Dagblað

Issue

Dagblað - 27.02.1925, Page 1

Dagblað - 27.02.1925, Page 1
Föstudag 27. febrúar 1925. I. árgangur. 23 tölublað. MEÐAL hinna mentuðu þjóða, þar sem viðskiftalíf er fjör- ugt, ber ákaflega mikið á auglýsingum. í blöðum og tíma- ritum taka þær oft eins mikið og meira rúm heldur en venju- legt lesmál. Á strætum og gatna- mótum mæta auglýsingar aug- anu hvarvetna. Meðfram þjóð- ^egum og yfirleitt alls staðar þar sem ætla má að menn sé á ferli, eru auglýsingar. Á eld- spýtnastokkum, bókaköntum, ■vindlum og vindlingum, og alls- staðar þar sem hægt er að koma því við, eru auglýsingar. í þær er eytt árlega’meira í heiminum en tölum verði talið. — Hver er nú ástæðan til þessa? Er það heimska manna sem ræðurþessu, eða hilt, að mönnum þyki gam- an að sjá nafn sitt og vörur sínar á prenti? Nei. Menn mundu ekki fleygja frá sér stórfé árlega fyrir slíkt. Hitt er réttara, aö nienn auglýsa vegna þess, að þeir græða á því. Auglýsingar anka eftirspurn margfaldlega, og jafnvel eyðslu kaupenda. En vandi er það, að auglýsa svo vel, að það beri tilætlaðan á- rangur; ber þar margs að gæta, tyrst og fremst mismunandi eftir- spurnar á ýmsum tímum að kunnri vöru, eftirspurnarleysi að nýjum vörum, hagsmuna selj- anda og kaupanda o. s. frv. Engin þjóð í heimi mun aug- tysa jafn mikið og Bandaríkja- n^enn. Sér það og á, því\ að verslun þeirra og viðskifti marg- íaldast með ári hverju. Og þar er það lika orðin sérstök list að anglýsa þannig, að fólk veiti því eftirtekt og svo er að vísu við- ar» þótt menn sé misjafnlega ^angt komnir í þeirri grein. Hér á landi eru menn eigi sv« langt á veg komnir enn, að þcir kunni að meta gildi aug- iýsinga til fulls, þótt mikil breýt- *ng hafi orðið á þessu nú á síð- Ostu árum, Og það má sjá það Sama hér og annars staðar, að Þeir sem auglýsa ekki, dragast aftur úr hinum sem aug* lýsa. — Pað var einu sinni enskur maður að safna auglýsingum. Kom hann til kaupmanns, sem sagðist ekki hafa nein efni á að auglýsa; nú þyrfti hann að spara alt. Þér getið líka sparað með því að hætta að borða, svaraði hinn. Þetta var gott svar. Kaup- maður eða iðnrekandi sem ætl- ar sér að spara, með því að auglýsa ekki, gæti eins sparað á því að hætta að borða. Hvort tveggja mundi koma honum á kaldan klaka. Ping’tíðindi. í Ed. var 1 mál á dagskrá (um breyt. á póstlögum). Var þvf vísað til 3. umr. í Nd. var samþykt frv. stj. um sektir og afgr. til Ed. Þá var tekið fyrir frv. um Varalögreglu og stóðu þær umræður í rúmar þriár stundir. Forsætisráðherra hóf máls. Kvað hann ekki tilgang stjórn- arinnar að gera mikið úr skyld- unni, heldur að koma á betra skipulagi en áður hefði verið. Mætti taka aðeins fáa menn til að inna af hendi þessa skyldu. Ráðuneytið hefði hugsað sér, að hér í Reykjavík yrði teknir 100 menn, eða færri, og æfðir eins og lögregluþjónar og kent það sem þeir þyrfti að vita til þess að geta staðið i stöðu sinni. Sú kensla og æfing mundi liklega taká svona 3 mánuði. Kostnað- ur mundi líklega i byrjun verða um 32—40 þús kr. Það væri að vísu nokkur hængur á þvf, að leggja skylduna á svo fáa, en kvaðst treýsta því, að hægt mundi að fá röskva menn i liðið. í Siglufirði mundi ef til vill líka þurfa slíka lögreglu. Tók þá Tryggvi til máls og talaði langt mál, og siðan Jón Baldvinsson. Þa fluttu þeir stutt- ar ræður Jón Kjartansson og Bernhard Stefánsson. Pá talaði forsætisráðherra öðru sinni langt mál, til andsvara þeim Jóni Bald. og Tiyggva. Yrði alt of langt mál að rekja þær um- ræður. Kendi þar margra grasa. Meðal annars var minst á Sturl- ungaöld og »að hart væri í heimi og hórdómur mikill«, »herliðið« mundi kosta 2 miljónir kr. ef ekki meira; þá var og minst á deilur atvinnurekenda og verkalýðs hér, rússneska drenginn og aðförina að ólafi, framkomu lögreglu, lögreglu- stjóra og lögreglustjórafulltrúa í þeim málum o. s. frv. Að lok- um var 1. umr. frestað kl. 48/i og hin málin tekin út af dagskrá. Ed. hafði skotið á hjá sér tveimur aukafundum og af- greitt með afbrigðum til Nd. frv. um nauðasamninga, vegna þess að málið var komið í ein- daga. Var það mál nú tekið fyrir í Nd. og afgreitt með af- brigðum á þrem fundum sem lög jrá Alþingi. Þessir 3 fundir stóðu yfir i 7 mínútur. í dag verður fyrst fundur í Sameinuðu þingi og rædd þál. um strand- ferðir. í Nd. eru 8 mál á dag- skrá, varalögregla seinust. Götuslys veröa æ tíðari í stór- borgum með hverju ári sem líður, þrátt fyrir allar varúðar- ráðstafanir, sem gerðar eru til þess- að koma í veg fyrir þau. Aðallega eru það bifreiðar og bifbjól, sem slysunum valda. Þannig berma opinberar skýrsl- ur frá London, að árið 1918 hafi orðið þar 14,242 slík slys, en árið sem leið 55,519. Eru þetta talandi tölur.

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.