Alþýðumaðurinn - 04.07.1968, Side 8
SUMAR OG SÓL
Það hafa verið fáir sólskinsdagar er rtinnið hafa upp yfir norðlenzka grund
enn sem komið er á þessu sutnri. En í gær var sannkallaður sólskinsaagur.
Hallgrímur Tryggvason tók þessa fallegu svipmyn .1 á Rúðhústorgi í gær.
Æskulýðsleiðtogavika í Svíþjóð
VINABÆIR Akureyrar á Norð
urlöndum eru Randers í Dan-
mörku, Álasund í Noregi, Lathi
í Finnlandi og Vásterás í Sví-
þjóð.
Þessir bæir hafa í nokkur ár
efnt til æskulýðsleiðtogamóta,
sem þeir hafa staðið fyrir til
skiptis og var eitt þeirra haldið
hér á Akureyri sumarið 1966.
Þátttakendur hafa yfirleitt
verið tíu frá hverjum bæ og oft
ast verið sendir sem fulltrúar
einhverra æskulýðsflaga eða
mætt fyrir hönd æskulýðsráðs.
Fuliltrúar frá Akureyri hafa
mætt á þessum mótum nokkur
undanfarin ár, en ekki haft fulla
tölu nema hér heima.
Að þessu sinni fór mótið fram
í Vásterás og mættu þar ellefu
þátttakendur frá Akureyri,
ellefu frá Lathi, tíu frá Randers,
500^
Góðir lesendur
¥jETTA er siðasta blað AM að
*- sinni, því að nú eru hafin
sumarleyfi í POB. Framtíð blaðs
ins er óviss, eins og ég hefi svo
opinskátt oft frá sagt. Ég vil
nota þetta tækifæri í lokin að
skora á norðlenzka jafnaðar-
menn og aðra velunnara blaðs-
ins, að nota sumarleyfi þess til
að tryggja fjárhagslegt fram-
tíðargengi AM. Það er hægt ef
samhentur vilji er fyrir hendi.
Þar sem ég hefi grun um að
þetta verði hið síðasta blað er
ég ritstýri má það ekki teljast
eigingirni þótt ég sendi mínar
beztu kveðjur til allra er lesið
hafa AM meðan ég hefi ritstýrt
honum. Ég mun kveðja blaðið
með trega, en verð að lúta ör-
lögum sem aðrir. Ég bið guð að
blessa ykkur og norðlenzkir
jafnaðarmenn, ég trúi ekki öðru,
en þið gerið Alþýðumanninn
öflugan merkishera jafnaðar-
stefni-.nnar á Norðurlandi. Ver-
ið þið svo öll heil og sæl.
Sigurjón Jóhannssan.
fjórtán frá Álasundi, þar á með-
al tveir blaðamenn, sem voru
sérstaklega sendir með hópn-
um, og níu manns frá Vásterás.
Auk þeirra voru syo fjórir aðrir
heimamenn, sem skipulögðu
dagskrána og sáu um fram-
kvæmd hennar undir stjórn
Thorsteins Johanssons, sem er
einn af, 28 föstum. starfsmönn-
um æskulýðsráðsins í Vásterás.
Dagana 15.—19. júní dvöildum
við á Klacbergsgárden, sem er
íþróttamiðstöð i Vestmanna-
landi um 80 km. frá Vásterás.
Dagskráin hófst með íþróttum
kl. 7.45 og stóð uppihaldslaust
til kl. 23 og. stundum lengur.
Skiptust þá á fyrirlestrar, um-
ræðufundir í fámennum hópum,
íþróttir, leikir. og fræðsla að
ógleymdum baðferðum, sem
komu .sér vel, . því hitinn var
flesta dagana 25—36 gráður.
Aðal efni fyrirlestranna var
„táningaaldurinn“ og þau vanda
mál, sem honunýjylgja. Erindin
voru.flutt áf'sérmeriníuðu fólki,
sem byggði umsögn sína á vís-
indalegum athugunum og langri
reynslu. Hér er ekki hægt að
rekja efni þeirra, en tæplega
getur hjá því farið að þau hafi
vakið áheyrendurna til umhugs
unar um margt, sem getur orðið
þeim gagnlegt í æskulýðsstarf-
inu.
Rúmsins vegna er ekki hægt
að rekja þessa ferðasögu nánar
í þetta sinn. Þó vil ég að lokum
geta þess að Vásterás, sem telur
108 þúsund íbúa, er sennilega
sá bær í Svíþjóð, sem býr bezt
að ungu fólki, hvað aðstöðu
snertir til íþrótta og tómstunda-
iðju og er þá mikið sagt. Vera
má að síðar verði vikið að ein-
hverju af því tagi, sem gæti orð
ið okkur til fyrirmyndar þótt
ólíkum efnum sé saman að
jafna.
