Alþýðumaðurinn - 23.05.1969, Blaðsíða 8
* Valbjörk h.f. Akureyri
Sumarið loks komið
- s\V^=-.
Smnarbúðir ÆSK
HÆTTULEGUR LEIKUR
Nú í vikunni var kveikt í sinu í brekkunni við Eyr-
arlandsveg — en sem betur fór urðu litlar skemmd-
ir. En AM vill vara alla við að fara óvarlega með eld, því að stórtjón getur af hlotist. Á myndinni sézt
Sigurður Gestsson að slökkva í sinunni. — Ljósmynd: Hallgrímur Tryggvason.
í Lystigarðinum var skynjað fótafak vorsins - og
goft var að una þar dagsfund með vormönnunum
Jóni og Kristjáni
EINS og Akureyringar munu
minnast, blés svalan af norðri á
uppstigningardaginn þann 15.
maí sl. Þeir sem árrisulir voru
þann dag litu bæinn hrím-
skreyttan eftir frostkalda nótt.
Enginn gat séð það á neinu að
vor væri komið, utan þess hve
sólin reis snemma og hra.kti
hrímið á flótta inn í húsasund,
þangað sem geislar hennar náðu
ekki að smjúga.
En heimsókn í Lystigarð Ak-
ureyrar til bræðranna Jóns og
Kristjáns Rögnvaldssonar
glæddi trúna á það að vora
myndi því að líta mátti fótspor
vorgyðjunnar í ríki þeirra
bræðra. Sjá mátti í lundinum
þeim, er konur á Akureyri
skópu að moldin var vöknuð úr
vatrarhelsi. Garðurinn var vel
snyrtur, en séð voru sár á trjá-
gróðri eftir fárviðrið mikla í
vetur, er AM líkti við eyð-
ingu Sódóma í fyrndinni og
hlaut spé fyrir og skömm í lúð-
an hattinn.
Eins og Akureyringar munu
vonandi vita var Lystigarður
Akureyrar stofnaður af akur-
eyrskum konum árið 1912 og þá
voru fyrstu tréin gróðursett í
garðinum. Árið 1857 var gras-
garði bætt við, er aukið hefur
að mun hróður garðsins, en
uppistaðan í grasagarðinum var
grasasafn systkinanna í Fífil-
gerði, sem Fegrunarfélag Ak.
keypti. Þetta er nyrzti grasa-
garður í heimi og eru þar nú
um 2400 tegundir, en í Lysti-
garðinum öllum yfir 4000, má
nefna að þar eru nær allar ís-
lenzkar plöntutegundir — og
svo jurtir víðsvegar að úr heim
inum. Gaman var að staldra við
í gróðurhúsi garðsins, þar mátti
líta fagrar plöntur sumarblóma,
er biðu þess að sunnanblærinn
kæmi svo að unnt reyndist að
gróðursetja þær í vaknandi
moldu.
Jón Rögnvaldsson hefur haft
(Framhald á blaðsíðu 6).
Frá Bðrnaverndarfélaginu
AÐALFUNDUR Barnaverndai'
félags Akureyrar var haldinn í
leikskólanum „Iðavöllum“
sunnudaginn 7. maí sl.
Félagsmenn eru um 90. Félag
ið rekur leikskólann „Iðavöll"
og eru þar að jafnaði 50—60
börn. Þó hefur verið heldur
minni aðsókn að skólanum í
vetur en áður. Forstöðukona er
frú Erla Böðvarsdóttir, fóstra,
og með henni starfa 4 gæzlu-
stúlkur. Framkvæmdastjóri er
Páll Gunnarsson, skólastjóri.
Leikskólinn nýtur styrks frá
bæ og ríki.
Fjáröflunardagur félagsins
var fyrsta vetrardag. Þá var
seld barnabókin ,Sólhvörf“,
merki dagsins og kvikmynda-
húsin gáfu félaginu kvikmynda
sýningar. Að þessu sinni sá
Þórir S. Guðbergsson, rithöf-
undur, um efni bókarinnar.
