Alþýðumaðurinn - 12.02.1971, Side 7
LÍNA LANGSOKKUR
FRUMSÝNING Leikfélags Ak-
ureyrar á hinu vinsæla barna-
leikriti Línu langsokk var
fimmtudagskvöldið 4. febrúar
sL, en þá hafði orðið að fresta
sýningunni nokkuð vegna veik-
inda.
Hinar vinsælu sögur sænsku
skáldkonunnar Astrid Lindgren
af ólátabelgnum Línu hafa orð-
ið hér vinsælar eins og raunar
alls staðar, þar sem þær hafa
birzt. Leikgerð sögunnar um
Línu er hér færð upp af Þór-
hildi Þorleifsdóttur, en þýðing-
una gerði Gunnvör Braga Sig-
urðardóttir. Það hefur oft
reynzt svo, að börnin væru
þakklátustu áhorfendurnir, en
jafnframt eru þau þó á sinn
hátt kröfuhörð, og enda þótt
ímyndunaraflið sé ríkt þarf þó
að vera unnið úr efninu á sann-
ferðugan hátt. — í heild er sýn-
ingin allvel unnin, senan í upp-
hafi með börnunum er furðu
góð, hreyfingar nokkuð sam-
ræmdar og líflegar og þau
fylgjast allvel með tiltektum
Línu.
Hitann og þungann í leikrit-
inu ber Bergþóra Gústafsdóttir
í hlutverki Línu. Hlutverkinu
gerir hún skemmtileg skil, leik-
ur það af léttleika og stillir þó
kátínunni yfirleitt í hóf, þó að
stundum verði leikurinn nokk-
uð farsakenndur. Bergþóra er
ekki raddmikil og veldur það
helzt, að textinn kemur ekki
alltaf nógu vel til skila og dreg-
ur því stundum úr áhrifamætti
leiksins. Búningur hennar var
skemmtilegur og gervið allt
gott.
Gestur Jónasson og Eggert
Þorleifsson eru skemmtilegir í
hlutverki lögregluþjónanna, og
sú sena vakti að vonum mikla
spennu hjá börnunum, en létt-
irinn var líka mikill, þegar Lína
hafði betur í viðureigninni við
þá.
í helztu barnahlutverkunum
Tomma og Onnu eru Hermann
Arason og Sigríður Sigtryggs-
dóttir og leika þau af hæversku,
en mættu e. t. v. vei'a ofurlítið
djarfari á stundum í fram-
göngu, en þó skal það játað, að
þar sem þau eiga að vera algjör
ar andstæður Línu, er þeim
þröngur stakkur sniðinn af
höfundi.
Jón Kristinsson lék Eirík
langsokk (negrakóng). Jón var
verulega skemmtilegur í hlut-
verkinu, enda vakti hann mikla
kátínu og gervið var líka gott.
Onnur helztu hlutverk, sem
athyglisverð voru og vel unnin
voru ræningjarnir, einkum sá
seinni, sem gerði hlutvei'ki sínu,
góð skil með töktum og iram-
komu. Einnig stóðu frúrnar
nokkuð fyrir sínu í þættinum
um borðhaldið, en það er hins
vegar nokkuð mikill farsi í
þeirri senu.
Sýningunni í heild má gefa
heldur góða einkunn, og víst er
um það, að hún á eftir að gefa
börnum hér kærkomna stund,
sem vonandi er, að foreldrar
veiti þeim, þannig að þau verði
síðar góðir leikhúsgestir.
í lok sýningar var leikendum
vel fagnað, en þó einkum Berg-
þóru, enda átti hún það fylli-
lega skilið.
Þá ávarpaði Sigmundur Orn
Arngrímsson leikhúsgesti og
skýrði frá úrslitum í samkeppni
meðal barna um beztu teikn-
ingar um efnið í barnaleikritinu
Dimmalimm, sem sýnt var í
fyrravor. Hlutu verðlaunin fjög
ur systkini, en myndir þeirra
voru til sýnis í anddyri. Verð-
launin voru málverkabók Guð-
mundar Thorsteinssonar, en út
frá teikningum hans var efni
þess leikrits samið. Jafnframt
tilkynnti Sigmundur Örn, að
til sams konar keppni yrði nú
stofnað vegna uppfærslunnar á
Línu langsokk.
Vel er, að slíkt skuli gert. Það
veitir börnunum bæði ánægju
og auðgai' ímyndunaraflið að fá
að spreyta sig á slíku.
