Dagblað

Tölublað

Dagblað - 26.02.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 26.02.1925, Blaðsíða 1
Fimtudag 26. febrúar 1925. I. árgangur. 22. tölublað. INN á þingið hafa nú drifið mörg frv. til breytinga á vega- lögum, og öll ganga þau í sömu átt, sem sé að koma sýslu- vegum í þjóðvegatölu. Koma þessi frv. úr öllum landsfjórð- ungum og fylgir þeim ávalt, annaðhvort í greinargerð eða framsögu, að »engin sýsla hafi orðið eins útundan«, þá er vega- lögin voru sett, eins og sú sýsla, sem á hlut að máli í hvert skitti. Kemur hér fram ómenguð hreppapólitík, þar sem hver þingmaður reynir að skara eld að köku síns kjördæmis. Og svo koma á eftir hin alkunnu hrossakaup, að þiffgmenn heita hver öðrum aðstoð sinni til þess að koma frv. þessum fram. Því að annars gæti það orðið erfitt, að fá þingið til að fallast þegj- andi á hreppapólitíkina. — Vegagerð ríkisins hefir nú verið slegið svo að segja alger- lega á frest, eins og öðrum framkvæmdum, vegna þess, að fé er eigi til þeirra. Er óvíst að vita, hve lengi slíkt þarf að ganga. Það mun jafnvel hafa orðið að skera viðhald við negl- ur sér. En hitt geta allir séð, að aftir því sem þjóðvegum fjölgar, því meiri verður viöhaldskostn- aður og erfiðara að sjá um að Vegir ónýtist eigi fyrir van- hirðu. Fyrir nokkrum árum barðist Hermann heit. Jónasson fyrir því, að lögleidd yrði hér þegn- skylduvinna. Ef það lietði verið gert, vaeri engin vandkvæði á þvi að viðhalda gömlum vegum i landinu og leggja nýja vegi. A móti því frv. var það fært, að það gerði alla fullvinnandi íslendinga að þrælum. Nú er þó aftur komið franl frv. frá Hkisstjórn sjálfri, er fer í sömu ktt, nema hvað nú eru allir þegn- skyldumenn »embættismenn«. Sé ^éttilega á iitið, þá er þó mis-' Uiunurinn enn meiri. Fegnskyldu- ^innan miðaði til alþjóðarþrifa ó öllum sviðum, og hefði sjálf- sagt orðið áð miklu gagni, enda þótt einhverjir hefði kurrað í fyrstu undan henni. Þing'tíðindi. f gær var skotið á fundi í Sameinuðu þingi, út af tillögu til þingsályktunar um strand- ferðir. Flutningsmenn eru Jónas, Forleifur, Ingvar, Hákon, Hall- dór Stef. og Árni Jónsson. Er ályktunin uin það, að skora á ríkisstjórn að hún í samráði við forstjóra Eimskipafélags íslands og samgöngumálanefndir Alþingis taki til athugunar hvort ekki sé hægt að fjölga hraðferðum Esju, að hafa hæfilegt skip til strand- ferða milli Hornafjarðar og Skála á Langanesi, að láta »Suðurland« fara einu sinni á mánuði strand- ferð um Breiðafjörð og að leigja 300 smál. skip til flutningsferða með ströndum fram síðustu 4 mánuði ársins. Samþykt var að hafa eina umræðu um þessa þál. í Ed> var aðeins eitt mál á dagskrá (um að géra eignarnám í landspildu á Grund í Ytri- Reistarárlandi). Fór það um- ræðulítið til 3. umræðu. 1 Nd. voru 6 mál á dagskrá. Frv. stjórnarinnar um að veita lán úr Bjargráðasjóði var samþ. og sént Ed. Ánnað mál, um lokunartfma sölubúða, var tekið út af dagskrá. Kom þá til 3. umr. frv. uin styrkveiting handa fslenzkum stúdentum við erlenda háskóla. Höfðu komið fram 2 breyt.till., önnur frá Magnúsi Tórfasyni og hin frá Magnúsi Jónssyni, en þær voru báðar drepnar. Bjarni Jónsson frá Vogi hélt enn sköru- lega ræðu i málinu og kvað það alls eigi samandi, áð takmarka með lögum tölu þessara stú- denta, því að þá er Sambands- lögin hefði verið samþykt, hefði þvi Verið lofað hátiðlega, að sá styrkur, er íslendingar höfðu áður við háskólann í Khöfn, skyldi ekki niður falla. Þetta loforð væri helgara en nokkur lög. En hann kvaðst skilja þá hagnýtu sálarfræði þingmanna, að vilja ekki standa við skuld- bindingar sínar, en þykjást þó halda þær með þessu frv. Eftir nokkurt þjark milli hans og forsætisráðherra var frumv. samþ. og afgreitt til Ed., að við- höfðu nafnakalli, 20 : 7. Kom þá enn til umræðu tó- bakssölumálið, og þótt það hefði verið rætt áður við 1. umr. á 2 löngum þingfundum, var mönnum enn mikil málsþörf, og gengu flestir af sér dauðum og gengu svo aftur hver utn annan þveran. Lá við hálfgerð- um skætingi með köflum og orð eins úg »getsakir« notað óspart. Var vant á milli að sjá hvernig fara mundi, því að þm. skiftust í 2 harðvituga tlokka, og beittu menn aílri mælsku sinni nú eins og áður um þetta mál. Að lokum var samþ. að vísa málinu tií 2. umr. (og fjárhags- nefndar) að viðhöfðu nafna- kalli og sögðu já: Ben. Sveins- son, Ág. Flyg., Bjarni frá Vogi, Björn Lín., Hákon, J. Möller, J. Á. Jónsson, Jón Kjárt., Jón Sig., Jón þorl., Magn. Guðm., Magn. Jónss., P. Ott., Sigurjón og Pór- arinn. Nei sögðu: Ásgeir, Bernhard, Halldór Stef., íngólfur, Jón Bald.. Jörundur, Klemenz, Magn. Torfa- son, Pétur !*.,« Sveinn, Tryggvi og Porleifur. Árni Jónsson var ekki á fundi. Pá var 6. málinu, um vára- lögreglu, frestað, en það verður fyrst á dagskrá í dag. Má þá vænta eigi minni sennu en um tóbakseinkasöluna varð.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.