Hugur - 01.01.1992, Side 21
HUGUR 5. ÁR, 1992
s. 19-37
Samtal við Karl Popper
Karl Popper og Bryan Magee ræðast við1
Karl Popper fœddist í Vínarborg árið 1902 og átti þar heima fram á
fertugsaldur. Hann var aldrei í Vínarhringnum; enda þótt áhugamál
hans vœru flest þau sömu og þeirra þá var hann ósammála kenningum
þeirra. Það mœtti nœstum því segja aðfyrsta bókin hans, Logik der
Forschung — sem þýðir bókstaflega Rökfræði vísindalegrar
rannsóknar — hafi verið skrifuð gegn Vínarhringnum. Þótt hún kœmi
út haustið 1934 birtist hún því miður ekki í enskri útgáfu fyrr en
aldarfjórðungi síðar (undir heitinu The Logic of Scientific
Discoveryj. Mér er nœr að halda að heimspeki heillar kynslóðar í
Englandi kynni að hafa orðið öðruvísi efbókin hefði birst hérfyrr.
1 Samtal það milli vísindaheimspekingsins Karls Poppers og Bryans Magees sem hér
birtist fór fram í Breska ríkisútvarpinu veturinn 1970-71. Er það eitt af þeim
samtölum sem Magee átti þennan vetur við tólf breska heimspekinga, auk Poppers,
þar á meðal Alfred Ayer, Gilbert Ryle, Peter Strawson, Stuart Hampshire og
Bernhard Williams. Samtölin komu út á prenti skömmu eftir að þau voru flutt
undir heitinu Modern British Philosophy (London: Secker & Warberg, 1971). —
Rétt er að geta þess að Bryan Magee, sem er menntaður í heimspeki, hefur skrifað
ágæta bók um heimspeki Poppers sem kom út í bókaflokknum Modern Masters. Þá
hefur hann líka átt opinberar samræður við fleiri heimspekinga úr hinum ensku-
mælandi heimi. Veturinn 1978 átti hann fimmtán samtöl og jafnmörg 1987. Báðum
þessum samtalaröðum var sjónvarpað. Úr þeim urðu síðan bækurnar Men ofldeas
(London: BBC, 1978) og The Great Philosophers (London: BBC, 1987).
Eftirfarandi fróðleikur er til viðbótar þeirri kynningu á Popper scnt kemur fram hjá
Magee áður en samtal þeirra hefst. — Meðal almennings mun Popper þekktastur
sem óvæginn gagnrýnandi marxismans og annarra kenninga sem þykjast hafa
höndlað Stórasannleik um manninn og veröldina og má þar nefna sálgreiningu
Freuds og þráttarhyggju Hegels. Er Popper býsna óvinsæll meðal fylgismanna
kreddna af þessu tæi og ftnna þeir honum flest til foráttu. — Vínarhringurinn sem
nefndur er í innganginum að samtalinu var samtök vísindalega sinnaðra heim-
spekinga í tengslum við háskólann í Vínarborg. Eru samtök þessi sérstaklega tengd
nafni Moritz Schlicks (1882-1936) sem var aðalhvatamaðurinn að stofnun þeirra.
Þau störfuðu á þriðja og fjórða áratugnum, gáfu út tímarit, bækur og héldu
ráðstefnur, en leystust upp þegar nasistar náðu völdum í Austurríki. Sumir
félaganna fluttu til Bandaríkjanna og höfðu mikil áhrif á þróun heimspeki þar í
landi, t.d. Rudolf Camap (1891-1970). Heimspekingamir í Vínarhringnum héldu
fram kenningu sem þeir kölluðu logical positivism og hefur fengið á íslensku
nafnið rökfrœðileg raunspeki. Meginhugmynd þessarar speki er sú að allt sem hægt
er að segja af viti og hefur merkingu sé annað hvort stærðfræðilegs eða rök-
fræðilegs eðlis, ellegar þá raunvísindalegs eðlis; þ.e.a.s. staðhæfingar um sann-
reynanleg fyrirbæri, staðreyndir. Samkvæmt raunspekinni eru því t.a.nt. frumspeki
og siðfræði merkingarlaus vaðall, þvættingur. Popper var frá upphafi eindreginn