Hugur - 01.06.2002, Side 67
Refir og broddgeltir, dýrlingur og snákur
Hugur
það sem er satt fyrir Aristótelesi alls ekki að vera satt fyrir okkur og
öfugt. Við getum ekki einu sinni sagt að það sé ósatt fyrir okkur. Hann
lifir í sínum lokaða heimi og við í okkar.
Margir hafa fundið að þessu hjá Kuhn með því að segja við hann að
honum lánist sjálfum býsna vel, þegar honum tekst upp, að ljúka upp
fyrir okkur leyndum kimum vísindasögunnar,53 jafnvel þar sem þeir
eru mjög framandlegir eins og öll dulhyggjan sem grasseraði í Jó-
hannesi Kepler. Við skulum ekki slá Kuhn neina slíka gullhamra að
sinni. Hugleiðum heldur vitið í því að halda að til dæmis eðlisfræði-
hugmyndir okkar tíma um þyngd og krafta séu lokaður heimur. Þá
má til dæmis taka eftir því að eðlisfræðingar fara töluvert öðruvísi
með orð eins og „kraftur“ en við gerum í daglegu tali, þar sem orðin
geta verið mjög algeng og eru til viðbótar skilin margvíslegum skiln-
ingi (sbr. til dæmis „sálarkrafta“ og ,,skemmtikrafta“). Engu að síður
eru engin sérstök vandkvæði á því að kenna ungu fólki eðlisfræði í
skólum okkar. Öll menntun gengur út á það, og hefur gengið síðan í
fornöld, að leiða fólk inn í slíka heima.
Fólk er alltaf að tileinka sér skilgreiningar eðlisfræðinnar á þyngd
og krafti og viðnámi og hreyfingu. Læsist það inn í einhverjum heimi
sem geri því erfitt fyrir að nota þessi orð á margvíslegan annan hátt
en eðlisfræðin gerir, hvort heldur í daglegu máli eða skáldskap? (Til
dæmis er skáldskapur Einars Benediktssonar barmafullur af eðlis-
fræðiorðum sem hann fer með á sinn hátt.) Hér er ekki minnsta vit í
hugmyndinni um lokaða heima. Hér höfum við opna heima að fornu
og nýju, í vísindum og daglegu lífi. Sönnunarbyrðin hvílir nú alfarið á
fylgisfólki Kuhns eins og kannski Vattimo. Það ætti að nefna okkur þó
ekki væri nema eitt dæmi um lokaðan heim. Eg veit ekki til að það
hafi nokkurn tíma verið gert.
Mér virðist hugmyndin um lokaða heima vera umhugsunarverð út
af fyrir sig. Bókmenntaverk virðast oft vera misjafnlega lokaðir heim-
ar sem lesandinn þarf að bijótast inn í. Til dæmis kvæði Einars Bene-
diktssonar. Fræðigreinar geta líka virzt vera lokaðir heimar. Til dæm-
is er öreindafræði lokaður heimur fyrir flestum mönnum af því að
þeir hafa ekki lært hana. Fræðigreinar geta líka verið lokaðar með
ýmsum öðrum hætti. Eg hef til dæmis veitt því athygli að sumar hug-
myndir Freuds virðast lifa góðu lífi í bókmenntafræði, og er þá ekki
53
Donald Davidson: „The Very Idea of a Conceptual Scheme“ í Inquiries into
Truth and Interpretation, 184. Sbr. líka um ósammælanleikann Þorstein
Gylfason: „Sannleikur", 169-171. Og Hilary Putnam: Reason, Truth and Hi-
story, Cambridge University Press, Cambridge 1981, 113-126.
65