Alþýðumaðurinn - 14.03.1969, Síða 1
Verzlið i sérverzlun.
ÞaS tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Simi 12820
Áskriftarsími AM er 1-13-99
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROMYNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
ap
ALÞÝÐUmAÐURINN
»0004
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 14. marz 1969 — 6. tölublað
Nái lengra en til aSalumferðarkerlisins
HLITI AF STARFSEMI SKIPULAGSDEILDAR
RÍKISINS VERÐI FLUTT TIL AKUREYRAR
EFTIRFARANDI tillaga frá
Skipulagsnefnd Akureyrarbæj-
ar lá fyrir síðasta bæjarstjórnar
fundi.
Skipulagning og stöðlun aðal-
umferðarkerfis bæjarins.
Skipulagsnefnd telur, að þeg-
ar aðalskipulagi hafnarinnar er
lokið, sé eðlilegt að næsti stóri
áfangi í skipulagningu Akur-
eyrarbæjar sé skipulagning og
stöðlun aðalumferðarkerfis
(gatnakerfis) bæjarins. Stað-
setning hafnarmannvirkja er
grundvallarskilyrði þess að
unnt sé að ganga frá skipulagi
umferðarkerfisins, en ákvörðun
þess er nauðsynleg svo hægt sé
að ganga frá skipulagi bæjarins
að öðru Ieyti. Landslag, ýmis
mannvirki og fleiri atriði valda
erfiðleikum í skipulagningu um
ferðarkerfisins, og telur nefnd-
in nauðsynlegt að fá sérfræði-
lega aðstoð til að vinna þetta
verk.
Haukur Haraldsson, annar af
bæjarfulltrúum Alþýðuflokks-
ins, gerði þá athugasemd við
þessa samþykkt, að hún væri
eigi nógu víðtæk, þar sem ein-
göngu væri talað um skipulag
umferðar, en eigi skipulag
mannvirkja, bygginga o. fl., og
taldi Haukur það tímabært að
tekin væri ákveðnari stefna í
(Framhald á blaðsíðu 7).
1. Gert er ráð fyrir 160 m. viðlegukanti til norðausturs og 50 m. kanti til norðurs við Torfuncf fyrir
skip, sem ekki þarfnast vöruafgreiðslu. — 2. Sunnan Strandgötu, vestan Hjalteyrargötu, er gert ráð
fyrir uppfyllingu, sem verði hluti miðbæjar. — 3. Sunnan Strandgötu, austan Hjalteyrargötu, er gert
ráð fyrir almennri vöruhöfn með fjórum vörugeymslum á hafnarbakka. Er þar gert ráð fyrir 350 m.
viðlegukanti. Auk 250 m. kants í framhaldi af honum til norðurs, austan á Oddeyrartanga. Við þann
kant er m. a. gert ráð fyrir aðstöðu til uppskipunar sements og korns. Síðar meir er gert ráð fyrir að
sá kantur haldi áfram til norðurs (300 m.). Þar fyrir norðan er gert ráð fyrir fiskhöfn, fyrst lönd-
unarbryggju fyrir fiskiðjuver, (kantlengd 2x80 m.) — 4. Þá kemur viðlegukantur frá þeirri bryggju
að Togarabryggju (210 m.). Gert er ráð fyrir lengingu austurkants Torgarabryggju í 90 m. — 5. Norð
an hennar komi bátakví, sem varin ar af 200 m. löngum hafnargarði. Gert er ráð fyrir smábátahöfn
þar sem hún er nú, en nyrsti hluti liafnarsvæðisins sé viðgerða- og skipasmíðakantur, sem orðið geti
um 200 m. langur.
Bæjarstjórn Akureyrar liefur
samþykkt skipulag framtíðar-
hafnarmannvirkj a bæj arins
Á FUNDI bæjarstjórnar Akureyrar sl. þriðjudag var samþykkt
framtíðarskipulag Akureyrar, sem meirihluti liafnarstjórnar hafði
mælt með. Var skipulagið samþykkt með 8 atkv. en 3 sátu hjá, Jón
G. Sólnes, Jón Ingimarsson og Jón B. Rögnvaldsson. Blaðið birtii'
liér á eftir tillögur meirihluta hafnarstjórnar er bæjarstjórnin sam-
þykkti. Einn fulltrúi í liafnarstjórn, Tryggvi Helgason, var mót-
fallinn skipulaginu.
Aðalskipulag Akureyrarhafnar. ur til, að skipulagið eins og því
Meirihluti hafnarstjórnar legg er lýst í fundargerð frá 8. marz
sl. verði samþykkt í höfuðatrið-
um, að því er tekur til hafnar-
mannvirkja. Hins vegar bendir
hafnarstjórn á að rannsóknum
á hafnarsvæðinu sunnan Strand
götu er ekki enn lokið, og gætu
niðurstöður rannsókna haft
áhrif á endanlega staðsetningu
hafnarmannvirkja. Auk þess
(Framhald á blaðsíðu 7)
Sorgleg tíðindi
ÞRETTÁN SJÓMENN FARAST
í SÖMU VIKl
ENN hafa váleg tíðindi gerzt
er nístir þjóðina alla. Þrett-
ón sjómenn hafa lótið lífið á
nokkrum dægrum. Mikil
blóðtaka fyrir fámenna þjóð.
En sárast svíður þó harmur-
inn í brjósti ástvina hinna
látnu.
Aðfararnótt 6. marz biðu
6 skipverjar á togaranum
Hallveigu Fróðadóttur bana
er eldur kom upp í skipinu,
og hinn sama sólarhring
fórst einn skipverji af tog-
aranurn Agli Skallagríms-
syni, en togarinn var þá
staddur í höfn í Þýzkalandi.
Þá er sýnt að tveir vélbátar
hafa farizt úti fyrir Suð-
vesturlandi fyrir síðustu
helgi. Fagranes, 17 toima bát
ur frá Akranesi, nýkeyptur
frá Þórshöfn, með þriggja
manna áhöfn, og Dagný, 27
tonna bátur einnig nýkeypt-
ur til Hafnarfjarðar frá
Homafirði og hét þá Tinda-
röst, einnig með þriggja
manna áhöfn. Mikil og víð-
tæk leit hefur verið gerð að
þessum bátum, en án árang-
urs. Bjarghringur rak í land
merktur Fagranesi skammt
frá Garðskaga.
Átján börn hafa verið
svipt föðurforsjá við þessar
mannfórnir.
AM sendir öllum ástvin-
um hinna föllnu sjómanna
innilegar samúðarkveðjur og
biður þeim styrk frá guði og
góðum mönnum.
Leiðarinn: KAUPGJALDSVANDINN