Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 08.12.1976, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 08.12.1976, Blaðsíða 1
Um eignarráð yfir landinu, gögnum þess og gæðum - síá Kaidbak Stefán Jónsson umpólast í eignarráðs- hugmyndum sínum — Sjá Ieiðara ALÞÝÐUMAÐURIN 1ANGUR . AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 8. DESI ÁRAIMGURSRÍKU ÁSf ÞIMGI LOKIÐ Björn Jónsson endurkjörinn form. sambandsins 33. þingi Alþýðusambands íslands er nýlega lokið í Reykjavík og var Björn Jónsson endurkjörinn forseti Alþýðusambandsins. Mörg mál lágu fyrir þinginu og voru afgreidd og ber þar hæst stefnuskrána, en hún er sú fyrsta sem Alþýðusambandið hefur eignast síðan aðskilnaður varð milli Alþýðusambandsins og Al- þýðuflokksins. Blaðið leitaði frétta hjá Ólöfu Jónasdóttur, sem var meðal fulltrúa á Alþýðusambandsþinginu. — Þetta er fyrsta ASÍ- þingið sem þú situr? — Já og það var mikil reynsla fyrir mig að sitja svo fjölmennt þing og stórt í snið um og að flestu leyti ánægju- legt, en þó fannst mér stund- um heldur mikið um pólitíska flokkadrætti. Ég verð þó al- gerlega að neita því sem sagt hefur verið að samningamakk hefði mikið farið fram í skúmaskotum á þinginu, en hjá stórum hópi sem þarna var saman kominn eru skoð- anir eðlilega skiptar og finnst mér eðlilegt að þegar uppá- stungur eða tillögur koma fram frá vissum aðilum, fái viðsemjendur að taka ákvörð- un og senda sitt svar. Þess vegna stóð ég að svari frá Al- þýðuflokknum, þar sem við neituðum útilokunartillögu Alþýðubandalagsmanna. Mér finnst sjálfri ólýðræðislegt að útiloka fulltrúa frá störfum, bara vegna þess að þeir hafa ekki sömu stjórnmálaskoðanir og ég. — Hver voru helstu mál þingsins? — Stefnuskrármálið var vafalaust meðal merkustu máta þessa þings. Miklar um- ræður urðu um það og komu fjölmargar breytingartillögur fram við drög þau, sem send höfðu verið til félaganna til umfjöllunar. Stefnuskrár- nefnd lagði til að frumdrögin yrðu látin gilda út næsta kjör tímabil, en milliþinganefnd starfi að því ásamt sambands- stjórn að taka til meðferðar þær breytingartillögur, sem fram hafa komið og skili hún áliti fyrir næsta þing. Var þessi tillaga samþykkt. — Þá hafa kjaramálin einn- ig verið í brennidepli að vanda? — Já, um þau voru umræð- ur undir kjörorðinu „Varnar- baráttunni lokið. Sóknarbar- áttan hafin“ og var mikill ein hugur ríkjandi um þessi mál. — En frumvarpið um breyt ingar á vinnulöggjöfinni, var það ekkert rætt á þinginu? — Jú, það var nokkuð rætt og kom fnam einhuga and- staða þingfulltrúa við frum- varp þetta, sem samið hefur verið án þess að nokkurt sam- ráð væri haft við verkalýðs- hreyfinguna. — Hvaða önnur mál gæt- irðu nefnt? — Fræðslumál voru ofar- lega á baugi og átti ég sæti í nefnd sem um þau fjallaði. Ég er mjög ánægð með að áhugi fólks í verkalýðshreyfingunni á þessum málum er að vakna. Þá vann nefnd sú sem fjallar um vinnuvernd, trygginga- og Framhald á bls. 3. Veturinn er nú loksins kominn í öllu sínu veldi, börnum og skíðamönnum til óblandinnar ánægju, en nokkrar sam- göngutruflanir hafa