Alþýðumaðurinn - 21.02.1969, Blaðsíða 4
iiiiiiliiiimmmiiiimimmimiiimimiimmimiimiiiimiiiiimmiiiimimimiiimiirmiiiimmiimimiiiiiiiiiiiiimiiriiiiiimiiiiiiiiiifiiiffiiiii ■■lll■l■lllt■lt■■tl■|l■l■ iiiiiiiiiiiiiini 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 miiimiiiiiiiiiiiiiii ifiiiiiiiiiiiiiiiiniiitiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiitfiiiiiiiiiiriiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiirii^
ffl
Ritstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (ób.).
Útgofandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Afgreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæð/ sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
ALÞÝÐUMAÐURINN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu;,,.
MIKIÐ í HÚFI
„FÁTT er svo með öllu illt, að ekki fylgi nokkuð |
gott“, segir máltækið. Hér í blaði hefir áður verið |
minnzt á, að efnahagserfiðleikar okkar liafi vakið okk- |
ur til meiri umliugsunar um ýmsar leiðir til fram- |
leiðsluaukningar og nýrra atvinnugreina. Einnig i
meiri vöruvöndunar, að ekki sé minnzt á endurmat á 1
lífsþægindum.
EN NÚ skulum við horfa í aðra átt og þó með velferð i
okkar í baksýn. Ríkisstjómin liefir komið á fót svo- I
nefndum atvinnumálanefndum úti í liinum ýmsu I
kjördæmum, en atvinnumálanefnd ríkisins sem yfir- |
stjórnanda. Sömuleiðis hefir ríkisstjómin lofast til að i
útvega 300 millj. kr. til atvinnuaukninga á hinum |
ýmsu stöðum og auglýst eftir umsóknum um féð. IIé^ |
er mikið í húfi, að vel takist um útdeilingu og not f jár- i
ins, en satt að segja erum við dálítið kvíðandi um I
úrslitin. Þegar er liafið æðisgengið kapphlaup um að |
ná sem mestu til þessa staðar eða hins, einkaframtakið, |
sveitarstjórnir og félagssamtök allt í einni stórbragða- |
glímu. Mikið veltur á, að undirnefndir og yfirnefnd |
kunni vel úr að vinza, en eru miklar líkur á, að þær =
bogni ekki fyrir persónulegum og pólitískum áhlaup- I
um? |
GÖMUL og ný reynsla af líkri fjármálalegri innspýt- |
ingu er því miður æði litförótt hjá okkur íslending- 5
um. Ömurlegar sögur ganga manna á milli um út- |
hlutanir úr atvinnujöfnunarsjóði, þar sem svindil- e
menni hafa geta notfært sér ókunnugleika stjórnenda |
herfilega, og allir þekkja liina mjög svo umdeildu að- I
ferð við aðstoð við atvinnuvegina, þar sem skussa- |
rekstur má heita verðlaunaður af ríkisstjórn eftir í
ríkisstjóm.
OKKUR verður þannig á að spyrja: Gerist enn lík |
saga og fyrr, að vafasamar framkvæmdir fái nú sem i
oft fyrr bróðurpartinn af fé almennings, sem ætlað er í
til atvinnuaukningar og framfaralieilla? Ófyrirleitnin |
er oft slyng í málflutningi.
EN ÞÓ við teljum okkur skylt að brýna hér fyrir þeim, i
sem úrslitum koma til að ráða um fjárúthlutun þessa |
nú, að gæta varfærni og sannsýnis, vonum við fastlega, i
að talsvert gott geti flotið af störfum atvinnumála- f
nefndanna, enda eins og fyrr segir, rnikið í húfi, að i
vel takist. Hinu skulu þær ekki leyna sig, að mjög |
verður á þeirra störf horft, og þá ekki sízt yfimefndar- |
innar, enda hún valdamest. Mundi það ugglaust vekja i
henni aukið traust og virðingu, ef hún heimsækti sjálf i
vandstöddustu staðina, en treysti ekki einvörðungu á |
annarra skýrslur.
^' ...............
ENN UM KVÖLDSÖLUR
A AKUREYRI.