Hrappur.
s
Þriðju fónfeikar Tónlistarfélags
Akureyrar verða á sunnudaginn
ÞRIÐJU tónleikar Tónlistar-
félags Akureyrar á þessu starfs-
ári verða n. k.' sunnudag, 14.
ir
MARTEINN SIGURÐSSON
FYRRVERANDI
BÆJARFULLTRÚI.
Nýlátinn er og til moldar
borinn Marteinn Sigurðsson
fyrrverandi bæjarfulltrúi
hér í bæ og fyrsti formaður
Verkamannafélags Akureyr-
ar. Með Marteini er fallinn
lieiðursmaður — og er skarð
hans vandfyllt. Á sviði félags
mála var Marteinn í forystu-
sveit um langan tíma, sem
liér verður eigi upp rakið,
en hér skal aðeins minnst á
forgöngu hans að hér reis
upp Matthíasarsafnið að Sig
urliæðum og prýðilega safn-
vörzlu hans þar.
Alþýðumaðjirinn vill um
leið og hami sendir ástvin-
um hans hugheilar vinar- o^
samúðarkveðjur heiðra minn
ingu hans með því að birta
í blaðinu í dag fagurt erfiljóð)
eftir Jórunni Olafsdóttur frá.
Sörlastöðum, er hún flutti
við útför hans.
LÁRA ÁGÚSTSDÓTTIR
MIÐILL.
Þá er nýlátin Lára Ágústs-
dóttir miðill, landskunn og
átti vini um land allt. Minn-
ingarathöfn um hana fór
fram í Akureyrarkirkju sl.
miðvikudag. En á morgun
verður hún jarðsett að Gaul-
verjabæ í Árnessýslu, þar
sem liún ólst upp í æsku.
febrúar, í Borgarbíói og hefj-
ast kl. 21.00. Þar koma fram
Ruth Magnússon alltsöngkona,
Jósef Magnússon flautuleikari
og Guðrún A. Kristinsdóttir
píanóleikari.
Jósef Magnússon leikur
sónötu fyrir flautu eftir J. S.
Baeh og þrjú íslenzk þjóðlög
eftir Árna Björnsson.
Rut Magnússon syngur laga-
flokkinn Frauenliebe und
Leben eftir R. Schumann og
lagaflokk eftir spænska tón-
skáldið Manuel de Fælla, ís-
lenzk þjóðlög og lög eftir Benja
min Britten, Igor Stravinsky,
Paul Hindemith og Atla Heimi
Sveinsson.
Guðrún A. Kristinsdóttir ann
ast undirleik á tónleikum þess-
um.
Fyrri tónleikar Tónlistarfé-
lagsins hafa verið vel sóttir —
og er starfsemi félagsins þakk-
arverður menningarauki fyrir
bæ og hérað.
- Alþýðuflokkurinn og
(Framhald af blaðsíðu 4)
máttur almennra launa
hafði að sjálfsögðu ekki
rýrnað minna, enda hafði
orðið mjög tilfinnanleg
lækkun á útflutningstekjum
þjóðarinnar vegna aflabrests
og verðfalls, og atvinna
gerzt mörgum stopul og
ótrygg.
ÞEGAR í járlög voru af-
greidd í des. 1969 fyrir árið
1970, voru að vísu ýmis bata
merki á lofti um afkomu
þjóðarbúsins, en líka allt á
huldu um kauphækkanir og
aðrar kjarabætur. Eftir vand
lega íhugun hvarf Alþýðu-
flokkurinn að því ráði, að
standa að afgreiðslu fjárlag-
anna svo, að hækkun á bóta-
greiðslum Almannatrygg-
inga næmi samkvæmt þeim
ekki nema 5.2 prósent, þ. e.
til samræmis við vísitölu-
hækkanir á kaupi að óbreytt
um aðstæðum, en bóta-
greiðslur yrðu teknar til
nýrrar endurskoðunar, ef
og strax að kaupgjald breytt
ist til hækkunar. Alþýðu-
flokknum var að sjálfsögðu
ljóst, að almannatrygginga-
bætur þyrftu nauðsynlega
að hækka, en endanlega
greiða gjaldþegnarnir allar
slíkar hækkanir: um iðgjöld
sín, útsvör sín og aðra skatta,
og í des. 1969 var geta al-
mennings til hækkunar á út
gjöldum ekki svo ráðin á
bataveg, að ekki væri þörf
gætni.
ÞESSA varúð Alþýðuflokks-
ins notaði Alþýðubandalag-
ið sér ótæpt í bæjarstjórnar-
kosningunum á sl. vori, og
Framsókn raunar líka: Al-
þýðuflokkurinn átti alls
ekki að vilja bæta kjör aldr-
aðra og örkumla, svo langt
væri hann kominn frá upp-
haflegri stefnu sinni varð-
andi félagslegar umbætur.
