Alþýðumaðurinn - 10.12.1974, Side 2
^/1 Utgefandi: Alþýðuflokksfélag
ri VI Akureyrar. — Ritstjóri og ábm.
7—1 U VJ L- Hjörleifur Hallgríms.
ALÞÝÐUMAÐURINN
Afgreiðsla og auglýsingar Strandgötu 9, sími 11399.
Prentsmiðja Björns Jónssonar — Akureyri
Baráttan við
„kerfið66
Ekki alls fyrir löngu hefur verið send út á meðal skóla-
stjóra skyldunámsstigsins skýrsla, sem Arnór Hannibals-
son hefur samið um ástand ýmissa þátta fræðslunnar og
afskipta eða stjórnar menntamálaráðuneytisins á þeim eða
sumra starfsmanna þess. Tekur Arnór að sögn blaðið sums
staðar svo hressilega frá munninum, að ráðuneytisstjóri
og menntamálaráðherra hafa talið sig knúða til að þvo
hendur sínar af allri ábyrgð á skýrslu Arnórs.
En þeir, sem til þekkja, glotta kalt. Ekki ríður vesal-
mennskan við einteyming. Það er sem sé á orði meðal
skóiamanna, að skýrsla Arnórs sé a. m. k. í meginatriðum
rétt, og sá starfsmaður ráðuneytisins, sem hann deilir fast-
ast á, valdi alls ekki starfi sínu, vegna skilningsleysis á
því, vegna þverlyndis síns, vegna of mikils álags eða Vegna
hæfileikaskorts. En í stað þess að athuga málið til hlítar
þvær „kerfið“ bara hendur sínar og allt situr við hið
sama, eilífir rembihnútar í fyrirgreiðslu- og framkvæmda-
kerfinu.
Þetta leiðir hugann að mörgum fleiri sjúkdómseinkenn-
um „kerfisins.“ Tökum dómsmálin sem dæmi. Uppi var
hávær gagnrýni á dómsmálastjórn Jóhanns Hafsteins, þeg-
ar hann var dómsmálaráðherra. Hann þótti „partískur“ í
embættisveitingum svo mjög, að hann veitti aldrei öðrum
en Sjálfstæðismönnum embætti, nema þá ef hann var að
losa sérstakt embætti fyrir einhvern gæðing flokksins og
sá póstur þætti mikilsverðari en hinn, sem látinn var í
skiptum. Enn var hann talinn halda föðurlegri verndar-
hendi yfir afturhaldssömum og afkastahægum ráðuneytis-
stjóra. Sjaldnast varð það þó sagt með sanni, að Jóhann
Hafstein bæri ekki þá virðingu fyrir dómsmálunum, að
hann leyfði sér að skipa óhæfa menn í embætti, en um-
deilanlegar veitingar komu auðvitað fyrir, jafnvel for-
kastanlegar, en aðeins sem undantekningar. Með komu
Ólafs Jóhannessonar, prófessors í lögum og rétti, í dóms-
málaráðherraembætti, vonuðu margir, að hann mundi
hreinsa til í dómsmálaráðuneytinu: vekja ráðuneytið af
afturhaldssvefni, hreinsa upp svefnmálabunkann af skrif-
borðunum þar og skipa menn í störf eftir hæfileikum fyrst
og fremst, ekki flokkslit. En vonirnar um Ólaf brugðust
algerlega: ráðuneytið svaf fastar en fyrr á öllum umbóta-
tillögum, embættisveitingar urðu svo gerræðisfullar, að
þeir, sem best þekktu til, stóðu furðu lostnir, því að nú
virtist flokkslitur, framsóknarlitur, skipta höfuðmáli,
frændsemi og tengdir lítið, en hæfileikar og reynsla vera
tæpast til álita.
Satt best að segja þyrfti einhver hreinskilinn Arnór
Hannibalsson að semja skýrslu um dómsmálastjórn Ólafs
Jóhannessonar og leggja fyrir hið háa Alþingi.
Enn mætti nefna sem dæmi þess, í hvert öngþveiti
„kerfið“ getur leitt þau mál, sem því er trúað fyrir, en
það er stjórnin á rafmagnsmálum ríkisins, bæði virkjunar-
málin og dreifingarmálin: annars vegar seinagangur og
úrræðaleysi, hins vegar óstjórn og bullandi taprekstur,
sem almenningur verður að greiða þunga skatta fyrir.
Einhver Arnór Hannibalsson þyrfti einnig þar að leggja
skjölin á borðið. — IX.
Fyrstur með íþróttafréttir helgarinnar
ÍÞRÖTTIR
29. þing KSÍ
inni í áfönsum.
Um síðustu mánaðamót var
haldið 29. þing KSÍ að Hótel
Loftleiðum í Reykjavík. Rúist
hafði verið við nokkrum átök-
um á þessu þingi, og þá sérstak-
lega um tillögu stjórnarinnar
um fjölgun liða í fyrstu deild,
og einnig hafði heyrst, að Haf-
steinn Guðmundsson, formaður
IBK, mundi gefa kost á sér í
stöðu formanns KSI, á móti
Ellert B. Schram. Stungið var
upp á Hafsteini Guðmundssyni,
þegar á þingið var komið, en
hann gaf ekki kost á sér, svo
Ellert B. Schraro var endurkjör-
inn formaður með miklum
meirihluta atkvæða.
Ur stjórn áttu að ganga
Bjarni Felixson, Axel Friðriks-
son og Friðjón Friðjónsson.
