það næsta eðlilegt, að Kaldalóns yrki óð til fæðingarborgar sinn- ar, enda kennir hlýju og inni- leika í laginu. En nafnið á Jiessu sönglagi er ekki heppi- legl, þvi „serenade“ er upphaf- lega áslaróður, sem ungur sveinn söng fyrir neðan glugg- ann hjá fagurri mey. Kvöld- lokka hefir Guðm. Finnbogason nefnt slík liig. * Minningar. Sönglög eftir Þorvald Blöndal. Höf. hafði lokið læknisprófi skömmu áður en hann dó. í bókinni eru 20 einsöngslög og 12 karlakórs- lög. Höf. hefir brennt sig á Jiví, að senija liig við kvæði, seni ágæt liig eru til við, og hefir Jietta hent fleiri. Ég nefni hér sem dæmi upp á Jietta: „Sofðu unga ástin mín“, „Ég minnist þín, er sé ég sjóinn glitra“, „Á Sprengisandi“. Lögin bera vitni um gáfað skólaskáld. * Einar Markan söngvari fæst allmikið við sönglagasmíð. í sumar kom út cftir hann söng- lagið „Reykjavík“; kvæðið er eftir Einar Benediktsson. Lag- ið er vel fallið til söngs, eins og vænta mátti af hendi höf- undarins, og er liað allsnoturt. * Hljómboðar II eftir Þórarin JónsKon frá Háreksstöðum. Eru þetta 2G lög við ísl. texta, radd- sett fyrir liarmoníum. í Jiess- um lögum gætir ekki sterks persónuleika, en mörg eru þó lögin snotur.

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.