Alþýðumaðurinn - 23.06.1969, Blaðsíða 7
- Heyrt, spurt...
(Framhald af blaðsíðu 4).
þökk fyrir — og sérstaklega vil
ég færa því þökk fyrir þátt sinn
um frelsishetjuna okkar góðu,
Jón Sigurðsson, í ágætri fram-
sögn Eiðs Guðnasonar. Hins veg
ar varð ég fyrir vonbrigðum,
live sjónleiknum Manni og
konu var þröngur stakkur skor
inn, þ. e. mikið niður fellt, og
mætti sjónvarþið vel um bæta
síðar. En þétta er útúrdúr. Dag-
skrá þjóðhátíðar á Akureyri var
ekki eins þjóðleg og dagskrá
sjónvarpsins. Hvers vegna
þurftu söngvarar danshljóm-
sveita að kyrja á ensku daginn
þann? Já, og mig langar til að
bæta við. Var nauðsyn að fá
skenimtikrafta úr Reykjavík,
eflaust dýrselda? — og í lokin
skal spyrja og hverfa til Sjó-
mannacfagsins síðasta. Er það
rétt að Jörundur Guðmunds-
son, Akureyringur í æsku en nú
Reykvíkingur, hafi uppskorið
10 þúsund kr. frá Sjómanna-
dagsráði Akureyrar fyrir það
að mæla fram vatnsmengaða
brandara um stundarfjórðungs-
skeið auk frírra ferða fram og
til baka? Ef þeíta er rétt vil ég
fullyrða að korters brandarar
Jörundar hafi verið næsía of-
borgaðir cg tel ég mig ekki ein-
an um þá skoðun.
SVO ER ÞAÐ SANA.
Það var víst fyrir sumarmál
að góður Akureyringur spurði
eftir hverjir skipuðu stjórn
Sana, fyrir liönd Akureyrar-
bæjar og ríkis, því sem alkunna
er, er Sana að mestu nú orðið
þjóðnýtt fyrirtæki. AM minnist
þess ekki að fréttatilkynning
hafi borizt blaðinu um stjórn
hins endurfædda fyrirtækis, en
hefur hins vegar fregnað það
af skotspónum að prokuruhafi
ölgerðarinnar sé nú Ásmundur
Jóhannsson fulltrúi bæjarfógeta
Akureyrarkaupstaðar.
OKURSALA Á AKUREYRI
ÞANN 17. JÚNI.
Eins og undanfarin ár, var
útisala á Akureyri 17. júní og
fylgdi þeirri aíhöfn sama okur-
álagið, sem venja er liér á Akuii
eyri. Sem dæmi má nefna að
valashflaska kostaði kr. 15.00 en
kostar í öllum búðum kr. 7.50
með fullri álagningu. Þarna er
lireint og beint stolið af hverj-
um kaupanda kr. 7.50. Eða með
öðrum orðum að kaupandinn
greiðir tvær flöskur af valash á
kr. 15.00 sem er hámarksverð,
en fær afhenta aðeins eina
flösku. Verðlag á öðrum vörum
á þessari frægu göíusölu mun
Iiafa verið svipað og á valashn-
um, að vísu kostuðu pylsur ekki
nema kr. 20.00 en þær voru líkai
kaldar og hráar. Sígarettur, sem
hámarksálagning er á og hvergi
á landinu má selja á hærra
verði en kr. 39.50—44.00, voru
þarna seldar á kr. 50.00. Mörg-
um blöskraði verðlagið og full-
yrtu margir að hvergi á landinu
nema á Akureyri væri þjóð-
hátíðardagurinn notaður til að
okra á almenningi, og svo látast
þau félög er fyrir þessari okur-
sölu standa vera að vinna góð-
verk með því að okra á fólki.
Getur það verið, að svona fjár-
7dráttur blessist? Væri nú ekki
nær að lofa kvöldsölunum að
hafa opið þennan dag og selja
með réttu verði, eða þolir okrið
ekki samkeppnina. Annars var
BSO opið fyrripart dagsins, en
var lokað með lögregluvaldi
þegar á daginn leið. Líklega hef
ir verðið á vörunum þar verið
of lágt. Þá mun hafa verið opin
verzlun á bæjarklósettunum til
kl. 02 og margur maðurinn mun
hafa náð þar í vörur á réttu
verði. Líka var opin verzlun í
Umferðarmiðstöðinni.
