Alþýðumaðurinn - 23.06.1969, Blaðsíða 1
Verzlið i íérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brckkugötu 5 . Sími 12820
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍM3 (96)11520
PEDROM YNDIR Akureyri
39. árgangur — Akureyri, mánudaginn 23. jútu' 1969 — 15. tölublað
Hekla hin nýja minnist í fyrsta skipti við saltan mar.
Ljósmyndastofa Páls.
Varar við félksfíðffa úr iandi | Stór sfund í sögu Akureyrar
I EFTIRFARANDI tillaga var
í samþykkt á ársþingi Héraðs
É sambands Suður-Þingey-
É inga, er háð var að Grenivík
l þann 8. júní sl.
Í „56. þing HSÞ telur þá þró
Í un varhugaverða, að fólk
I flytjist í stórum stíl úr landi
Í vegna vantrúar á fjárhags-
É legri afkomu hérlendis og
Í beinir því til stjórnar sam-
bandsins að leita samstarfs
innan ungmennafélagshreyf-
ingarinnar og við önnur fé-
lagssamtök, sem til greina
gætu komið að stemma stigu
við þessari óheillaþróun.“
AM tekur liér með undir
þessa ályktun þingeyskra
ungmennafélaga. — AM get-
ur um ársþing HSÞ nánar í
næsta blaði.
Stærsta skipi, sem smíðað hefur verið á íslandi,
var flotað síðastliðinn föstudag
ð
Akureyri 20. júní. S. J.
ÞAÐ VAR vissulega stór stund í sögu Akureyrarhæjar, þá er fyrra
strandferðaskipið er Slippstöðin smíðar fyrir Skipaútgerð ríkisins
var flotað laust fyrir kl. 2 sl. föstudag. Var margt um manninn í
Slippstöðinni til að fagna þessum atburði og ríkti eftirvænting og
fögnuður í svipmóti fólksins.
s
Akureyri 21. júní. S. J.
RITSTJÓRI AM hefur sjaldan
glaðzt jafn mikið þá er hann
mætti í kaffisamsætið á Hótel
KEA, er hann sá að boðsgestir
voru þar í miklum meirihluta
þeir starfsmenn Slippstöðvar-
innar, er skópu hinn nýja far-
kost, ásamt konum sínum. Hér
var ekki um neina toppsamkomu
að ræða yfirmanna stöðvarinn-
ar og ráðamanna að sunnan, því
að þar sátu allir við sama borð.
Samsætinu stýrði Bjarni Jó-
hanncsson stjórnarformaður
Slippstöðvarinnar.
Til máls tóku Bjarni Einars-
son bæjarstjóri, er lagði áherzlu
á framtíðargengi Slippstöðvar-
innar og drap á þá staðreynd,
að þetta fyrirtæki, ásamt Út-
gerðarfélagi Akureyringa h.f.,
mætu teljast lífakkeri aukinnar
uppbyggingar Akureyrar — og
drap á það í því sambandi, að
í skipasmíðastöðinni gæti í ná-
inni framtíð farið fram endui'-
nýjun togaraflota Akureyringa.
Næstur tók til máls Magnús
Jónsson fjármálarúðherra og
gat hann þess í upphafi, að Egg-
ert G. Þorsteinsson sjávarút-
vegsmálaráðherra og hann
hefðu á sínum tíma tekið
ákvörðun um það að endurnýj-
un strandferðaskipanna skyldi
fara fram héi' á Akureyri — og
mætti segja að framtíðarsmíði
stálskipa hefði í raun og veru
verið lögð í hendur forstjóra
Slippstöðvarinnar á Akureyri,
og eigi væri enn séð að hann
og starfsmenn hans hefðu brugð
izt því trausti — og árnaði ráð-
herra fyrirtækinu allra heilla í
þágu lands og þjóðar.
starlsmenn
Að síðustu talaði Brynjólfur
Ingólfsson ráðuneytisstjóri og
(Framhald á blaðsíðu 5)
Athöfnin hófst með því að
Skapti Áskelsson forstjóri Slipp
stöðvarinnar flutti ávarp og
bauð gesti velkomna — og sagði
m. a.: „Fyrir okkur Slippstöðv-
armenn er þetta merkisdagur,
þar sem hér er um að ræða
stærsta verkefni, sem' við höf-
Frú Jóna Jónsdóttir skírir skipið Heklu. Ljósmyndastofa Páls.
Samtök skipasmíððstöðva
er nauðsyn
Ein teiknistofa er hag-
ræðing sem vinna ber
að í framtíðinni
Akureyri 19. júní. S. J.
