Heimir : söngmálablað - 01.01.1925, Blaðsíða 15
1925
HEIMIR
13
Sönglístarsjóður
Akranesskirkju.
Erlend ríki og' bæjarfjelög styrkja
tónlistarstarfsemi með miklum fjár-
framlögum árlega. þar er og alltítt, að
efnaðir menn gefi fje í sama tilgangi.
Úr þessum sjóðum einstakra manna fá
efnilegir námsmenn styrk, tónskáld
verðlaun o. s. frv. Sumir sjóðirnir eru
svo öflugir (t. d. miljónasjóður einn í
Björgvin), að renturnar nægja til að
halda uppi hlj óðfæraflokkum.
pað vantar ekki sjóðina hjá okkur.
pað veit sennilega enginn tölu á þeim.
Sumir hafa týnst, að því er sagt er.
En hvað sem um það er, þá er eitt víst:
s ö n g 1 i s t a r s j ó ð i r n i r okkar eru
fljóttaldir. Vjer munum ekki eftir öðr-
um manni í svipinn en Guðjóni heitn-
um Sigurðssyni úrsmið, er gefið hafi
af eigum sínum fje til eflingar okkar
tónlist, sem á þó við þröngan kost að
búa og þyrfti sannarlega stuðnings við.
En nú hefir annar bæst við. J>að er
Ó 1 a f u r B. Björnsson kaupmaður
og organleikari á Akranesi. Hann hef-
ir lagt fram 560 krónur og stofnað með
því „Sönglistarsjóð Akranesskirkju".
Vjer höi'um beðið Ólaf um útdrátt úr
skipulagsskránni, og fer hann hjer á eft-
ir. Um gjöfina skrifar hann oss þetta
m. a.: ,,J>að, sem fyrir mjer vakti með
stofnun þessa lítilfjörlega sjóðs, var
að jeg vil þegar í dag hafa fulla trygg-
ingu fyrir því, að kirkjusönglistin verði
ekki hjer eftir, öld fram af öld, í sömu
niðurlægingu, sem hún er nú. Og jeg vil
tryggja það, þó við, sem nú lifum njót-
um þess ekki, að hjer (þ. e. á. Akra-
nesi) verði alla tíð maður, er sje fram-
úrskarandi á sínu sviði, og geti óskiftur
og án þess að vera beiningamaður, gefið
sig allan við því að efla Guðsríki á þenna
hátt (þ. e. með söngstarfi sínu), með
aðstoð góðs fólks, sem vill gjöra hið
sama".
Útdráttur úr skipulagsskrá
fyrir „Sönglistarsjóð Akrancsskirkju".
Hjer moð óska jeg að leggja i Aðaldeild
Söfmuiars.jóðs íslands 300 krónur, með þeim
skilmálum, að upphæðin ávaxtist þar til er
hin evangelisk-lútherska safnaðarkirkja á
Akranesi hefir eignast vandað og fullkom-
ið pípuorgel til afnota við guðsþjónustur
safnaðarins. Pá skulu hálfir vextir greiðast
árlega til safnaðarstjórnar kirkjunnar, er
greiði með þeim laun kirkjuorganistans
(sem raðinn skal eftir tillögum biskups og
dómkirkjuorganistans í Reykjavik) og ann-
ast um, að hann haldi uppi og efli safnað-
arsöng og kirkjulega söngment innan safn-
aðarins. Skal hún verja þessum hálfu vöxt-
um að öllu leyti til þessa, þar til er laun
organistans hafa náð sömu upphæð eftir
þjónustualdri, sem föst laun sóknarprests-
ins við nefnda kirkju. ])á skal safnaðar-
stjórnin verja afgangi vaxtanna til þess að
skre.yta og prýða safaðarkirkjuna, og kirkju-
og trúarlífinu til eflingar að öðru leyti.
I-Iálfir vextir skulu hinsvegar ávalt leggj-
ast við höfuðstólinn.
pó að hin evangelisk-lútherska kirkja
liætti að vera þjóðkirkja íslands, má sjóð-
ur þessi aldrei verða eign rikisins, heldur
skal sjóðurinn þá verða algjör eign evange-
lisk lúther'sks safnaðar á Akranesi.
Ennfremur 30 krónur, með þeim skilmál-
um, að allir vextir leggist við höfuðstól-
inn, þar til er hin evangelisk-lútherska
safnaðarkirkja á Akranesi hefir (samkv.
vottorði dómkirkjuorganistans í Rvík) eign-
ast fullkomið pípuorgel til afnota við guðs-
þjónustui', þá skal V4 vaxtanna greiðast
safnaðarstjórn hennar, nefndu orgeli til
viðhalds og endurnýjunar.