Nú langar okkur nokkra bæj-
armenn sem liér erum saman
konmir að fá upplýst hverjir
standa fyrir þessu okurverðlagi
og hverjir beri í raun og veru
ábyrgð á því. Sumir okkar
halda því fram, að það sé bæjar
stjórnin sjálf sem þessu ræður,
aðrir að það sé 17. júní-nefndin,
en þarna álít ég að sé sami
grautur í sönni skál, því bæjar-
stjórn kýs nefndina. Og má þá
með sanni segja, að það sé ekki
í fyrsta sinn sem bæjarstjórn
fer í gegnum sjálfa sig. Reyk-
víkingar sem hér voru staddir
segja að í Reykjavík þekkisi
ekki svona fyrirkomulag, þar
séu allar kvöklsölur og sölu-
turnar opnar og selt á réttu
verði, það er að segja á sama
verði og aðra daga. Síðan er svo
útisölu í tjöldum bætt við. Nú
spyrjum við: Er ásetningur að
ýta fólki svona smátt og smátt
burtu héðan frá Akureyri vegna
okurstarfsemi, og getur það ver
ið, að forráðamenn bæjarins
standi fyrir þessu ranglæti? Er
ekki nóg að á okkur eru lögð
hærri gjölcl en þekkist annars
staðar? Við sem að þessu bréfi
stöndum óskum eftir að nöfn
okkar verði ekki látin uppi, af
ótta við að útsvörin hækki þá á
næsta ári, því þótt sumir okkar
verði flúnir liéðan fyrir dýrtíð,
þá verða vonandi einliverjir eft/
ir, en á þá bætast þá að sjálf-
sögðu gjöld þeirra burtflúnu.
Að lokum viljum við skora á
alla sanngjarna Akureyringa að
taka höndum saman og hrynda
burtu okur-ósómanum úr bæn-
um, og láta næsta 17. júní verða
með sama sniði og venja er í
Reykjavílc, þar eru allar búðir
opnar, sem selja á almennu og
venjulegu verði.
Nokkrir Akureyringar.
EIGI VELDUR SÁ,
ER VARAR.
Góði ritstjóri.
Það er miður farið, að ábend-
ing okkar varðandi gangbraut-
ina við gatnamót Glerárgötu og
Geislagötu skyldu fara svo í
taugar umferðarnefndar og/eða
lögreglu, að fyrsta framtakið
eftir þjóðhátíðina var að mála
4 zebrastrik (að mínu áliti
ASNASTRIK) utan akvegar
þar, og svo ekki söguna meir!
Þetta einstæða framtak (en
önnur strik voru þá ekki mál-
uð) verður að skilja sem svar
við meinlausri ábendingu
minni, byggðri á einróma áliti
þeirra, sem fara þar yfir götu.
í sumar má vænta mikillar
umferðar bíla úr nær öllum bæj
um og sveitum landsins. Hví
vill ekki umferðarnefnd vinna
að því, að þessir ferðamenn okk
ar komist í gegnum bæinn al-
lieilir af ákeyrslu á blindum
gatnamótum? Aðkomufólk er
vant stuttum gangbrautum, og
því er ástæðulaust fyrir þá, sem
vaka eiga yfir öryggi í umferð,
að hrista hausinn yfir sanngjörn
um ábendingum í máttvana
stolti þess sjálfbirgingsskapar,
sem nefndur hefur verið „VÉR
EINIR VITUM“. Þessi viðbrögð
gera bæjarbúum ekki eins mik-
ið ógagn. Þeir sjá sjálfir, aÖ
hættuminnst er að fara yfir
götu, þar sem langt sézt til
beggja átta.
Bærinn okkar er fátækur og
málning dýr. Því ætti ekki að
eyða slíku efni í málningu asna
strika utan akbrauta, heldur að
eins þar, sem hún má að gagni
verða og þjóna því hlutverki að
draga úr slysahættu. Ég vona,
að þú getir komið því til leiðar
við samkrata þína í bæjarstjórn,
að þeir neyti síns „vinstra“ sam
starfs til að koma því fram, að
umferðarnefnd verði launuð
eins og flestar aðrar nefndir
bæjarins, hvort svo sem laun
hennar yrðu núðuð við funda-
fjölda eða mæld eftir zebra-
strikum (en lielzt ekki asna-
strikum), og mætti þá ætla, að
hún fengi fremur ástæðu til að
taka þær ábendiugar venjulegra
borgara til greina, sem fela eiga
í sér aukið öryggi í umferöinni.
