Alþýðumaðurinn - 31.01.1969, Blaðsíða 8
Vanfí yður húsgögn þá veljið það bezfa
Valbjörk h.f. Akureyri
Sýnishorn af umbúðunum, sem P.O.B. og Kristján Kristjánsson hlutu viðurkenningu fyrir.
Iðnfyrirtæki á Akureyri hlýtur
viðurkenninffu
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 31. janúar 1969 — 1. tölublaði
Ljósmyndastofa Páls.
Á SÍÐASTLIÐNU hausti fór f
fram fyrsta umbúðasamkeppni, j
sem efnt hefur verið til hér á j
landi, en að henni stóðu Iðn- j
I
=00«=
88 MILLJÓNIR
f GÆR var undirritaður í
Moskvu samningur um sölu á
íslenzkum ullarvörum frá verk
smiðjum Sambands íslenzkra
samvinnufélaga á Akureyri.
Samningsupphæðin nemur 88
millj. króna. Vörunum á að af-
skipa á yfirstandandi ári. Kaup
endur eru V/O Raznoexport,
Moskva.
Samningana gerðu fyrir hönd
Sambandsins Ragnar Ólafsson
hrl. og Ásgrímur Stefánsson,
verksmiðjustjóri. Auk þess
vann að samningunum Ægir
Ólafsson fyrir hönd umboðs-
manna Raznoexport á íslandi.
kynningin 1968, Félag íslenzkra
iðnrekenda og Landssamband
iðnaðarmanna.
Eitt fyrirtæki utan Reykja-
víkur hlaut sérstaka viðurkenn
ingu fyrir umbúðaprentun og
var það Prentverk Odds Björns
sonar h.f. á Akureyri, sem hlaut
viðurkenningu fyrir litprentun
á umbúðum fyrir niðursuðu-
vörur frá Kjötiðnaðarstöð KEA
og málningavörur frá Efnaverk
smiðjunni Sjöfn.
Kristján Kristjánsson teiknari
hjá P.O.B. hafði teiknað allar
umbúðirnar og hlaut hann sér-
staka viðurkenningu dóm-
nefndar.
Fyrirhugað er að slík um-
búðasamkeppni fari fram ár-
lega, en AM vill nota þetta tæki
færi til að óska P.O.B. og
Kristjáni Kristjánssyni til ham-
ingju með viðurkenninguna og
þakkar fyrir aukinn hróður til
handa norðlenzkum iðnaði.
N\\V
FUNDliR UM LANDHELGiSMAL
Sviðsmynd úr „Súlutröllinu“.
Leikfélag Akureyrar sýnir nú barnaleikritið Súlutröllið
ALMENNUR fundur um land-
helgismál var haldinn á Akur-
eyri 21. janúar sl. Á fundinum
mættu fjölmargir sjómenn og
útvegsmenn úr Norðurlands-
kjördæmi eystra. Fundarstjóri
var Angantýr Jóhannsson og
fundarritari Pétur Hallgríms-
son.
Á fundinum mætti nefnd sú,
sem sjávarútvegsmálaráðherra
skipaði: Alþingismennirnir Jón
Ármann Héðinsson, Lúðvík
Jósefsson, Guðlaugur Gíslason
og Jón Skaptason. Einn nefnd-
armanna, Sverrir Júlíusson, gat
ekki mætt vegna veikinda.
Einnig voru mættir á fundinum
Bragi Sigurjónsson og Ingvar
Gíslason alþingismenn.
Formaður landhelgisnefndar,
Jón Ármann Héðinsson, gerði
í upphafi fundarins grein fyrir
störfum nefndarinnar. Síðan
hófust miklar og almennar um-
ræður, sem voru mjög málefna-
legar og lýstu fundarmenn
ánægju sinni yfir komu nefnd-
armanna.
Engin ályktun var gerð, en
skipst á skoðunum í landhelgis-
málum.
