Alþýðumaðurinn - 21.11.1969, Side 1
VerzliB i aérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Simi 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.00.
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROMYNDIR Akureyri
árgangur — Akureyri, föstudaginn 21
1969 — 27. tölublað
Atvinnuástand versnar á S.króki
HAFA HUG Á ÞVÍ AÐ KAUPA SKUTTOGARA
Sauðárkróki 7. nóv. J. K.
Atvinnuástand versnandi.
Nú fer atvinnuástandið að
versna til muna hér á Sauðár-
króki. Sláturhúsavinnunni er
að ljúka og útivinna við bygg-
ingar og framkvæmdir á vegurn
bæjarins að stöðvast.
Rækjuleit í Skagafirði.
Hráefnisskortur háir hrað-
frystihúsunum.
Af sjósókninni er það að segja
að Drangeyjunni hefur gengið
sæmilega í sumar og haust, eftir
því sem gerzt hefur hjá tog-
bátum fyrir Norðurlandi. Þó
hefur aflinn farið minnkandi
upp á síðkastið. Þrír bátar vöru
á dragnót fram til síðustu mán-
aðamóta og höfðu gert það all-
gott, miðað við síðustu ár. Segja
má að afli þeirra hafi skapað
verulegan hluta þeirrar frysti-
húsavinnu, sem var síðari hluta
sumars og í haust. Einn þessara
báta er nú að búa sig á línu-
veiðar, annar á þorskanet og
hinn þriðji er að fara til rækju-
leitiar á Skagafirði á vegum Haf
rannsóknarstofnunarinnar.
Bæði frystihúsin eru í gangi,
en hráefnið, sem þeim berst er
ekki nándar nærri nóg til að
um stöðuga vinnu sé að ræða.
Á vegum Útgerðarfélags
Skagafjarðar er nú unnið að
könnun á nýsmíði á skuttogara,
sem kosta mun samkv. áætlun
60—70 milljónir kr.
Tólf íbúðir á vegum Fram-
kvæmdanefndar byggingar-
áætlunar.
Framkvæmdanefnd bygging-
aráætlunar á Sauðárkréki er nú
að hefja byggingu 12 íbúða sam
býlishúss. Er þegar búið að
grafa fyrir húsinu, en óvíst er
um frekari framkvæmdir fyrr
en að vori. Sauðárkróksbær á
20% byggingarinnar. íbúðirnar
(Framhald á blaðsíðu 5)
Ný stjórnmálasamtök
UM síðustu helgi voru stofnuð
ný stjórnmálasamtök í Ryekja-
vík og hlutu þau nafnið „Sam-
tök frjálslyndra og vinstri
manna.“ Með þessum samtök-
um er formlega sagt sundur lög
um og griðum deilenda innan
Alþýðubandalagsins, sem upp-
hófst við síðustu alþingiskosn-
ingar, er þar með lokið rauna-
legu samstarfi Hannibals Valdi-
marssonar við kommúnista, sem
hann átti að vita af fyrri
reynslu í samskiptum við þá
að gæti aldrei blessast.
Stjórn hins nýja stjórnmála-
flokks skipa: Hannibal Valdi-
marsson alþingismaður, formað
ur, Bjarni Guðnason prófessor,
Björn Jónsson alþingismaður,
ritari og framkvæmdastjóri
stjórnarinnar og Haraldur
Henryson ,gjaldkeri.
EINHUGUR RlKTI Á FLOKKSSTJÖRNAR-
FUNDIALÞYÐUFLOKKSINSI RVlK.
Samþykkt einróma aðild að EFTA. - Að atvinnu-
leysi verði útrýmt. - Hækkun bóta almanna-
trygginga og lífeyrissj. fyrir alla landsmenn.
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR Alþýðuflokksins var liáður unn
síðustu lielgi í Reykjavík og var hann fjölsóttur og ríkti einhugur
á fundinum og mun AM hér á eftir geta helztu ályktana fi'.ndarins,
Jafnaðarmannaflokkur í hálfa
öld.
Alþýðuflokkurinn var stofn-
aður fyrir liðlega hálfri öld sem
flokkur lýðræðissinnaðra jafn-
aðarmanna á íslandi. Hann hef-
ur áorkað miklu á þessu tíma-
bili. En baráttan heldur áfram.
Takmark Alþýðuflokksins er,
að íslenzkt þjóðfélag sé og verði
réttlátt menningarþjóðfélag, þar
sem allir eiga kost á vinnu við
sitt hæfi og búi við góð lífskjör,
mannréttindi og vaxandi félags
legt öryggi.
Eins og nú háttar í íslenzkum
þjóðmálum, telur Alþýðuflokk-
urinn brýnasta þörf á að vinna
að eftirfarandi verkefnum og
markmiðum:
Atvinnuleysi útrýmt.
1. Atvinnuleysi verði útrýmt
og kornið á fjölbreyttari atvinnu
hátturn í þeim byggðalögum,
þar sem borið hefur á árstíðar-
og staðbundnum atvinnuskorti
vegna einhæfni í atvinnureksti'i.
Sérstök áherzla verði lögð á að
tryggja næga atvinnu í vetur.
Jafnframt verði stuðlað að end-
urþjálfun er auðveldi fólki að fá
atvinnu við sitt hæfi í þjóð-
félagi, sem vélvæðist í æ ríkara
mæli.
