Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 08.08.1969, Blaðsíða 8

Alþýðumaðurinn - 08.08.1969, Blaðsíða 8
HÚ SGÖ GN í AUGSÝN: GÆÐAVARA A GÓÐU VERDI AUGSÝN HF. SÍMI 2-16-90 Landsmót íslenzkra ungtemplara Jákvætt starf æskunnar, sem afneitar Bakkusi DAGANA 5.-6. júlí 1969 var annað Landsmót íslenzkra ung- templara (ÍÚT) haldið. í þetta sinn var það að Staðarhrauni á Mýrum, Mýrasýslu, en fyrsta mótið var á Siglufirði sumarið 1967 og voru þátttakendur þá á fjórða hundrað. Þátttakendur þessa Lands- móts voru um 350 og þurftu þeir, sem voru lengst að komnir að hossast í langferðabifreið FEGURÐ ÍSLENZKA HESTSINS " 08 ”,a'e; ar anægjustundir hefur hann veitt eigendum sínum. Útflutningur hrossa hefur verið töluverður siðasta ár, og hefur aðallega verið flutt út ótamin hross, tekin úr stóði og fylfullar hryssur. Þessi gæðingur hér á myndinni er taminn heitir Smyrill, 7 vetra, frá Höllustöðum, Blöndudal. Knapi er Reynir Hjartarson. Ljósmynd: Frímann. að Sfaðarhrauni samtals 28 tíma til að komast á mótið, sem var sett síðdegis á laugardag, og heim aftur. Dagskrá mótsins var fjöl- breytt og reynt að hafa eitthvað fyrir alla. Síðdegis á laugardag (eftir mótssetningu) var æsispenn- andi jeppakeppni, sem lauk með sigri sautján ára Kópavogs búa, en hann ók Willys-jeppa. Á laugardagskvöld var skemmt un í félagsheimilinu Lyng- brekku, en það er skammt frá Staðarhrauni. Var þar margt til skemmtunar og fyrir dansi lék hljómsveitin ROOF TOPS. Á (Framhald á blaðsíðu 2) Orðsending (rá Fræðsluráði Akureyrar um stofnun framkaldsdeilda við Gagnfræða- skólann á Akureyri FRÆÐSLURÁÐ AKUREYR- AR hefur ákveðið að láta kanna, hvort tök eru á að stofna til framhaldsdeilda(r) við Gagn fræðaskólann á Akureyri nú í haust í samræmi við bréf náms- brautanefndar, dags. 16. júlí 1969 og bráðabirgðatillögur nefndarinnai' um skipan náms- ins, dags. 14. júlí 1969. Hefur fræðslui'áð falið þeim Sigurði Óla Brynjólfssyni, kennara, og Valgarði Haraldssyni, náms- stjóra, að annast könnunina í samráði við skólastjóra Gagn- fræðaskólans. Ein af meginforsendum þess, að framhaldsdeildirnar verði stofnsettar, er sú, að nægilega margir nemendur hafi hug á að stunda námið. Því er nauðsyn- legt, að þeir, sem rétt hafa til setu í deildunum, athugi sem allra fyrst, hvort þeir hafi tök á að sinna þessu námi, og láti skrá sig hjá skólastjóra Gagn- fræðaskólans (sími 1-23-98) dagana 18., 19. eða 20. ágúst kl. 4—7 síðdegis, ef þeir óska eftir setu í framhaldsdeild. Til skýringar og glöggvunar er nauðsynlegt að taka fram eft irfarandi: 1) Gert er ráð fyrir tveggja ára framhaldsnámi og skiptist efnið í „kjarna“ (námsgreinar, sem allir eru skyldir að nema) og kjörsviðsgreinar. 2) Kjörsviðin gætu orðið fjög ur fyrsta veturinn, uppeldis-, hjúkrunar-, tækni- og við- skiptakjörsvið. 3) Meginmarkmið námsins verði: a) Aukin kunnátta og hæfni til að stunda framhalds- nám og nám í sérskólum, b) undii'búningui' undir ýmis störf EINS OG frá var skýrt í síðasta blaði, skruppu þeir félagarnir Jón Rögnvaldsson og Þorsteinn Davíðsson til Syðri-Straum- fjarðar á Grænlandi til jurta- söfnunar. Sl. þriðjudag hitti AM Jón á förnum vegi og innti hann tíð- inda af ferðalaginu. „Við kom- um með um 50 plöntur og af- brigði með okkur til baka,“ sagði Jón, „en tíminn var alltof í atvinnulífinu, c) almenn, menntun. 4) Inntökuskilyrði: a) Gagn- fræðapróf með meðaleinkunn 6,0 eða hærri í samræmdum greinum (íslenzku, dönsku, ensku og stærðfræði), b) lands- próf miðskóla með meðaleink- unn 6 í kjörsviðsgreinum sér- staklega. 