Þeir gáfu allir kost á sér til
endurkjörs, en auk þeirra komu
fram tillögur um þá Helga Han-
ielsson og Arna Þorgrímsson,
og voru því 5 í framboði.
Friðjón Friðjónsson var sá
eini þeirra, sem hélt sæti sínu
í stjórninni, en þeir Helgi Dan-
íelsson og Árni Þorgrímsson
sigruðu þá Bjarna og Axel.
Fyrir í stjórninni voru Jens
Sumarliðason, Jón Magnússon
og Páll Bjarnason.
Stærsta mál þingsins var til-
laga stjórnarinnar um fjölgun
liða í fyrstu deild úr 8 í 10, en
þessi tillaga náði ekki fram að
ganga, en þó var samþykkt, að
fjölga liðunum úr 8 í 10 í á-
föngum.
Verður fjölgað um eitt lið
árið 1976 og aftur um eitt lið
árið eftir. Þetta þýðir, að Akur-
eyringar verða að leika í 2. deild
næsta ár.
Verðum bara
að sigra 2.
deildina
Eins og kunnugt er, þá töldu
Akureyringar nokkuð víst, að
fjölgað yrði í 1. deild, strax
næsta sumar, og margir voru
þeirrar skoðunar, að leikur
þeirra við Viking um fallið vaui
aðeins til málamynda. En nú
hefur annað komið í ljós, því
eins og annarsstaðar hér á síð-
unni er getið um, var tillaga
stjórnar KSl um fjölgun í I.
deild felld, en breytngar-
tillaga um sama efni samþykkt,
þar sem fjölgað verður í deild-
Við höfðum tal af Steindóri
Gunnarssyni út af þessu máli, og
sagði hann:
— Ur því sem komið er, verð-
um við bara að vinna 2. deild-
ina næsta ár, ég tel okkur hafa
gerl rétt með því að. leika þenn-
an umrædda leik, þó margir séu
þeirrar skoðunar, að það hefð-
um við aldrei átt að gera.
Málin voru komin þannig, að
í algjört óefni var komið, og
Síðasti spámaður okkar, Hjörl-
ur Herbertsson, var með 6 leiki
rétta á sínum seðli. í tilefni af
því að þetta er síðasta spáin,
sem hér fer á eftir, á þessu ári,
þá hafði undirritaður hugsað
sér að freista gæfunnar.
Undirritaður hefur aldrei ver-
ið neinn afreksmaður á íþrótta-
sviðinu, en mjög áhugasamur
um allt, sem heitir íþróttir, og
ekki hvað síst áhugasamur um
knattspyrnu og skíði.
í rúm fimmtán ár bjó hann í
Vestmannaeyjum og var þá
stuðningsmaður IBV-liðsins,
sem er mikið baráttulið og háði
harða baráttu í þrjú skipti til
að komast upp i 1. deild Síðan
hefur liðið jafnan veri't í röð
betri liða deildarinnar og tvisvar
orðið bikarmeistari.
Eftir að undirritaður flutti
aftur hingað norður á aísku-
stöðvarnar, hefur hann verið
eindreginn stuðningsmaður ÍBA
liðsins, en eins og fleirum, þótti
honum fall liðsins í 2. deild orka
tvímælis og liðið ekki eiga það
hefði stjórn KSÍ og knattspyrnu-
málin yfirleitt beðið mikinn
hnekki, ef við ekki hefðum leik-
ið, og hefði stjórnin þá orðið
að gera einhverjar þær ráðstaf-
anir, sem jafnvel hefðu orðið
henni miður til framdráttar og
getað leitt af sér heilmikla
„sprengingu“. Á eftir því sem
undan var gengið, tel ég okkur
hafa farið illa út úr þessu á þing
inu, en það breytist ekki héðan
af, og nú höfum við aðeins eitt
takmark, og það er að vinna 2.
deildina næsta ár, og það mun
okkur takast.
Þess má geta, að talið er, að
Keflvíkingar, Akurnesingar,
Vestmannaeyingar, Fram og fé-
lögin í kringum Reykjavík t. d.
hafi verið á móti tveggja liða
fjölgun í 1. deild, þegar næsta
sumar.
fall skilið.
En einhvers staðar stendur:
„fall er fararheill", og er undir-
ritaður viss um, að ÍBA-dreng-
irnir gjörsigri 2. deildina næsta
sumar, og eftir þ°.ð muni þeir
halda sæti sínu i I. dei'dinni
svo tryggilega, að engin geti
eíast um það framar, að þeir
eigi þar tilverurétt.
Uppáhaldslið undirritaðs í 1.
deildinni ensku, er Arsenal, en
hér kemur svo spám. Leikir 14.
desember 1974:
Arsenal — Leicester 1
Carlisle — Cheisea 1
Coventry — Newcastle 2
Derby — Everton 2
Ipswich — ottenham 1
Ipswich — Tottenlram 1
Leeds — Stoke 2
Liverpool — Luton 1
Middlesbro — Birmiagham 1
Q. P. R. - Sheff. Utd.~ 1
West Ham — Manch. City 1
Wolves — Burnley 1
Blackpool — Norwich 2
H. H.
GLÆSILEGT ÚRVAL AF
straufríu
sængurfataefni
Frotté-efni, nýir litir, — o. m. m. fl.
Ath. að panta svampdýnurnar tímanlega fyrir jól.
Dúkaverksmiðjan hf
— Verslunin. — Sími 2-35-08.
Enska knattspyrnan
Spámaðurinn —
2 - ALÞÝÐUMAÐURINN