Bæjarbúi skrifar eftirfarandi:
Mér finnst hæstvirt bæjarstjórn
okkar vera allkúnstug í gerðum
sínum og hugsunarhætti. Hún
sem sé hefir orðið landsfræg
fyrir, hvað hún ber núkla virð-
ingu fyrir gömlum reglugerð-
um, þótt þær stangist algerlega
á við alla sjálfsagða hætti í nú-
tíma þjóðfélagi. Á ég hér við
reglugerðina margfrægu, er
bannar kvöldsölu í höfuðstaö
Norðurlands og Akureyringar
eru orðnir að athlægi fyrir um
allt land og sízt að undra. Nú
er eins og bæjarstjórnin okkar,
að vísu á öðrum vettvangi, hafi
gert uppreisn gegn valdi reglu-
gerðanna. Hún býr í skyndingu
til nýtt embætti (hafnarstjóra)
þó að hvergi sé að finna í reglu
gerð eða lögum heimild fyrir
því embætti. Þetta ber svo sem
nokkurn vott um karlmennsku,
en mér hefði þó fundizt það enn
meiri hetjuskapur, ef bæjar-
stjórnarmenn hefðu tekið það
rögg á sig í uppreisn sinni gegn
reglugerðum, að þeir hefðu tætt
í sundur þá örmu reglugerð,
sem meinar þeirn verzlunar-
mönnum er kvöldsölu leyfi hafa
að verzla á kvöldin og auka
með því þjónustu við bæjarbúa
sjálfa og eigi síður við þá gesti,
sem að garði bera.
AKUREYRINGUR biður AM
fyrir beztu þakkir til Sverris
Pálssonar skólastjóra fyrir þátt
sinn um „dag og veg“ sl. mánu-
dag. Segir Akureyringur, að
gjarnan mættu oftar heyrast
góðar og hreinskilnar norð-
lenzkar raddir í útvarpinu, en
verið hefir til þessa. — AM er
á sama máli.
ÞORRI spyr, hvort rétt sé að
KEA hafi náð undir sig allri
verzlun í bænum livað bygg-
ingarvörur snertir. Hann segir,
að Byggingarvöruverzlun Akur
eyrar selji nú ekki Iengur aðrar
vörur en gler, spegla og máln-
ingu og altalað sé í bænum, að
Byggingarvöruverzlun Tómasar
Björnssonar hafi eftirlátið KEA
sinn lager af byggingarvörum.
Ef þetta er rétt, segir Þorri, ótt-
ast ég að KEA noti einokunar-
aðstöðu sína í þessu efni í þágu
sjálfs sín, en til tjóns fyrir hús-
byggjendur, ef þeir verða þá
nokkrir á þessu ári. Það mun
vera nokkur sannlekiur í þessu
hjá Þorra að verzlun með bygg-
ingarvörur séu að allmestu leyti
að færast yfir á eina hendi. AM
er þó ekki þeirrar skoðunar að
s==
=000=
KEA noti þá aðstöðu til að fé-
fletta viðskiptavini, eða hvert
er álit þitt, lesandi góður?
„ — brunninn Grímur, höggv-
inn Helgi, Héðinn stóð einn,
tepptur við gaflað og glotti við
tönn“.
Eitthvað svipað þessu má
segja um hið mikla mannfall í
bæjarfulltrúaliði Sjálfstæðisfl.
hér í bæ. Jón G. Sólnes stendur
einn uppi af þremur kjörnum
aðalfulltrúum, og segja þó margl
ir, að honum sé hugsuð þegj-
andi þörfin í næstu kosningum.
Nú lesum vér hins vegar lijá
„stjónmiálaforingja“ Sjálfstæð-
is hér í bæ, — herb. í 6. tbl. ísl.,
að aldeilis skuli jafnað um and-
stöðuflokkana í næstu kosning-
um. Þarf varla að efa sanngildi
þeirra orða, ef — lierb. leiðir
bardagann, enda almennaróm-
ur, að sigurstranglegri foringja
hafi Sjálfstæði hér ekki fengið,
síðan Halldór Blöndal hvarf af
HEYRT
SPURT
orustuvelli akureyrskra stjóm-
mála með sigurfána við hún.
Má þar segja, að alltaf leggist
Sjálfstæðinu eitthvað til.
En svo að gamni sé sleppt, þá
hefðum vér ráðlagt ritstjóra ísl.
að sækja íslenzkutíma hjá fyrir
rennara sínum við blaðið, Pela.
Aldrei hefði hann misskilið orð
ið „mannkaup“ (raunar mis-
prcntað mannakaup í AM), né
talað um „að stinga á svefn-
þomi“, svo sem núverandi rit-
stjóra hendir í umræddu 6. tbl.
sínu. Það heitir, að mannkaup
sé í þeim, sem duga vel, og sagtí
er, að einhverju sé stungið
svehiþorn, sem svæft er. Þann-
ig er það t. d. til umhugsunar
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hvort
honum hafi verið mannkaup í
núverandi ritstjóra ísl. og hvort
hann veki flokksfylgið eða
stingi því svefnþom.