6) Réttindi: a) Nemendur, sem staðizt hafa 1. árspróf á tæknikjörsviði, verði undanþegnir fyrra árs- helmingi námsárs í undirbún- ingsdeild Tækniskóla íslands. Að öðru leyti veitir próf eftir (Framhald á blaðsíðu 7) stuttur, tæpir 3 dagar, en vor- um dásamlega heppnir með veður. Einn daginn var þar 20 stiga hiti, en það þarf lengri tíma að kynnast gróðurfari þessa mikla fjarðar. Mér var tjáð, að hann skæi'ist 180 km inn í landið. Fjörðurinn var al- veg íslaus. í Syðra-Straumfirði er stór, amerísk herstöð og reyndust þeir amerísku okkur (Framhald á blaðsíðu 7) Komu með plönfur frá Grænlandi Lemstruð hönd Jóhanoesar FYRIR NOKKRU hitti ég gaml an kunningja minn er ég þá hafði ekki séð um nokkurn tíma. Hann rétti mér hönd sína, hægri höndina, lamaða og að mestu afhöggna, og er ég hélt henni í minn — heilli — fór um mig ónota hrollur. Að missa hægri höndina. Er það ekki eins og að missa helft- ina af sjálfum sér, fyrir utan þjáninguna, sem því fylgir, lík- amlega og andlega? Ég spurði hann, hvort hann hefði ekki fengið bættan missi sinn. Bæt- /»-'......■■ Fundur á Húsavík FORMAÐUR Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gíslason ráðherra, mun ferðast um Norðurland — og hyggst mæta á nokkrum fund- um í ferðinni. í kvöld mætir hann á fundi er jafr.aðarmenn á Húsavík halda í Hlöðufelli. ur? Nei Réttvísin dæmdi Jó- hannes úr leik! Það mun hafa verið í júní 1961, að Jóhannes Björnsson, smiður á Hjalteyri, varð fyrir því slysi að missa hægri hönd sína við bryggjuviðgerð fyrir h.f. Kveldúlf þar á staðnum. Var verið að reka niður staur með 200 kg fallhamri, og lenti Jóhannes með hægri höndina undir högginu með þeim af- leiðingum, að höndin eyðilagð- ist. Varð hann að liggja á sjúkra húsi um tveggja mánaða skeið sárþjáður, og vera síðan í tvö ár meira og minna kvalinn, þar eð sá bútur, sem eftir var af höndinni, greri bæði seint og illa. Þar á ofan bættist sú and- lega áþján, sem það hlýtur að vera, að sjá von sína bresta um það, að geta séð sér og sínum farborða. Þegar þetta gerðist, hafði Jó- hannes verið við smíðar og verkstjórn hjá h.f. Kveldúlfi á Hjalteyri um tveggja áratuga skeið. Auðvitað átti hann að vera slysatryggður, enda marg Bjömssoiiar og hönd réftvísinnar oft búinn að inna atvinnurek- endur eftir, hvort svo væi'i, þar sem vinna hans var oftast áhættusöm. Var hann jafnan fullvissaður um að trygging hans væri í fullkomnu lagi. En þegar svo Jóhannes fór að leita eftir bótum vegna slyssins, kom annað hljóð í strokkinn. Hefja þurfti málavafstur og vitna- leiðslur, sem auðvitað var, og þá leitað allra ráða til að leysa tryggingafélagið og vinnuveit- anda frá þeirri skyldu að bæta að einhverju handarmissi mannsins . En nú vildi svo til, að þeir, sem unnu með Jóhann- esi mundu ekkert, hvernig þetta gerðist, og sá, sem stjórn- aði fallhamrinum, mundi ekki til þess, að Jóhannes hefði beð- ið um að stöðva. Undarlegt er það, að menn skuli ekkert muna, þegar svona atburðir gerast, eða a. m. k. ekkert, sem getur komið slysaþola að gagni. Undarlegt er það líka, ef vanur verkstjóri ætlar að rétta við staur, sem farinn er að hallast (Framhald á biaSteÉSu 7) Þetta er í þriðja sinn er AM birtir mynd af afskræmdri hægri hönd Jóhannesar Bjömssonar á Hjalteyri. Hún er vissulega nakin stað- reynd um það, þá er réttlætið og lagakrókar eiga ekki samleið. Æpandi tákn um það, að réttlætið er enn fótum troðið — og dóm- któlur þjóðarinnar verða útverðir ranglætis og viðbjóðar. Ljm.: E.B.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.