Rætt var um kynningarkvöld
fyrir félagið og nauðsyn á að fá
sálfræðing í bæinn vegna upp-
eldismálanna. Fyrr á árinu var
rætt um byggingu annars leik-
skóla eða vöggustofu, en ekki
þótti fært að leggja út í það við
núverandi aðstæður.
(Framhald á blaðsíðu 6).
SÍÐUSTU DAGA hefur hæg og
mild sunnanátt gefið Norðlend-
ingum fyrirheit um að sumarið
sé loksins komið. Hafísinn hef-
ur látið undan síga og fjarlægzt
landið — og nú má orðið líta
gróðurlit á túnum Svalbarðs-
strandar og í velhirtum görðum
í bænum, þó er bleiki liturinn
enn meira áberandi en hinn
græni litur sumarsins, en allir
vona að sumarið sé fyrir alvöru
nú loksins komið.
Sauðburður gengur vel.
Þaðan sem blaðið hefur fregn
að hefur sauðburður gengið vel,
en hinir þrálátu kuldar og gróð
urleysi hafa neytt bændur til
mikilla fóðurbætiskaupa, þrátt
fyrir það að hey eru víðast hvar
næg, en ætlun margra bænda
var að komast hjá miklum fóð-
urbætiskaupum ef vel hefði vor
að. Margir bændur eiga nú um
þessar mundir í erfiðleikum við
að leysa út áburð, en eins og
kunnugt er hækkaði hann gífur
lega í verði sökum gengisbreyt-
ingarinnar í haust.
Mokafli víða norðanlands.
Óvenjulega mikill afli hefur
borizt á land víða norðanlands
Fimmlíu sjúkraliðar hafa
veriS úlskrifaSir frá FSA
FRÁ Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri voru brautskráðir 9
sjúkraliðar þann 2. maí sl.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir,
forstöðukona sleit námskeiðinu
og afhenti nemendum próf-
skírteini.
Þetta er fjórða námskeiðið í
sjúkrahjálp, sem haldið hefur
verið í sjúkrahúsinu. Það stóð
yfir í 8 mánuði. Nemendur luku
skriflegum prófum í líkams-
fræði og verklegu prófi í
(Framhald á blaðsíðu 7)
NÁMSKEIÐ fyrir börn í Sumar
búðunum að Vestmannsvatni í
Aðaldal, S.-Þing„ hafa verið
ákveðin sem hér segir:
Drengir 7 til 9 ára 19. júní til
30. júní.
Drengir 10 til 13 ára 1. júlí til
16. júlí.
Stúlkur 7 til 9 ára 28. júlí til
8. ágúst.
Stúlkur 10 til 13 ára 9. ágúst
(Framhald á blaðsíðu 3)
j arljós“ og mun Erla syngja j
I þar nokkur vdnsæl Iög, en |
j undirleik annast Gunnar j
1 Þórðarson, Karl Sighvats- |
j son, Jóhann Jóhannsson og 1
| Pétur Östlund. Munu hinir i
i fjölniörgu aðdáendur Erlu |
i eigi láta þennan þátt fram |
i hjá sér fara — og þakka skal i
j sjónvarpsmönnum fyrir. En i
i svo spyrja margir. Fer ekki i
j að styttast í það að við sjá- i
i um og heyrum Smárakvart- i
i ettinn á Akureyri á sjón- i
i varpsskerminum?
á þessu vori, t. d. í Ólafsfirði,
Dalvík og Sauðárkróki. Hins
vegar hefur grásleppuveiðin
víða verið mjög rýr til að
mynda á Húsavík, Flatey, Hrís-
ey og víðar.
| Erla í sjónvarpinu |
i HIN vinsæla söngkona okk- j
j ar Erla Stefánsdótátir kemur =
i fram í sjónvarpinu annað j
j kvöld (24. maí). Nefnist i
i þáttur söngkonunnar „Leið- j