í GÆRKVELDI frumsýndi
Leikfélag Akureyrar barnaleik
rit er nefnist Súlutröllið og er
það eftir Indriða Úlfsson skóla-
stjóra, sem er löngu þekktur
fyrir skemmtilega leikþætti fyr
ir börn og unglinga. Lög við
Ijóð í leikritinu hefur Birgir
Helgason samið og munu þau
óefað eiga eftir að ná miklum
vinsældum. Leikstjóri er frk.
Ragnhildur Steingrímsdóttir.
Leikendur eru 10, þar af 3 börn.
Næstu sýningar eru á morgun
og sunnudag og hefjast kl. 15
báða dagana.
UNGMENNAFÉLAGIÐ Reynir
og kvenfélagið Hvöt á Árskógs-
strönd sýnir um þessar mundir
gamanleikinn Leynimelur 13,
að Árskógi undir leikstjórn
Júlíusar Oddssonar og hefir
hlotið góða aðsókn. En þetta
grínleikrit hefur hlotið miklar
vinsældir og hefir verið sett á
senu vítt og breitt um landið
AM hvetur jafnt unga sem
aldnatilað sjá Súlutröll Indriða
á „fjölunum."
um árabil. Leikendur eru 12 og
fara eftirtalin með veigamestu
atriðin á „fjölunum“ að Ár-
skógi: Birgir Sveinbjörnsson,
Birgir Marinósson, Sigurður
Gunnlaugsson, Ólafía Halldórs-
dóttir, Soffía Sigurðardóttir,
Sigfús Þorsteinsson og Antonía
Antonsdóttir. — AM hvetur les
endur að líta inn að Árskógi.
Z'— 1 1
Nægar heybirgðir eru í Skíðadal og Svarfaðardal
Piltur og stúlka sett upp í Olafsfirði
Leynimelur 13 á Arskógsströndinni
Vænleiki dilka á s.l. hausti var mun betri en á undanförnum árum
Skíðadal í janúar. s. j.
BÆNDUR í Svarfaðardal
munu elcki þurfa að óttast fóður
skort þótt svalt blási á útmán-
uðum og fram á vor. Þótt seint
voraði varð grasspretta miklu
mun beti'i en nokkur þorði að
vona eftir útlitinu á sl. vori.
Svo vel réðist að nokkrir bænd
ui' urðu aflögufærir með hey til
mestu kalsvæðanna á Austur-
landi. Heyskapur gekk mjög vel
þótt sumarið væri stutt og
einnig varð vænleiki dilka mun
meiri en undanfarin haust,
þrátt fyrir það þótt illvígt
áhlaup gerði síðustu dagana í
september. Hey eru góð og
reyna bændur að spara fóður-
bætiskaup af fremsta megni sök
um aukinnar dýrtíðar.
Veg'ir hafa eigi teppzt að ráði
sökum snjóþyngsla það sem af
er þessum vetri.
Sjónvarp hefur haldið innreið
sína í dalina og líkar að mestu
vel, þó er sjónvarp eigi komið í
fram Svarfaðardal og á bæi á
austurkjálka Skíðadals og mun
valda þar nokkru um, að álit
tæknimenntaðra manna á þessu
sviði hafa látið það álit í ljósi,
að endurvarpsstöðin að Hóli við
Dalvík myndi eigi ná til
fremstu bæjanna í báðum döl-
unum. Ef þetta reynist rétt þarf
úr að bæta með sendistöð fram-
(Framhald á blaðsíðu 6)
ÆFINGAR standa yfir á sjón-
leiknum Piltur og stúlka, undir
leikstjórn Jónasar Jónassonar
og mun frumsýning verða um
miðjan febrúar. Leikendur eru
AÐ ÖLLUM líkum mun fjár-
hagsáætlun Akureyrar verða
afgreidd á bæjarstjórnarfundi
20 og meðal leikenda eru: Bjöm
Þór Ólafsson, Hanna Brynja
Axelsdóttir, Þorsteinn Jónsson,
Stefán Ólafsson og Bjöm Dúa-
son.
n. k. þriðjudag, þann 3. febrúar.
Vonandi gefst AM tækifæri til
(Framhald á blaðsíðu 7)
Fjárhagsáætlyn Akureyrarbæjar