Alþýðumaðurinn - 04.12.1969, Blaðsíða 8
í illGSÝN: SÓFASETl r - i úirvnli AUGS™HF- 1. lil Y dll SfMI 2-16-90
jt ■ 'f
ÍÍ1Ka«
**
&. . v; ■**
BÍLVELTA Á MOLDHAUGAHÁLSI Fyrir skömmu valt stór vöruflutningabíll á Mold-
haugahálsi, var hann að koma að sunnan. Bíl-
stjórann sakaði ekki — en varningurinn þeyttist út í móa, sem var aðallega gosdrykkir. Hér sézt
bíllinn eftir veltuna. Ljósmyndastofa Páls.
Nýjar bækur og höfundar
AM KYNNIR hér lítillega allar þær bækur er blaðinu hafa borizt:
frá því að síðasta blað kom út, því miður all stuttaralega, en vill
samt af einlægni þakka öllum þeim bókaútgefendum, er sent liafa
blaðinu bækur sínar.
TRÚARVISSA er þrek í þrautum
LEIÐIN IIEIM
eftir Guðrúnu Sigurðardóttur.
Útgefandi Stefán Eiríksson.
Prentuð og unnin í Prentverki
Odds Björnssonar.
Hvað er lífið brot úr báru,
sem brotnar og deyr,
sogast upp að svörtum hamri
síðan ekkert meir.
Mun ekki mörgum verða
álíka hugsað í gráma og önn og
vafstri hversdagsleikans, eða þá
er mótlæti og harmar kveðja
dyra. Eða er ég kannski einn
um slíkan þankagang? Við lest-
ur bókarinnar Leiðin heim. var
sem birti í sinni. Utgefandi bók
arinnar, Stefán Eiríksson, skrif-
ar ítarlegan formála til skýr-
ingar bókarinnar. Þar segir
m. a.: „Þær sannanir fyrir
ódauðleika mannssálarinnar og
áframhaldandi göngu á þroska-
brautum eilífðarinnar voru
mannkyninu gefnar fyrir nær
tvö þúsund árum, og er skýrt
frá þeim greint í þeim hluta
Biblíunnar, sem lýsir lífi og
starfi, dauða og upprisu Jesús
Krists. Á þeim sönnunum er
kristindómurinn byggður og
þarf þar ekki um að bæta.
(Framhald á blaðsíðu 5)
Verzlun breytir um nafn
EIGANDASKIPTI hafa orðið á
verzluninni Ás á Sauðárkróki.
Fyrri eigendur voru Ernst Þor-
kelsson og Anton Angatýsson,
en hinir nýju eigendur eru
Kristján Skarphéðinsson fram-
kvæmdastjóri og Brynjar Páls-
son framkvæmdastjóri. Verzl-
unarstjóri hefur verið ráðinn
Evert Þorkelsson.
N\\v
N
Sjónvarpið nær nú til
prós. landsmanna
Verzlunin verður rekin með
svipuðu sniði og áður, en þetta
er kjöt, fisk- og nýlenduvöru-
verzlun. Gagngerðar breytingar
munu fara fram á verzluninni á
næstunni, en ekki mun þurfa
að koma til lokunnar af hennar
völdum.
Ekki þarf að taka fram að sér
stök áherzLa verður lögð á gott
vöruúrval og kurteisi og góða
þj ónustu.
Hin nýja verzlun hefur hlotið
nafnið Vörubúðin. Sími hennar
er 5303.
ALÞYÐUMAÐURINN
39. árgangur — Akureyri, fimmtudaginn 4. des. 1969 — 28. tölublað
N
FUJ-félagar - Akureyri
AÐALFUNDUR FUJ á Ak-
ureyri verður haldinn 11.
des. n. k. Sjá nánar auglýs-
ingu í blaðinu í dag.
AM skorar á allt það æsku
fólk, bæði stúlkur og pilta,
er aðhyllast jafnaðarstefnu,
að ganga í félagið og tryggja
með því framtíðargengi jafn
aðarstefnunnar á íslandi.
Félagið hyggst koma á fót
eftir áramótin öflugu félags-
lífi, bæði til skemintunar og
stuðla að auknum áhrifum
jafnaðarstefnunnar á vax-
andi áhrif jafnaðarmanna á
stjórn bæjarins.
Æskufólk! Alþýðuflokk-
urinn er flokkur æsku-
fólksins, fylkið því ykkur um
FUJ. Lýðræðisjafnaðarstefn
an mun sigra á íslandi — og
það er fyrst og fremst í hendi
ykkar ungu að fylkja liði og
liefja sókn gegn einræði
kapitalisma og kommúnisma.
AM treystir ykkur.
Krabbameinsrannsóknir á Ak.
KRABBAMEINSFÉLAG Akur
eyrar hóf nú í haust skipulega
leit að leghálskrabbameini og
fyrstu einkennum þess hjá kon-
um á aldrinum 25—60 ára bú-
settum í Akureyrar-læknis-
héraði. Rannsókn þessi fer fram
í húsnæði Berklavarnarstöðvar
Akureyrar á mánudögum og
miðvikudögum kl. 2—5 síðdegis.