„BER ER HVER AÐ BAKI
—“ heitir greinarstúfur í fsl. sl.
miðvikudag, þar sem ritstjórinn
reynir með útúrsnúningum að
sanna „hrossakaup“ upp á Al.-
\\S>
=s
þfl. varðandi kjör núverandi
bæjarstjóra. AM vill því endur-
taka fyrri yfirlýsingu sína um,
að þar fóru engir samningar
fram milli Alþfl. og Framsókn-
arfl. nema þeir, sem alltaf liafa
legið ljósir fyrir: þessir flokkar
stóðu saman að kjöri bæjar-
stjóra og forseta. Um skeið
horfði svo, að Sjálfstæði og jafn
vel Alþýðubandalag yrðu með í
þessu kjöri, og Jón G. Sólnes
yrði endurkjörinn forseti bæjar
stjórnar, en á síðustu stundu
þótti flokknum henta, ein-
hverra orsaka vegna, að draga
sig í hlé um þetta mál, og varð
þá að ráði, að Alþýðufl.fulltrúi
skipaði sæti 1. forseta. En að
þar liafi gerzt hrossakaup sézt
bezt, hve fráleitt er, þegar þess
er gætt, að forsetastarfi fylgja
hvorki völd né áhrif fram yfir
það, sem hver fulltrúi getur afl-'
að sér með persónulegum áhrifa
mætti sínum. Gildir þar allt
öðru máli um bæjarstjórastarf,
scm er launað og í höndum dug
mikils manns mjög valdamikið.
AM er enn þeirrar skoðunar, að
Akureyrarbæ hafi verið mann-
kaup gott í núverandi bæjar-
stjóra, enda ánetjist hann ekki
um of hinu gamla bæjarstjórn-
arílialdi Framsóknar og Sjálf-
stæðis, sem hann virðist raunar
í nokkurri liættu fyrir. Af þehn
sökum tók AM fram, að álit og
stuðningur við bæjarstjórann
væri hjá Alþfl. alltaf til endur-
mats, ef sú ánetjun gerðist af-
drifarík. Málefnalegan samning
freistaði Alþfl. ekki að gera við
Framsókn. Hafði af því rcynslu
af brigðum tveggja fulltrúa
lians við fyrrverandi bæjar-
stjóra, að þar var takmarkaðra
hcilinda að vænta, enda sýnir
„helmingaskiptareglan“, sem
Framsókn og Sjálfstæði hafa
tekið upp í stjóm hafnarmála,
að þar eru „bróðurböndin“ enn
ófúin.
„Milli manns og hests og
hunds hangir Ieyniþráður.“
RITSTJÓRI „strjálbýlisblaðs-
ins“ íslendings-ísafoldar þykist
liafa efni á því að gera grín að
fjárhagsörðugleikum „Verka-
mannsins“ í alláberandi ramma
grein á forsíðu blaðs síns. Ja,
miklir erum við Hrólfur minn.
Það er svo sem hægt að hreykjal
sér á lieimahaug „strjálbýlis-
blaðsins“ og gala gleiðgosalega
um skuldabasl litlu blaðanna á
kotbýlunum í kring. Það hefur
ekki verið neitt launungamál að
vikublöðin á Akureyri berðust
fjárliagslega í bökkum og munu'
(Framhald á blaðsíðu 7).
DAGBÓK A. M
EN ÞÓTT svart sé í álinn nú og dinnnar blikur enn i
á lofti, vill AM þó leyfa sér þá bjartsýni, að trúa á, að |
bjartari dagar séu framundan svo fremi að einstakl- |
ingar og þjóðfélagsstéttir skorast eigi undan að axla I
byrðar á meðan ótíð stendur yfir. Ríkisvaldi liggur ■
liér þung skylda á lierðum um að byrðunum verði |
skipt sem réttlátast niður á meðan hreggið gengur |
yfir. Við skulum trúa á þjóðargiftu, en eigi þjóðar- |
óhamingju.
CMiIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII?
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Sálmar: 285 — 337 — 290 —
370 — 264. — B. S.
SUNNUDAGASKÓLI Akur-
eyrarkirkju er á sunnudaginn
kl. 10.30. — Sóknai'prestar
GLERÁRHVERFI! Sunnudaga
skólinn í skólahúsinu kl. 1.15
n. k. sunnudag. Oll börn vel-
komin.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Almenn samkoma sunnudag-
inn 23. febrúar kl. 8.30 e. h.
Ræðumaður Gylfi Svavars-
son. Tekið á móti gjöfum til
kristniboðsins. — Allir vel-
komnir.
SAMKOMA á sunnudaginn kl.
4.30 e. h. Athugið breyttan
samkomutíma. — Hjálpræðis
herinn.
ÆSKULÝÐSHEIMILIÐ í skáta
heimilinu Hvammi verður
framvegis opið þriðjudaga og
fimmtudaga. Sömu reglur og
áður gilda. — Æskulýðsráð
Akureyrar.
FRÁ SJALFSBJÖRG.
Fjórða og síðasta spila
kvöldið verður laugar
daginn 22. febrúar að
Bjargi kl. 8.30 e. h. —
Dans á eftir.