Alþýðumaðurinn - 02.06.1976, Page 1
ALÞYÐUMAÐURINN
.
SJUKRAHOTEL
Á AKUREYRf
46. árgangur - Akureyri, miðvikudaginn 2. júní 1976 - 20. tbl.
Nýlega festi Rauði Krossinn,
Akureyrardeild, kaup á hús-
eigninni Skólastígur 5 hér í bæ
og hikst þar reka sjúkrahótel,
sem er það fyrsta sinnar teg-
undar utan Reykjavíkur, og
YFIRVINIMUBANIM HJÁ
BORMÖIMIMUNUM -
Yfirvinnubann hefur verið nú
um nokkurt skeið hjá bor-
mönnum og hefur það meðal
annars komið niður á borunar
framkvæmdum að Syðra-
Laugalandi.
Vinna hefur af þessum sök-
um fallið niður á helgidögum,
“s
Borinn aftur laus
Eins og fyrr hefur komið fram,
þá festist borinn Jötunn þar
sem hann er að bora þriðju
holuna að Syðra-Laugalandi.
Þetta átti sér stað, er komið
var niður á 900 — 1000 metra
dýpi. Nú um nokkurn tíma
hefur verið unnið að losun
borsins og er því verki nú lok-
ið þannig að borun getur hafist
af fullum krafti að nýju. Þá er
langt komið að fóðra holuna
niður á rúmlega 900 metra
dýpi og á það að vera til varn-
ar því, að hrun myndist í henni
aftur, svo borun geti haldið
áfram án nokkurra óhappa eða
tafa.
það er frá föstudagskvöldi til
aðfaranætur mánudags.
Orsakirnar fyrir þessu banni
munu vera þær, að yfirleitt eru
gerðir sérsamningar við bor-
menn og ýmsa aðra vinnuhópa
þegar að heildarsamningar eru
gerðir, en að þessu sinni hefur
ekki enn verið samið um þessi
sérákvæði þó liðnir séu 3 mán-
uðir frá gerð heildarsamning-
anna á síðastliðnum vetri.
Dagsbrún mun þó vera búin
að leggja fram uppkast að
samningum fyrir þessa hópa,
og eitthvað verið um það fjall-
að, en endar ekki náðst saman
ennþá. Þó mun hafa verið fund
ur með samningsaðilum í gær
og vonir standa til að úr rætist
næstu daga.
Flaggslupið Týr við bryggju á Akureyri.
mun í framtíðinni verða rekið
með svipuðu sniði og þar.
Þá er átt við hótel, sem
sjúklingar með fótavist geta
búið á ef þeir þurfa að leita sér
lækninga á Akureyri.
Kaupverð hússins var 12
milljónir króna og stendur Ak-
ureyrardeildin ein að kaupun-
um en nýtur stuðnings Rauða
Kross íslands. Húsið verður
afhent í ágústmánuði næstkom
andi og til að byrja með eiga
að geta gist þar 6—8 manns í
einu, en með breytingum, sem
fyrirhugaðar eru mun verða
þar gistirými fyrir 10 — 12
manns. Guðmundur Blöndal,
starfsmaður Akureyrardeildar
Rauða Krossins tjáði blaðinu,
að lengi hefði verið brýn þörf
fyrir slíkt sjúkrahótel á Akur-
eyri.
Fundarsam-
þykkt
Fundur haldinn í Friðbjarnar-
húsi 13. maí 1976 í stúkunni
Ísafold-Fjallkonan nr. 1 þakk-
ar Starfsmannafélagi Akur-
eyrarkaupstaðar fyrir sam-
þykkt um að skora á bæjar-
stjórn Akureyrar að hætta að
veita áfengi í veislum sem bær
inn heldur.
Fundurinn fagnar því einnig,
að bæjarstjórn Siglufjarðar
hefur hætt að veita áfengi í
þeim veislum, sem eru á henn-
ar vegum.
xX>» -
N
Öll tilboðin undir
kostnaðaráætlun
Nýlega voru opnuð tilboð í
byggingu fjölbýlishússins að
Hjallalundi 1, 3 og 5, sem
stjórn Verkamannabústaða
ætlar að láta reisa. Þrjú tilboð
bárust og voru þau frá eftir-
töldum aðilum:
Smári hf. 84.451.500.00
Híbýli hf. 91.896.000.00
Aðalgeir og
Viðar hf. 95.300.000.00
Kostnaðaráætlun gerð af
Teiknistofunni Ármúla 3,
Reykjavík, hljóðaði upp á
102.628.420.00.
Tilboðin eru miðuð við bygg
inguna fullfrágengna að öðru
leyti en því, að í þeim feiast
ekki smíði á eldhúsinnrétting-
um, innihurðum og skápum í
herbergi, en þessi atriði verða
boðin út síðar.
“S
Yarðskip í höfn
Tvö af varðskipum Landhelg-
isgæslunnar, Týr og Þór voru
hér í höfn í gær og fyrradag.
Þór var tekinn til botnhreins-
unar hjá Slippstöðinni, en ekki
er vitað hvað Týr var að gera
annað en það hafi verið „kurt-
eisisheimsókn“ og „vopnahlé"
það sem nú er á miðunum hafi
verið notað til að hvíla mann-
skapinn.
Gárungarnir töluðu þó um,
að freigáturnar hefðu verið
sendar út fyrir og þá hefðum
við íslendingar enn einu sinni
þurft að sýna oklcar heims-
fræga „þjóðarstolt“ með því
að senda varðskipin til hafnar
á meðan samningar standa yfir
við Breta um að minnka afla-
magn okkar sjálfra um tugi
þúsunda tonna, án viðurkenn-
ingar á 200 mílna fiskveiðilög-
sögu okkar og stórri hættu á
nýjurn ofbeldisaðgerðum að
nokkrum mánuðum liðnum, í
skjóli Efnahagsbandalagsins.
Ertu að byggja? Alltaf eitthvað nýtt. FASTEIGNASALA - LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Þarftu að bæta? Viltu breyta? Amerískar blússur og bolir.
ÍBOÐIN KLEOPATRA Strandgötu 23. — Sími: 2-14-09. Steindór Gunnarsson, lögfræðingur.
TRYGGVABRAUT 22. - SÍMI: 2-24-74. Ráðhústorgi 1. — Sími: 2-22-60.