orðið vegna snjókomu. Þessi mynd af Akureyrarkirkju minnir á það, að jólin nálgast nú mjög og væntanlega leggja margir Akureyringar leið sína þangað hátíðisdagana. * Ályktun bæjarstjórnar Húsavíkur um móttökuskilyrði hljóð- og sjónvarps Ályktun um móttökuskilyrði fyrir hljóðvarpssendingar á Húsavík, samþykkt á fundi bæjarstjórnar 2. des. sl. Bæjarstjórn Húsavíkur fagnar endurbótum á dreifingu sjón- varps til íbúa á Vestur og Norð Fréttir f rá Ólafsfirði Á Ólafsfirði hefur tíð verið fremur slæm að undanfömu að sögn Sigurðar Jóhannsson- ar fréttaritara Alþýðumanns- ins þar. Frá Ólafsfirði eru gerðir út tveir togarar og hefur annar þeirra aflað sæmilega, en hinn er um þessar mundir í Reykjavík vegna viðgerðar á flotvörpu. Afli smábáta hef- ur verið mjög lélegur undan- farið og rækjubátar hafa lítið getað róið vegna veðurs. Samgöngur við Ólafsfjörð eru fremur erfiðar ekki síst þegar Múlavegur lokast og verður þá að treysta á ferðir flóabátsins Drangs. Framkvæmdir standa nú yfir við flugvöll á Ólafsfirði og stendur til að Norðurflug hefji þangað reglulegar áætl- unarferðir þegar hann kemst í gagnið. Félagslíf stendur með mikl- um blóma á Ólafsfirði. Eru þar meðal annars tafl- og bridgefélag. Leikfélag starfar á Ólafsfirði með miklum blóma og hefur það nýlega fest kaup á fullkomnum ljósa- útbúnaði. Æskulýðsstarfsemi stendur og með blóma á Ólafs firði og má t. d. nefna að reglulega er þar „opið hús“ fyrir unglinga með líku sniði og í Dynheimum á Akureyri og er það í félagsheimilinu Tjarnarborg. urlandi, vestan Vaðlaheiðar með tilkomu örbylgjusend- inga. Jafnframt minnir bæjar- stjórnin á, að þessar endur- bætur koma sjónvarpsnotend- um á Húsavík og þar í grennd, að takmörkuðu gagni meðan örbylgjukerfið nær aðeins til Vaðlaheiðar og því eru mót- tökuskilyrði fyrir sjónvarp á Húsavík ennþá léleg, t. d. er texti tvöfaldur. Á fundi bæjarstjórnar Húsa víkur í desember 1973 var samþykkt harðorð ályktun vegna ófremdarástands á út- sendingum hijóðvarps frá end urvarpsstöðinni á Húsavík. Nú að þrem árum liðnum er ennþá notast við sama send- inn, sem er venjulegur talstöðv arsendir, sem fær dagskrárefni eftir símalínu, sambærilegri við venjulega talsímarás. Af þeim sökum eru tóngæði í al- gjöru lágmarki, eins og Sigurð ur Þorkelsson, forstjóri radíó- tæknideildar Landsíma Is- lands tók réttilega fram í sjón varpsþættinum Kastljósi föstu daginn 26. nóvember 1976. Bæjarstjórn Húsavíkur skorar á samgöngumálaráð- herra, sem æðsta yfirmann fjarskipta á íslandi að beita sér án frekari tafar fyrir eftir- farandi úrbótum á útsending- um hljóðvarps og sjónvarps á Húsavík: 1. Komið verði á næstu mán uðum upp FM sendi á Húsa- vílcurfjalli fyrir hljóðvarp, en þar er nú þegar fyrir hendi raforka, hús, og mastur fyrir fjarskipti. 2. örbylgjukerfi fyrir sjón- varp verði framlengt að sjón- varpssendi á Húsavíkurfjalli. Bæjarstjórn felur þingmönn um kjördæmisins að fylgja þessari áskorun eftir af fullum þunga. NOROLENZK fyrirNorölendinga RAÐHUSTORG! 1 AKUREYRI SÍMI 21844

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.