Rannsókn þessa annast Bjarni
Rafnar læknir, og er hún skipu
lögð þannig, að konum á ofan-
greindum aldri er sent bréf, þar
sem þær eru fræddar um rann-
sókn þessa og beðnar að pantai
tíma þegar þær vilji og geti
mætt til rannsóknar. Tímapant-
anir eru teknar í síma 11477
mánudaga og miðvikudaga kl.
5—6. Bréfin eru send út eftir
stafrófsröð, til þess að forðast
þrengsli, og er komið að stafn-
um K.
Ýmsar ástæður valda því, að
ekki koma bréf þessi til allra
þeirra kvenna, sem eiga að fá
þau. En að sjálfsögðu er rann-
sókninni einnig ætlað að ná til
þeirra. Þær eru því beðnar að
panta skoðunartíma.
Það eru eindregin tilmæli
stjórnar Krabbameinsfélags Ak
ureyrar, að konur notfæri sér
þessa mikilsverðu og mjög
ódýru rannsókn, sem getur orð-
ið, og hefur nú þegar orðið sum
um þeirra til ómetanlegs gagns.
Þá vill stjórn félagsins eindreg-
ið skora á sem flestar konur og
karla að gerast meðlimir í fé-
laginu og verða með því góðu
málefni áð liði.
Bygging mjólkurvinns!ustöðvar á Dalvík
ÞANN fyrsta desember urðu
fjölda margir staðir þess að-
njótandi að fá góðan gest heim
til sín á Norðurlandi og Aust-
=s
UM kl. 8 í morgun varð vinnu-
slys hér við höfnina, er verið
var að skipa upp úr Dísafelli.
Miðaldra maður, Gunnar Krist-
jánsson að nafni, vai’ð fyrir
sekkjahleðslu, er lenti á öðrum
fæti hans. Var Gunnar sam-
stundis fluttur upp á sjúkra-
■hús, en eigi var lögreglunni
kunnugt um það kl. hálf 3 í dag,
hve alvarleg meiðsli Gunnars
eru.
fjörðum, bæði í kaupstöðum,
kauptúnum og sveitum. Kaup-
staðirnir eru: Siglufjörður,
Ólafsfjörður, Húsavík, Seyðis-
fjörður og Neskaupstaður. Þá
má nefna Raufarhöfn, Þórshöfn,
Bakkafjörð, Vopnafjörð, Egils-
staði, Eskifjörð og Reyðarfjörð,
auk þess sveitabæi vítt um
þetta svæði. Mun nú láta nærri
að 90% þjóðarinnar geti nú séð
sjónvarpssendingar með góðu
móti.
AM fagnar hve hraðað hefur
ve-rið sjónvæðingu landsins og
vonandi fá hin 10% sem eftir
eru fljótlega sömu þjónustu.
AM hefur fregnað frá Ólafs-
firði að útsendingar þar hafa
sézt ágætlega, sömu sögu er að
segja frá Siglufirði.
FYRIR alhnörgum árum rit-
aði ég í Alþýðumanninn
greinarstúf, þar sem ég
minntist á, að fyrir svarf-
dælska bændur myndi það
vera hagkvæm nauðsyn, að
komið yrði upp mjólkur-
vinnslustöð á Dalvík — og í
því sambandi benti ég á hinn
mikla flutningskostnað, sem
bændur í Svarfaðardal yrðu
fyrir í sambandi við mjólkur
flutninga yfir vetrarmánuð-
ina sökum fannfergis, þar
sein oft á tíðum að mjólkur-
flutningabílar hafa verið sól-
arhringana út að brjótast
með mjólkina hingað til Ak-
ureyrar úr Svarfaðardal —
og í mörgum slíkum ferðum
liafa bílstjórarnir sýnt undra
verðan dugnað og þraut-
segju, sem þó lítt liafi verið
á lofti haldið. Einnig drap ég
á það í þessarri klausu minni
að það myndi einnig verða
lyftistöng fyrir Dalvík, kaup
stað Svarfdælinga og heima-
bæ, að mjólkurvinnslustöð
þar myndi stuðla að vexti og
viðgangi kauptúnsins — og
vona ég að enginn Dalvík-
ingur sé mér á öndverðum
meiði um, að öryggi og vaxt
armöguleikar Dalvíkur
hljóta ekki sízt að byggjast
á auknum iðnaði. Er ég rit-
aði þennan greinarstúf bjóst
ég ekki við að ég hefði neinn
töfrasprota í hendi, er valda
myndi straumhvörfum í
þessu efni — aðeins vildi ég
minna á þetta nú, þar sem ég
liefi á því fullar sönnr.r, að
svarfdælskir bændur standa
livað fremstir eyfirzkra
bænda hvað snertir naut-
griparækt og mjólkurfram-
leiðslu — og því er ég viss
um að svarfdælskir bændur
munu eigi öllu lengur una
því að mikill hluti af mjólk-
urframleiðslu þeirra sé fjár-
hagslega sökkt í sokkna
vegu milli Dalvíkur og Akur
eyrar. Mjólkurvinnslustöð á
Dalvík hlýtur að verða að
veruleika innan fárra ára til
hagsbóta fyrir svarfdælska
bændur og miðstöð héraðs-
ins, Dalvík. s. j.
S4SSSSS$SS4SSSSSSSSS4SSSSSS$$$$$$SS$J5$$$4$$$S4$$4$S4S$$$S$$4$$$$$$$4SS$$$4S$4$$$$$S$$$$$$$$$$$$$SS$4SSSSSS4