Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 09.12.1972, Blaðsíða 4

Alþýðumaðurinn - 09.12.1972, Blaðsíða 4
IÞROTTIR 1. DEILD I KORFUKNATT- LEIK ÞÓR — UJMJ.N. j_.eiKui' sá sem íram lor ner á ■i-uíureyri s. 1. raugai'aag muu j^ors og U.iVl.r'.iS. varö sizi m pess ao auua iiroöur koiíu- unatuentsms. nora ems iem reysu 1 Doita-iprou iien eg vai'ia seö, enaa oera ionatoiur reiKsms Jpaö meö sér. jueíKURINN. iNjaröviKmgar sKoruðu lyrsta stigiö ur vttakasti eitir ao nala misnotaö þrju vita- skot. Par var aö veriti Gunnar porvaröason. tííöan sigu JÞórs ai-ar iram úr og höiðu yin' i nailleiit zU-10. tíenmiega er petta isegsta skor í 1. deiidar- ieiit hér á land og jainvel þótt viöar væri leitað. I síðari háii ieik juku Þórsarar enn íorystu sma og komust í 24-10, en þá breyttu Njai'övíkingar varnar leik sínum, tóku upp pressu í stað svæöisvarnar. Þessi varn araðierð haiði þau áhiii að Þórsarar urðu sem stjaríir, en velgengni UMFN jókst að sama skapi. Eitir 15 mínútur aí siðari hálileik var staðan orðin 36-31 íyrir UMFN. Síð an jainaðist leikurinn í 38-33 og Þór nær yiirhöndinni 39- 38 með þvi aö Númi skorar úr öðru tveggja vítaskota, sem hann íékk. Þá voru um þaö bil 10 sek. eitir aí leiktíma, en samt tókst Gunnari aö 'brjótast að köríunni og skora ursiitastigin við mikinn fögn uð samherja sinna, 40-39. LIÐIN. Eftir að hafa séð þessi tvö iið leika þykir mér líklegt, að annað þessara liða þurfi að bita i það súra eph að hijóta neðsta sætið í deildinni. Þrátt fyrir úrslitin er það álit mitt, að Þór hafi yfir betra liði að ráða heldur en UMFN. Pressu vörnin setti liðið út af laginu, en við slíkri „taktik“ á að vera auðvelt að finna ráð. í liði Þórs fannst mér Rafn Haraldsson koma bezt út, en hann varð að yfirgefa völlinn um miðbik síðari hálfleiks með 5 villur. í liði UMFN voru þeir Guirn ar og Brynjar Sigmundsson beztir. STIGIN SKORUÐU: Þór: Rafn 11, Eyþór 12, Jón 6, Magnús 6, Pétur 2 og Númi og Þorgils eitt hvor. Skotanýting 21, 1%, vítanýt ing 39%. UMFN: Gunnar 7, Barry 9, Hilmar8, Brynjar 8 og Haukur 8. Skotanýting 36%, vítanýt ing 40%. Leikinn dæmdu vel þeir Arnar Einarsson og Hörður Tulinius. 2. DEILD HANDKNATT- LEIK KA — ÞÓR Fyrsti leikurinn í 2. deild íslandsmótsins í handknatt- leik á Akureyri fór fram s. 1. sunnudag milli KA og Þórs. Leikurinn var fumkenndur- framan af og liðin mjög leit andi. Það var ekki fyrr en á 6. mínútu sem Árni Stefáns son skoraði fyrsta markið fyr ir KA.Þór jafnaði strax, en um miðjan fyrri hálfleikinn hafði KA komizt yfir 3-1 með tveim nr mörkum Sigurbjörns. Þór jafnaði og komst yfir 5-4 þegar fáar mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. KA var með boltann og Sigurbjörn skaut í stöng og þaðan hrökk boltinn fram á völlinn og Sigtryggur rak endahnútinn á hraðaupp hlaup Þórs með marki. Síðari hálfleikurinn hófst með mun skynsamlegri leik KA heldur en í fyrri hálfleik. Þetta gaf uppskeru þannig að eftir 5. mínútur var staðan 7-6 fyrir Þór. Um miðjan síðari hálfleik var staðan jöfn 10-10, síðan 11-11, en þá fór Þór að síga fram úr og sigruðu 15-12. LIÐIN Sigur Þórs í leknum var sanngjarn. Þeir |éku af meiri yfirvegun heldur en KA. Varnir liðanna voru sterkar svo og markvarzla góð, en sóknirnar heldur þunglama^ legar. Eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu eru liðin ákaflega jöfn að getu og til alls líkleg. í |iði Þórs kom Þorbjörn bezt út, þá var Að- alsteinn góður. Tryggyi í Framh. á bls. 2 *X>C* 42. árg. — Akureyri, laugardaginn 9. des. 1972 — 18. tölublað MÁGNÚS FÚS TIL SVARA Umsjónarmenn „Beinnar línu" svara grein Bórðar Halldórssonar í Aiþýðumanninum. Lokamínútur í leik Þórs og U.M.F.N. Vegna skrifa í AM um útvarps þáttinn Beinlína 29. nóv. óska umsjónarmenn þess að eftirfar- anli komi fram: „Magnús Kjartansson, iðnað- arráðherra, féllst á að svara öll- um spurningum, sem til þáttar- ins bárust. Og það jafnt þeim spurningum um „Laxármál“ og um málefni Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri, sem bárust að norðan eftir auglýstan síma- tíma sem öðrum. Ráðherra var einnig undir það búinn að svara óvæntum spurningum, enda leggja umsjónarmenn á það á- herzlu að hlustendur rabbi við ráðamenn á beinu línunni. — Vegna smávægilegs misskilnings komst ekki nema annar mennta- skólakennaranna tveggja að í jiættinum. Hans spurning snerti Slippstöðina á Akureyri og hafði umsjónarmönnum ekki verið tilkynnt um hana áður. Ráðherra svaraði þó spurning- unni skilmerkilega. Ekki skal um það deilt hér hvernig á þeim misskilningi stóð, sem leiddi til þess að öðrum kennaranum gafst ekki færi á að bera fram fyrirspurn sína, en óhapp af þessu tagi getur alltaf hent í beinni útsendingu. Ljóst er hins vegar að það sem misfórst í þessu máli er eingöngu milli kennaranna og umsjónarmanna en ráðherranum með öllu óvið- komandi. Árni Gunnarsson, Einar Karl Haraldsson. Nú er hættulegasti tíminn í umferðinni að hefjast, en að sögn lögreglunnar er desember- mánuður versti mánuður ársins hvað slys meðal gangandi veg- farenda snertir. Frumvarp til liga om grdðslo kosMor vií ndmsflekho — Flutniiig:*iiiaðiir Bragi Sigarjónsson 1. gr. — Starfræki sveitarfélög náms- flokka, sem aðgangur er frjáls að, skal fara um kostnað við rekstur þeirra eftir ákvæðum III. kafla laga um skólakostn- að, nr. 49/1967, enda hafi menntamála- ráðuneytið samþykkt fj árhagsáætlun hvers skólaárs, námsskrá og ráðningu skólastjóra eða forstöðumanns og kenn- ara.- 2. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi. GREINARGERÐ Um nauðsyn á fræðslu fyrir fullorðna og nytsemi námsflokka í þeim tilgangi verður ekki deilt. Virðist og sem skiln- ingur og vilji almennings til að auka við þekkingu sína og endurhæfa á ýmsan hátt, eftir að út í starfsönn lífsbaráttunn- ar er komið, fari vaxandi, og er þá kennsla í námsflokkum, þar sem kostur er á ýmiss konar fræðslu, þekkingarupprifj - un og nýnámi, þegar venjulegri dagsönn er lokið, flestum langauðveldasta náms- leiðin, enda gætir nú víða vaxandi sóknar inn á þessa braut og aukins starfs á veg- um námsflokka samfara f j ölbreyttari námsgreinum. Hingað til hafa sveitarfélögin ein borið allan kostnað af námsflokkastarfsemi og hún þá vitanlega orðið þar öflugust, sem beinin hafa verið sterkust að bera hana uppi eða áhugi forstöðumanna svo óeigin gjarn, að ekkert eða lítið hefur verið spurt um laun. Eðlilegt er, að um greiðslu kostnaðar við rekstur námsflokka gildi hliðstæðar reglur og um kostnað við rekstur þeirra skóla, sem reknir eru sameiginlega af ríki og sveitarfélögum, eftir því sem við á. Um það eru skýr ákvæði í III. kafla gild- andi laga um skólakostnað, nr. 49/1967. Aðalreglan er sú, skv. 16. gr. laganna, að öll föst laun fastra kennara og annarra starfsma’nna eru greidd beint úr ríkissjóði, — varðandi námsflokka gildi það væntan- lega fyrst og fremst um skólastjóra eða forstöðumann, — en laun vegna stunda- og forfallakennslu og allar aukagreiðslur til skólastjóra og kennara, sem leiðir af samningum ríkisins við stéttarsamtök þeirra eða af kjaradómi, endurgreiðir rík- ið sveitarfélögunum mánaðarlega. Annan rekstrarkostnað greiða sveitarfélögin, svo sem húsnæði og húsvörzlu, hitun, lýsingu, ræstingu o. s. frv., sbr. 22. gr. skólakostn- aðarlaga. Ef þessi háttur yrði upp tekinn einnig gagnvart námsflokkum, eins og hér er kveðið á um, mundi það stórefla og tryggja starfsemi námsflokkanna, sem er mikilvægasta fullorðinsfræðsla, sem nú fer fram, en námsflokkar eru jafnframt mikið sóttir af ungu fólki.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.