Allar móttökur í Vásterás
(Framhald á blaðsíðu 7).
Glilbrá - norðlenzkt fyrirtæki
MVILL vekja athygli, sér-
staklega Norðlendinga,
á auglýsingu sem líta má í blað
inu í dag frá Glitbrá. Þetta er
8 ára gamalt fyrirtæki og í
stuttu símaviðtali við forstjóra
Glitbráar tjáði hann AM að 96%
af framleiðslunni færi á mark-
að í Reykjavík.
AM finnst að þessar upplýs-
ingar séu í raun og veru stór-
fréttir og sanni í raun og veru
hvað við Norðlendingar erum
tómlátir varðandi uppbyggingu
norðlenzkra iðn og annarra at-
vinnugreina. AM hefur sann-
frétt að Glitbrá leggur áherzlu
á vandaða vöru og fylgist vel
með tízkusveiflum í sambandi
við framleiðslu sína. Aðalfram-
■\WV
GÓÐIR FELAGAR
Páll A. Pálsson ljósmyndari
mætti þessum félögum á reið-
hjóli nú fyrir nokkrum dögum. Sat þá krununi hinn kotroksnasti á
bögglaberanum aftan við strák. Á myndinni sést krunnni tylla sér
á höfuð félaga síns. Gylfi Grnnarsson heitir drengurinn og á heima
á Sólvöllum 17. AM láðist að grenslast eftir hvað félagi hans héti.
leiðsla Glitbráar eru innkaupa-
töskur, ferðatöskur og dagtösk-
ur. AM hvetur norðlenzka les-
endur síná að kynna sér fram-
leiðslu Glitbrár, úr því að sunn
lenzkur smekkur er þessu norð-
lenzka fyrirtæki svo jákvæður.
AM hefur eftir mætti sínum
vilja stuðla að norðlenzkri sókn.
Glitbrá hans Georgs Jónssonar
er vissulega einn hlekkurinn í
norðlenzkum sóknarvilja. Nú er
hart í ári, hundruð akureyrskra
ungmenna ganga nú um steind
ar og gráar götur höfuðstaðar
Norðurlands. Glitbrá hefur
þurft að draga saman seglin,
sem svo mörg önnur norðlenzk
fyrirtæki á síðustu tímum. En
það ætti að vera aðall Norð-
lendinga að styðja fyrst og
fremst þótt kreppa ríki það sem
norðlenzkt er. Því vill AM sem
norðlenzkt blað vekja atliygli á
framleiðslu Glitbráar og minna
á þá staðreynd AÐ NORÐ-
LENZK FRAMLEIÐSLA ER
VÖNDUÐ VARA.
5^=
Sláttur liafinn
Eyjafirði og
Svarfaðardal
SLÁTTUR er
nokkrum bæjum
nú háfinn á
Inn-Eyja
firði og einnig út í Svarfaðardal.
En heyskapur byrjar nú mun
seinna um land allt en undan-
farin ár sökum þeirra kulda-
tíðar er ríkti í vor. Víða er mjög
mikið kal í túnum.
ww
Bindindismót haldið í Vaglaskógi um verzlunarmannatielgina
SVO SEM undanfarin ár ann-
ast æskulýðssamtök í Þingeyj-
arsýslu, Eyjafirði og Akureyri
undirbúning og framkvæmd
bindindismóts í Vaglaskógi um
verzlunarmannahelgina.
Að þessu sinni verður efnt til
mikilla hátíðahalda með margs
konar skemmtiatriðum, hljóð-
færaslætti, íþróttum, þ. á m.
sýnir fimleikaflokkur frá Siglu
firði undir stjórn Helga Sveins-
sonar íþróttakennara, þá verð-
ur glímusýning, ræðuhöld, gam
anþættir, Baldur Hólmgeirsson
o. fl., hljómsveitin Póló, Bjarki
og Erla, kórsöngur og lúðra-
sveit.
Komið verður fyrir útipöllum
og leiksviði og dansað bæði úti
og inni. Flugeldasýning og bál-
kestir verða tendraðir. Tjald-
stæði fyrir mótsgesti verða
skipulögð meðan á mótinu
stendur og sætaferðir verða á
mótsstað bæði frá Akureyri og
Húsavík.
Leigjum bíla tii hópierða, stærðir 17-50 manna.
Undirbúningsnefnd bindindis
mótsins er skipuð Þóroddi Jó-
hannssyni, UMSE, Óskari
Ágústssyni, HSÞ og Hermanni
Sigtryggssyni, Akureyri. Fram-
kvæmdanefnd verður skipuð
innan skamms.
Bindindismótin í Vaglaákógi
hafa farið vel fram.
Sími 1-29-50
Vanti yður húsgögn þá veljið það bezta
Valbjörk h.f. Akureyri
XXXVIII. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 4. júlí 1968 — 16. tbl.