Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Page 39

Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Page 39
HTEIMIR 111 HLJÓMLEIKAR í REYKJAYÍK Ársfjórðuagurinn síðasti var rikur að góðum hljómleikum. Robert Soetens, hinn snjalli franski fiðluleikari, hélt hér nokkra hljómleika í október- byrjun. Hann lék aðallega franskar tónsmíðar. Franskar tónsmíðar heyrast hér sjaldan og enn sjaldnar koma franskir listamenn til að flytja þær. í nóvember kom hingað hinn heimsfrægi pólski pianósnilling- ur Ignaz Friedman, og hélt hér fimni hljómleika í röð fyrir fullu luisi, þar af fjóra Chopin- hljómleika. Hann flutti full- komið úrval af því, sem Chopin hefir samið. Friedman skarar fram úr sem Chopin-spilari. Hann hefir gefið okkur nýjan Chopin, mikilfenglegan og dramatískan byltingamann, eins og hann lifir og andar í stærri verkunum. Og þó getur enginn gleymt því, hve dásamlega hann leikur smálögin, og meitl- ar þau livert út af fyrir sig, eins og litinn undursamlegan smíðisgrip. Árni Kristjánsson píanóleikari var ekki öfunds- verður af þvi að þurfa að halda hljómleika (á vegum Tónlisl- arfélagsins), þegar Friedman var nýfarinn liéðan. Endur- minningin lifir hjá öllum tón- listarvinum, samlíkingar eru nærtækar, hversu ranglátar sem þær kunna að vera. En Árni slóðst þetla erfiða próf vel. Hann hefir ágætt píanó- leikaraupplag og sérstaklega er tilfinningin fyrir hljómbrigð- um hljóðfærisins næm og þroskuð. Hugur hans hneigist meir að þvi lyriska en stórfeng- lega. Hann lék hinar 24 prelú- díur C.liopins með undraverðri margbreytni i hljómum og svip- blæ. Rögnvaldur Sigurjónsson hélt hér hljómleik í desember. Þessi kornungi pianóleikari hefir verið við nám i Paris, og þótt dvölin hafi ekki verið löng enn sem komið er, þá hefir hann þó ótvírætt haft gagn af henni.. Hann hefir fengið mjög örugga tekniska undirstöðu og er nú kominn svo langt, að hann getur farið að kasta af sér skólafjötrunum. Hann liefir nóg skap til að bera, en það er enn of bundið og niðurbælt. Yfirleitt var hljómleikur hans liinn ánægjulegasti; vandvirkni og tónlistarhæfileikar Rögn- valds gefa hinar beztu vonir. * María Markan, óperusöng- kona, liélt hér hljómleika í október. Röddin er sannarlega glæsileg sópranrödd og radd- sviðið er mikið. Þó röddin sé hér sópran, þá á hún lika djúpa tóna, sem margar alt- söngkonur mættu öfunda hana af. Mikill meiri liluti söng- skrárinnar var helgaður ljóð- söngvum, og enda þótt ungfrú- in sýndi, að hún er vel heima á þessu sviði, þá leyndi það sér ekki, að óperulögin liggja henni næst. Hún heifir verið ráðin til að syngja við kgl.

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.