Þakka þér birtinguna.
J. Ó. P.
HVAÐ HEFUR GERZT
Á GEFJUN?
Sú saga liefur grasserað um
bæinn að undanförnu, að eigi sé
þar alií með felldu. Stórfellt
misferli hafi átt sér þar stað,
m. a. þjófnaðir í stórum mæli,
sem ýmsir starfsmenn fyrir-
tækisins séu bendlaðir við.
Þetta mál er svo alvarlegt, að
óforsvaranlegt er með öllu að
það sé þagað í hel af ráðendum
verksmiðjunnar. Ef svo verður
gert er verið að setja blett á
alla starfsmenn fyrirtækisins,
eins þeirra er telja ráðvendi og
heiðarleik sinn aðal. Ég skora,
og ég veit að ég mæli fyrir
munn margra, að þegar í stað
fari fram í þessu máli opinber
réttarrannsókn og niðurstöður
þeirrar rannsóknar verði gerð
almenningi heyrunkunnar.
MYNDI EKKI HAFA NÁÐ
LANDSPRÓFI í STÆRÐ-
FRÆÐI.
Nú nýverið er ritstjóri íslend
ings að bera það á krata, að þeir
séu fjöllyndir — og tekur hann
sem dæmi þá fullyrðingu að á
þeim bæjarstjórnarfundi er
kosnir voru forsetar bæjar-
stjórnar, að þessir fjöllyndu
kratar hafi ýmist hallað sér að
Framsókn og annað veifið til
Ingólfs Árnasonar, en stingur
því hins vegar undir stól að
skoðanabræður hans í bæjar-
stjórn sýncli þá fjöllyndi að
kjósa í fyrsta skipti Braga Sigur
jónsson forseta bæjarstjórnar
og hefði því Herbert líka átt að
snúa geiri sínum til eigin flokka
bræðra.
En svo er það aftur annað
mál, að ritstjóri íslendings-ísa-
foldar, að honum verður líka
það á að gata á þó mjög einföldu
stærðfræðidæmi. Hann getur
um þess í útreikingi sínum að
„stóru flokkarnir“ hefðu einir
haft möguleika á því að koma
fulltrúum í 5 manna nefndir, úr
því að Alþýðubandalagið var
klofið. Þetta er alger misskiln-
ingur, seln allir sjá að er vitlaus
útreikningur. Jafnaðarmenn
komu fulltrúa í allar 5 manna
nefndir án liðveizlu frá öðrum.
Hins vegar töldu jafnaðarmenn
það ekki neitt fjöllyndi að fylgis
menn Ingólfs Árnasonar, er skip
uðu annað sæti á A-listanum,
freistuðu gæfunnar við kandí-
data íhaldsins er skipaði annað
sæti, létu heppnina ráða í hlut-
kesti um annað sætið. A-listinn
var sigursæll í öllum þrem hlut
kestunum, eins og kunnugt er.
Þá tilviljun er vart hægt aJ
kalla fjöllyndi, fremur harm-
rænu ihalclsins. Vonar svo AM,
að þessi staðreynd verði þess
valdandi að Herbert vandi bet-
ur útreikninga sína framvegis.
LEITAÐ TIL TANNLÆKNIS
TIL DALVÍKUR.
AM hefur fyrir nokkru haft
góðar heimildir um það að Ak-
ureyringar hafi nú nokkrum
sinnum þurft að leita til Sigur-
björns tannlæknis á Dalvík til
þess að hljóta tannviðgerðir.
AM finnst þetta furðuleg þjón-
usta af tannlæknuin bæjarins
og biður þá að gera grein fyrir
þessu máli. Orðið er laust og
blaðið er opið fyrir athugasemd
frá akureyrskum tannlæknum.
F réttatilky muiig
FJÓRÐUNGSMÓT HESTAMANNA í norð-
lendingat'jórðungi verður að Einarsstöðum,
Reykjadal, daagna 18,—20. júlí n.k.
Þar verður góðhestasýning. Sýnd verða kynbóta-
hross og þar munu fara frarn kappreiðar í eftir-
töldum greinum:
250 m skeið
250 m folahlaup
300 m stökk
800 m stökk
Keppnin fer fram á afmörkuðu'in hlaupabraut-
um. — Þátttöku kappreiðáhrossa þarf að tilkynna
dagana 25.—30. júní hjá Jóriási Egilssyni. síma
4-14-51 á Húsavík.
UNDIRBÚNINGSNEFND.