Alþýðublaðið - 18.07.1923, Side 1
ublaðið
Gefiö út af Alþýðnflofiknnm
1923
Miðvikudagion 18. júlí.
161. tölublað.
„Með sérstakri
skipnn:*
Þess var getið í blaðinu í gær
að beiðni lögreglustjóra, að menn
þeir, er vorn í fylgd við lög-
regluna 11. þ. m., haíi verið til
þess kvaddir >með sérstákri
skipun< hans.
Slík >sérstök skipun< sem
þessi gæti verið tilefni til marg-
víslegra hugleiðinga. Það mætti
t. d. íhuga, hvortháfi verið holl-
ara fyrir þjóðina, það, sem gert
var af hálfu lögregluhnar í natni
laganna, eða hitt, sem gert var
af hálfu sjómannanna í nafni
lífsins, en því skal slept að sinni.
Hér skal að eins vikið að
einu atriði.
Svo segja menD, er á vett-
vangi voru staddir, að þessir
>aðstoðar<-lögregluþjónar, er þar
komu fram, hafi á engan hátt
borið þess merki, að þeir hefðu
neinn sérstakan rétt, og án ein-
hvers slíks merkis var vitanlega
ekki hægt að ætlast til, eð menn
gætu séð því um lfkt á þeim
mönnum. Raunar er þess að
geta, að einhverjir munu hafa
heyrt, að lögreglustjóri lýsti yfir
því, að þeir væru honum til að-
stoðar, en þegar svo stendur á
sem þá, er ekki hægt að vænta
þess, að munnlegri yfirlýsingu
sé veitt mikil eítirtekt.
Það ætti að vera regla að
kveðja menn ekki til aðstoðar
við lögregluna, nema eitthvað
alveg sérstaklega viðurhlutamikið
sé á ferðinnl og alls ekki í
einkamálum manna, því að þess
gerist engin þörf hér, og þá
ekki heldur aðra menn en þá,
sem alþektir eru að því að gera
sér ekki leik að illindum við
aðra menn. E>að ætti sömuleiðis
að vera regla að búa slíka menn
einhverju auðkenni Kkt og hina
eiginlegu logregluþjóna, sem
sýndi án þess, að um þyrfti að
ræða, hvern rétt þeir hefðu,
enda gilti skipunin ekki lengur
en þeir bæru slíkt auðkenni,
enda mun og ætlast til þessa i
lögum.
Það þarf ekki raikið fmyndun-
arafl til að sjá það í hendi sér,
að fulikomin hætta er á, ef mikil
brögð verða að slíkum >sérstök-
um skipunum< óauðkendra >að-
stoðar<-lögregluþjóna, — og hefir
ef til vill þegar komið í ljós,
— að ófyrirleitnir menn, er
þykjast eiga sökótt við ein-
hverja vissa msnn, reyni að vera
sér úti um þær og án þess að
segja til þess fari sfðán að spana
þá upp til illinda við sig til
þess áð gfttr klekt á þeim fyrir
>mótþróa við lögregluna<. Myndi
það geta haft í för með sér
mikla tortiyggni og úlfúð manna
á milli, sem hægra er að vekja
en seta, — jaínvel tortryggni
við lögreglustjóra sjálfan.
Þess er 'því að vænta, að nú
'sé síðasta skiftlð, sem það kem-
ur fyrir, að óauðkendir menn
komi fram sem lögregluþjónár,
og að lýsa þurfi jrfir á eftir, að
þeir hafi verið kvaddir >með
sérstakri skipun.<
Ofnndáeýrnm. >Morgunblaðs<-
ritstjórunum leikur öfund á hunds-
eyrum, er þeir þykjast sjá á rit-
stjóra Alþýðublaðsins. Raunar sjá
þeir ekki anDað en skugga af
langeyrunum á sjálfum sór, af því
að þeir eru háir í loftinu og
horfa undan sól, en hánn móti
sól, og öfundin villir þeim sýn og
leifarnár af mannlegri vitund um
það, að hundar eru tryggir og
glöggir, en asnar Btaðir og heimskir.
En svona eru álög auðvaldsins,
og hörmulegt er, þegar gáfaðir
menn og góðir verða fyrir þeim
ósköpum.
ðltusmjélk
fæst alían daginn í Mjólkurbúð-
inni á Bergstaðastræti 19.
Verð 60 au. lítrinn.
Verkamannaföt saumuð. Menn
teknir í þjónustu. A. v. á.
2 kaupakonur og 1 kaupamaður
óskast í sveit. Upplýsingar á
Hverflsgötu 88 eftir kl. 7.
Snotur sölubúð til leigu á góð-
um stað. A. v. á.
Brýnsla. Heflii & Sög, Njáis-
götu 3, brýnir öll skerandi verkfæri:
ÚtbreiSið Alþýðublaðið
hvar sem þið eruð og
hvert sem þið fariði
Aftur stendur skrifað:
Sælir eru hógværir, því að
þeir munu landið eria.---------
Sælir eru hjartahreinir, því að
þeir munu guð sjá.
Sælir eru friðflytjendur, því
að þeir munu guðs synir kall-
aðir verða.-----------
Sselir eruð þér, þá er menn
atyrða yður og ofsækja og tala
ljúgandl alt ilt um yður mín
vegna.
Matth. 5, — 5, 8. 9. 1 ii
Hlrðirinn Ieit á málið frá
»ýmsum hliðucn.< — Hann var
víðsýnni en sauðirnir.
VIII.
„Að gefnu tilefni“