Á FUNDI Alþýðuflokksfélags-
ins í kvöld, þá er rætt var um
stálskipasmíði á landinu, kom
Jón Ármann Héðinsson alþingis
maður fram með þá athyglis-
verðu tillögu, að mun nánara
samvinna, samkomulag og hag-
ræðing væri brýn nauðsyn varð
andi eflingu og uppbyggingu
þessa framtíðargreinar íslenzks
iðnaðar í landinu, og tók sem
dæmi jákvæða þróun í þessu
efni er átt hefur sér stað er-
lendis, svo sem í Noregi og
Spáni. Nefndi hann sem dæmi
að innlendu skipasmíðastöðvarn
ar kæmu sér upp sameiginlegri
teiknistofu, sem vissulega
myndi til hagræðingar fyrir
þessa mikilvægu framtíðariðn-
grein á íslandi. Það skipulags-
starf hlyti að stuðla gegn handa
hófsframkvæmdum í þessum
málum.
Tekur AM ákveðið undir þess
ar tillögur alþingismannsins.
um tekið að okkur og jafnframt
er þetta skip hið stærsta sem
íslendingar hafa smíðað. Við
trúum því að verkið hafi tekizt
vel fram að þessu og höldum
ótrauðir áfram.“
Að loknu ávarpi forstjórans
tók Eggert G. Þorsteinsson sjáv
arútvegsmálaráðherra til máls
— og birtir AM ávarp hans orð-
rétt í blaðinu í dag.
Að ávarpi ráðherrans loknu
skírði frú Jóna Jónsdóttir eigin
kona sj ávarútvegsmálaráðherra
skipið: „Ég óska þér og áhöfn
þinni blessunar og alls velfarn-
aðar á hafi úti sem við strendur
íslands. Ég skíri þig HEKLU“,
sagði frúin um leið og kampa-
vínið freyddi um kinnung skips
ins við mikinn fögnuð áhorf-
enda. Að svo búnu tók hin nýja
Hekla við sér og rann af krafti
út úr háreistu húsi skipasmíða-
stöðvarinnar og innan stundar
hafði hún minnst við saltan sjó
í fyrsta sinni.
Flotun hinnar nýju Heklu
tókst giftusamlegá og boðar
fararheill. Ef ekkert óvænt kem
ur fyrir mun hin nýja Hekla
verða tilbúin til afhendingar til
eigenda ekki síðar en í október
í haust. Smíði skipsins byrjaði
í júní í fyrra. í fyrstu störfuðu
um 40 manns við smíði skipsins,
en þá er innréttingar hófust
hafa starfsmenn verið 80. Sam-
hliða smíði Heklu hefur verið
unnið að öðru strandferðaslcipi,
sem er samskonar og er miðað
við að það skip verði tilbúið í
október á næsta ári. Öllum sem
hafa þekkingu á smíði skipa,
ber saman um það að allur frá-
gangur skipsins sé hinn vand-
aðasti og starfsmönnum öllum
til mikils sóma.
'MM>IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMIMMMMHMMIMP||
r ®
nyja
UPPLÝSINGAR UM
SKIPIÐ er byggt sem einnar
skrúfu flutningaskip með
íbúðum fyrir 12 farþega, og
19 manna áhöfn. Stærð þess
er 950 tonn með lestarými
sem er 53120 cbft. og frysti-
rými sem er 8400 cbft. Mesta
lengd er 68.40 m. og mesta
breidd 11.50 m. Dýptin er
6.10 m.
Skipið er byggt samkvæmt
„Loyds Register of shipping"
flokki 100 a 1, styrkt fyrir
siglingar í ís Klassi 3. Það er
búið 1650 ha. Deutz-aðalvél,
ásamt þremur ljósavélum af
Pacman-gerð, samtals 775
KVA. Gert er ráð fyrir því,
að skipið nái 13 mílna gang-
hraða á klst.
Fermingar- og afferming-
arbúnaður skipsins eru tvær
3 tonna bómu, einn 5 tonna
krani og 20 tonna kraftbóma.
Lestarlúgurnar eru af Mc-
Gregor-gerð og lestaropin
það stór að auðvelt er að
HEKLA
NYSMIÐINA
nota svokallaða „Containers“
og gaffallyftara í lestum, en
það er mjög þægilegt og flýt
ir fyrir við losun og lestun
skipsins.
Samningur um smíðina
var undirritaður 3. marz 1968
og hófst hún fyrir u. þ. b. ári
síðan þ. e. í júní 1968. í verk-
inu unnu til að byrja með
um 40 manns en frá sl. ára-
mótum, eða frá því að inn-
réttingar hófust, hafa unnið
þar um 80 manns. Samhliða
smíði þessa skips hefur verið
unnið að smíði sams konar
skips fyrir sama aðila, og
verður strax hafist handa
við að reisa það inni, þegar
fyrra skipinu hefur verið
hleypt af stokkunum.
Gert er ráð fyrir því, að
smíði fyrra skipsins verði lok
ið í október n.k. og að seinna
skipið verði afhent í október
1970.
Leiðarinn: SKIPI FLOTAÐ
GREIN EFTIR BJÖRN KRISTINSSON - Sjá bls. 5
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.00.