Því miður beit þessi áróður
nokkuð Alþýðuflokknum til
óþurftar, en hann var ræki-
lega afsannaður strax á
miðju sumri, þegar allar
bætur Almannatrygginga
voru hækkaðar um 20 pró-
v
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, bróður
okkar og frænda,
MARTEINS SIGURÐSSONAR,
Byggðavegi 94.
Einhildur Sveinsdóttir,
Jóhanna Sigurðardóttir,
Veturliði Sigurðsson,
Stefán Karlsson.
±
I
í
I
%
?
I
I
-t
d>
Öllum þeim, sem á liðnu ári sóttu okkur heim og
sýndu okkur með því vinarhug og veittu okkur
ánægýustundir, færum við innilegustu þakkir.
Þá færum við Leikfélagi Akureyrar þakkir fyrir
boð á leiksýningar, Félaginu Berklavörn á Akureyri, á
Rebekkusystrum, Lionsklúbbunum og Hjálpræðis- f
hernum á Akureyri þökkum við gjafir og góðvild ^
alla. ^ f
Ennfremur eru Kristni Árnasyni frá Finnsstöðum f
færðar kærar þakkir fyrir hans ágæta framlag til f
kaupa á orgeli í hælið. %
Njótið farsældar á nýju ári. Lifið heil! t
SJÚKLINGAR, KRISTNESHÆLI. f
*
1
I-
rfSfc-(-ð-í-*-(-£H«*-(-©-H!(-(-©-f-#-(-a-<-4!(-í-a-í'#-(-®-M!<-(-ö-W!(-i-£>-<--5(-(-®-í-*-í-©'í'#'(-
Almannatryggingar
sent, þegar kauphækkanir
höfðu orðið, svo sem um
hafði verið samið. Trygg-
ingamálaráðherrann og Al-
þýðuflokksmaðurinn Eggert
G. Þorsteinsson sá um það.
Þannig hækkuðu bætur Al-
mannatrygginga alls á sl. ári
um 25 prósent, auk veru-
legra liækkana á fjölskyldu-
bótum frá og með 1. nóv. sl.
í sambandi við verðhömlun-
arlögin.
EN Alþýðubandalagið þótt-
ist hafa fengið svo góða raun
af því í des. 1969 að láta Al-
þýðuflokkinn fella þá meiri
hækkun til Almannatrygg-
ingabóta en 5.2 prósent við
afgreiðslu fjárlaga, að það
freistaði að leika sama leik-
inn við afgreiðslu fjárlaga
nú í liðnum desember: Þeg-
ar það vissi, að ríkisstjórnar-
flokkarnir höfðu komið sér
saman um 8 prósent hækk-
un til Almannatr.bóta ann-
arra en fjölskyldubóta, þá
bar það fram tillögu um 40
prósent hækkun, og að
henni felldri 33 prósent.
Getur raunar hver sagt sér
sjálfur, sem hugleiða vill,
hvert ofboðsálag hefði
skyndilega verið lagt á gjald
þegna þjóðfélagsins, ef bæt-
ur Almánnatrygginga hefðu
á þessu ári verið hækkaðar
um 40 prósent ofan á 25 pró
sentin í fyrra, en ekki beðið
eftir endurskoðun laganna,
sem í gangi er.
EN Alþýðubandalaginu er
svo brátt að koma höggi á
Alþýðuflokkinn, að skyn-
samlegt mat á þörf bótaþeg-
ans og getu gjaldþegnsins
kemst ekki að, og Framsókn
fylgdi auðvitað fagnandi
flokknum, sem þykist vilja
vinna að endurbótum Al-
mannatrygginganna, en er í
raun að freista þess að
sprengja þær í tætlur, því
að umbætur og farsæl þróun
eru eitur í beinum ýmissa
þar í flokki, þótt aðrir
kunni vel að meta, en fá
ekki rönd við reist ofríki
vissra öfgaafla.
ÞETTA sést enn betur af
því, að talsverðu fyrir af-
greiðslu fjárlaga hafði Al-
þýðuflokkurinn leitað eftir
því við Alþýðubandalagið,
að þessir flokkar freistuðu
þess að hafa samstöðu um
ýmis velferðarmál launþega
og annarra þjóðfélagsþegna,
svo sem endurskoðun orlofs-
laga, vinnulöggjafar og Al-
mannatrygginga. Þetta var
svar Alþýðubandalagsins við
endurskoðun Almannatrygg
ingalaga, svo sem að framan
er lýst.