Dagblað - 28.02.1925, Síða 1
Laugardag
211. februar
1925.
I. árgangur.
24.
tölublað.
AÐ er nú von margra, að á
þessu þingi verði létt af
hinum illræmdu og gagns-
lausu innflutningsböttum og að
kaupsýslumenn og aðrir, er þurfa
að fá sér vörur frá útlöndum,
þurfi ekki framar að baka sér
alt það ómak, umstang og skrif-
finsku sem af því leiðir að út-
vega innflutningsleyfi. Og mikið
má stjórnin verða því fegin líka,
ef þeim bagga verður létt af
benni, því að vitanlegt er, að
störf í Stjórnarráðinu hafa auk-
ist eigi litið við alla þá skrif-
finsku, sem af innflutningshöft-
unum hefir leitt.
t*á hafa og heyrst raddir um
það, að um leið og innflutnings-
höftin væri afnumin, væri rétt
aö hækka verðtoll á öllum ó-
þarfa varningi að miklum mun
og láta mönnum svo í sjálfsvald
selt, hvort þeir vilja flytja hann
til landsins. En þegar um þetta
er talað, þá verður maður að
gera sér ljóst hvað óþarfa varn-
ingur er. Og það mun sitt sýn-
ast hverjum. Margt af því, sem
talinn var alger óþarfi, eða þekt-
íst ekki fyrir nokkrum árum,
er nú orðin algeng vara um
land alt. Sumir telja þessa eða
hina vöruna óþarfa, en aðrir
eigi. Eða hvernig var það þegar
mest var rætt um kaffið hér á
Alþingi fyrir nokkrum árum?
Og hvernig var það þegar rætt
Var um tóbakið um daginn?
Það voru ekki allir á eitt sáttir
um nytsemi þessara vörutegunda
eða ógagnsemi þeirra.
Hér skaf nú ekki lengra farið
út i þessa sálma, en ef þessi
stefnan, að setja háa tolla á
óþarfa vöru, næði fram að ganga,
þá mætti gjarnan gera það að
álitamáli, hvort þær vörur, sem
Vér getum framleitt hér í land-
inu sjálfu, verða eigi að teljast
óþarfa varningur — að það sé
óþarfi fyrir oss að kaupa þær
frá útlöndum? Nú er það vitan-
iegt, að á siðari árum hefir risið
hér upp talsverður iðnaður i
ýmsum greinum, þótt í smáum
stíl sé, og margar af þessum
íslenzku iðnaðarvörum standa
samskonar erlendum vörum ^
fyllilega á sporði. En að al-
menningsdómi mundu þó marg-
ar þeirra verða taldar með
helztu nauðsynjavörum. Væri
það þó nokkur goðgá að hreyfa
því, að á innflutning slíkra
vörutegunda yrði lagður hár
verðtollur? Með því móti mundi
flytjast minna af þeim hingað,
og verðlollurinn gæti orðið
verndartollur fyrir hinar íslenzku
vörur.
Sumir munu nú ef til vill
segja, að þá sé hætt við því,
að íslenzku iðnaðarvörurnar
hækkuðu í verði. En slikt má
varast. lðnaðarfytirtækin hér
verða að kaupa hráefni frá út-
löndum og um vetð á þeim vita
yfirvöldin. Sézt því fljótt ef gerð
er tilraun til þess að hækka
vöruverð í skjóli verðtollsins og
væri það klaufaskapur ef ekki
væri hægt að finna ráð til þess
að reisa skorður við því.
Erindi
seu tl Alþingi.
Verkamannafél. Fram I Seyð-
isfirði sendir símskeyti og mót-
mælir harðlega rikislögreglu-
frumvarpi stjórnarinnar og öllu
sama eðlis.
Símskeyti hefir borist frá Sandi
undirritað sjómenn og verka-
menn, með áskorun til þingsins
um að fella öll frumvörp er
sneita vopnaða lögreglu.
Stjórnarnefnd Minningarsjóðs
Eggerts Ólafssonar sækir um
styrk til þess, að gefa út minn-
ingarrit á tveggja alda afmæli
Eggerts, og að Alþingi styrki
sjóðinn t. a. m. með árstillagi
eða afmælisgjöf 1. des. 1926.
Einar G. Einarsson í Gaið-
húsum, sendir skýrslu um
skemdir þær, sem urðu á vam-
argörðum í Grindavík o. fl. í
sjávarflóðinu 21. jan. þ. á. og
fer fram á 35 þús. kr. fjárveit-
ingu á þessu þingi og svipaða
upphæð í næstu 2 ár til þess að
bæta úr skemdunum.
í flóði þessu eyddist að mestu
lending og bátauppsátur í Járn-
gerðarstaðahverfl, um 20 saltskúrar
og geymsluhús skoluöust burtu, um
70—100 metra breiða spildu af tún-
um og matjurtagörðum eyðilagði
brimið á um 500 metra löngu svæði,
stórskemdi aðra landspildu álíka
stóra, og tjón af bátaskemdum, salt-
missi, sauðatjóni og matvælamissi
er talið eigi minna en 20 þús. kr.
Benedikt Jónason verkfræð-
ingur hefir að tilhlutun Stjórn-
arráðsins, athugað skemdirnar
þarna syðra og komist að þeirri
niðurstöðu, að viðgerðarkostnað-
ur verði alls 105 þús. kr. Segir
hann að gera verði einhverjar
öflugar ráðstafanir, svo framar-
lega sem bygðarlag þetla eigi
ekki að leggjast í auðn. Segir
Einar Einarsson og, að ýmsir
hafi gert ráð fyrir því að ganga
af eignum sínum og flytjast í
burtu svo fljótt sem unt sé.
Ping’tíðindi.
Langur fundur var í Samein-
uðu þingi í gær um þál. um
strandferöir. Hafði Jónas Jóns-
son orð’ fyiir þeim flm. þál. og
vildi sýna fram á að talsverður
sparnaður mundi verða að
breytingum þeim á ferðum Esju,
sem gert er ráð fyrir, en alt af
mundi þó þetta fyrirkomulag
hafa aukin útgjöld í för með
sér. Þau mundu þó hverfandi
hjá hinum óbeina hagnaði sem
af þessu yrði fyrir hin ýmsu
héruð.