Dagblað

Útgáva

Dagblað - 03.02.1925, Síða 1

Dagblað - 03.02.1925, Síða 1
Priðjudag 3. febrúar 1925. I. árgangur. 2. “ tölublað. HbagBtaé Ýmsir þeirra, er alið hafa aldur sinn að mestu eða öllu ieyti hér í höfuðborg íslands, eru nú komnir á efri ár, og aðrir eru enn á bekta skejði. Hvorirtveggja muna hér æfina aðra. Breytingarnar hafa verið aerið stórstígar undanfarið. Borg- in hefir vaxið ört, fært út kví- arnar og hefir haft fataskifti svo, að útlit hennar er nú alt annað en áður var. Bærinn litli er orðinn borg, með borg- arstjóra og nál. 20 þús. ibúum. Rúmur fimtungur allra lands- manna eiga hér heimili, og stunda flestir þeirra atvinnu hér alt árið. I stað opnu bátanna færa nú íjimknúð fiskiskip aflann að iandi. Umhverfis bæihn voru áður mógrafir, mýrar og óræktarmó- ar, nú vélræktuð svæði, grösug tún og mörg nýbýli. Torfbæir voru hér víða, og húsakynni fátækleg og léleg; nú eru hér rúmgóð og vönduð steinhús, og stórhýsi á einstaka stað. Götur voru hér fáar og for- ugar; nú eru víða stór stein- iögð stræti. Strætin hafa verið holgrafin mörgum sinnum, og þar komið fyrir leiðslum fyrir vatnsskólp, gas og rafmagn. Nú er stutt í vatnið, og oftast bjartara inni >og úti en áður fyr. Margvíslegar breytingar aðrar hafa átt sér stað, og aukin menning á marga lund, og er bygging hafnarinnar langnauð- synlegasta framfarasporið, sem stigið hefir verið hér í borginni. Tekjurnar hafa aukist, en út- gjöldin hafa einnig aukist að stórum mun, og álagabyrðin er mörgnm borgaranum ísjárvert áhyggjuefni. Sumum þykir sem sljórn borgarinnar hafi færst heldur mikið í fang og að safn- að hafi verið skuldum að óþörfu að undanförnu. Skal þetta nánar athugað hér í blaðinu bráðlega. ÐýrtíOin. Nýustu Hagtíðindi birta skýrslu um smásöluverð á ýms- um nauðsynjavörum hér í Rvík, eins og það var í janúarmánuði að meðaltali, eftir skýrslum kaupmanna. Sézt á yfirliti þessu, að þær vörur, sem yfirlilið grein- ir, eru 15 °/o hærri í verði held- ur en á sama tíma í fyrra, en 208 °/o hærri í verði heldur en fyrir 10 árum. Og þó hefir orð- ið 3 °/o lækkun síðan í október í haust. Við þennan útreikning er það að athuga, að tekið hefir verið meðaltal af verðhækkun var- anna án þess að gerður sé nokk- ur greinarmunur á þeim eítir því hvort þær eru notaðar mikið eða lítið. En svo hefir Hagstof- an gert áætlun um framfærslu- kostnað 5 manna fjölskyldu hér í bæ og samkvæmt henni þarf sá maður, er hafði 1800 króna tekjur árið 1913 að fá nú um 6000 krónur lil þess að standa ekki ver að vígi en þá, í bar- áttunni fyrir tilverunni. Matvöru- útgjöld hafa hækkað um 203 °/o, en útgjöld til Jjósmetis og eldsneytis um 174 °/o. Síðastlið- liðinn ársfjórðung hefir þó orðið 2/8 °/o lækkun á matvörum að meðaltali, og 6 °/o af ljósmeti. Er lækkun sú eÍDgöngu á korn- vörum, garðávöxtum, sykri og fiski, en aftur á móli hafa allar aðrar vörur hækkað í verði, sérstaklega brauð (10°/o). Útfluttar vörur árið sem leið. Samkvæmt skýrslum þeim, er gengisskráningarnefnd fær um útflutning íslenzkra afurða, jafn- skjótt og þær fara á skip, hefir verðmagn þeirra numið rúmum 80 miljónum króna árið sem leið, þar af eru 50 miljónir fyrir fisk og tæpar 6 miljónir fyrir síld. Til samanburðar má geta þess, að árið 1921 nam verð- magn útfluttra afurða 46 milj., eða nær helmingi minna en árið sem leið. Stafar þessi mikli munur aðallega af því, að sjáv- arafurðir hafa orðið meiri í ár en endranær; en þó munar það mestu, hve verðið, sem fengist hefir fyrir þær, hefir orðið miklu hærra en venjulega. Að öllu samtöldu mun fram- leiðsla á verkuðum fiski síðasta ár hafa orðið 40°/o meiri en árið þar á undan. ^inu er siður í landi liverju. Um líkt leyti og það var á- kveðið hér í bæjarstjórn að láta smiða landgöngustiga til þess að ljá þá skipum, sem liggja hér við hafnarbakkana, var skip- stjóri nokkur dæmdur í Hull til þess að greiða 25 Sterlingspunda sekt fyrir það, að skip hans átti. ekki sæmilega landgöngubrú. Ný flugvél. í Englandi hefir verið í smíð- um flugvél af alveg nýrri gerð og á hún að vera í förum milli Lundúna og meginlands Evrópu. Flugvél þessi er í fisklíki, væng- irnir í laginu eins og uggar, en stýrið eins og sporður. Henni er ætlað að flytja átta farþega í senn og fljúga 115 enskar milur á klukkustund.

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.