2. Næg atvinna verði búin
þeim tuttugu þúsund manns,
sem næsta áratuginn munu bæt
öst við fjölda starfandi fólks í
landinu, og launþegum tryggðar
sem hæstar rauntekjur. í þessu
skyni verður að búa höfuðat-
vinnuvegunum, útvegi, landbún
aði, iðnaði, verzlun og samgöng
um sem heilbrigðust skilyrði til
vaxtar og hagnýtri miðlun.
Samvinna.
3. Náin samvinna ríkisvalds,
verkalýðshreyfingar og atvinnu
rekenda í atvinnumálum hefur
gefið góða raun. Nauðsynlegt
er, að þeirri samvinnu verði
haldið áfram, þar eð sameigin-
legt átak þessara aðila stuðlar
að uppbyggingu atvinnulífs og
tryggir launþegum raunhæfar
og skjótar kjarabætur.
EFTA. I
4. Aðild að Fríverzlunarsam-
tökum Evrópu mun stuðla að
stofnun nýrra útflutningsgreina
og meiri hagkvæmni og aukn-
um markaði þeirra iðngreina,
sem nú starfa í landinu. Auk
þess mun áðild að EFTA færa
sjávarútveg og landbúnaði auk-
inn markað og hærra verð er-
lendis og á, þegar frá líður, að
tryggja sams konar þróun launa
og lífskjara hér og í hinu-m há-
þróuðu EFTA-ríkjum. Þau inn-
gönguskilyrði, sem íslendingar
eiga nú kost á, eru þeim hag-
stæð, og mundi því EFTA-
aðild verða íslenzku atvinnulífi
til eflingar. Á hinn bóginn verð
ur að gæta þess, að íslenzkur
iðnaður sitji við sama borð hvað
samkeppnisaðstöðu snertir og
iðnaður EFTA-landanna. —
Flokbsstjórnin telur, að ísland
eigi að gerast aðili að Fríverzl-
unarsamtökunum.
(Framhald á blaðsíðu 6).
S\NV
N
Brönugrasið rauða
Leikst jóri: SIGURÐIIR ÖRN ARNGRÍMSSON
SL. FIMMTUDAG fumsýndi
Leikfélag Akureyrar sjónleik-
inn Brönugrasið rauða eftir Jón
Dan. Leikstjóri er Sigmundur
Örn Arngrímsson, tónlistin er
samin af Magnúsi B. Jóhanns-
syni og leikmynd unnin af Jóni
Þórissyni.
Brönugrasið rauða er fyrsta
verk höfundar sem sýnt er á
sviði, en hann hefur áður gefið
út skáldsögur og eina ljóðabók.
í leikskrá segir, að höf. hafi gert
ýmsar ba-eytingar á leiknum
„nauðsynlegar vegna breytti-a
aðstæðna og afstöðu til verks-
ins.“
Efnislega fjallar leikritið um
ungan tónlistarmann, Ara Más-
son, og hans innri baráttu; hann
þróir listina, þráir lífið og ást-
AFLALEYSI OG
JARÐBÖNN
Húsavík 19. nóv. G. H.
ÞAÐ sem af er þessum mánuði
hafa verið nær stöðugar ógæft-
ir, en þá er á sjó hefur verið
komizt hefur afli verið sára-
lítill, eða svo til enginn.
Jarðbönn.
í norðanáhláupinu á dögun-
um kom hér töluverður snjór —
og það sem ég hefi frétt úr sveit
um sýslunnar mun vera alger
jarðbönn fyrir sauðfé, en eins
og kunnugt er hófst áhlaupið
með bleytuhríð og er því storka
yfir öl'lu. — í dag hefur gengið.
á hér með éljum.
Þórey Aðalsteinsdóttir og Amar Jónsson á sviðinu.
Ljósmyndastofa Páls.
ina, krefst fi’elsis til að vora
hann sjálfur og lúta þeim til-
finningum, sem leiða manninn
á æðra stig. f fyrstu setur hann
listina ofar öðru en verður að
lokum að lúta þeim mætti sem
öllu er æðri, ástinni. Yfir verk-
inu í heild er talsvert rómantísk
ur blær, það gerist bæði í heimi
drauras og vöku og verður þar
af leiðandi nokkuð langdregið á
köflum þótt telja verði verkið
vel skrifiað og þar er gripið á
mörgum meinsemdum mann-
’legs lífs.
Arnar Jónsson leikur Ara
Mána með miklum ágætum.
Honum tekst vel að túlka bar-
áttu listamannsins, leikur hans
er sannfærandi og hrífandi.
Rósa Kristín Júlíusdóttir leik
ur Gyðu, unnustu Ara. Leikur
hennar er hélzt til daufur í
byrjun en verður ákveðnari
þegar líður á verkið.
Þráinn Karlsson leikur mál-
arann Egil og gerir honum all-
góð skil.
Þórey Aðalsteinsdóttir leikur
draumastúlkuna með ágætum
og gamall maður er leikinn af
Guðmundi Gunnarssyni, sem
skifar sínu hlutverki vel.
Auk þess koma fram í minni
hlutverkum Þórhalla Þorsteins
dóttir, Páll Kristjánsson, Jón
Kristinsson, Odda Margrét
Júlíusdóttir, Kristín Konráðs-
dóttir o. fl.
Sem fyrr segir var leikstjóri
Sigmundur Örn Amgrímsson
og verður ekki annað sagt en
honum hafi tekizt vel til þótt
ávallt m'egi deila um einstök
atriði í uppsetaningu, lýsingu,
senuskiptingu o. s. frv.
AM hvetur að lokum fólk til
að fjölmenna í Samkomuhúsið
og eiga þar ánægjulega kvöld-
-stund. X. X.