Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 06.03.1925, Side 1

Dagblað - 06.03.1925, Side 1
Ifyrradag vitjuðu bátar úr Vestmanneyjum fyrst um net sín og sá er hafði hæstan afla ^om með 100 fiska úr »trossu«. Linubátar þaðan veiddu sama og ekkert siðustu dagana. Botn- vörpungar, er að veiðum hafa verið þar syðra, telja afla mjög tregan og hvikulan. Hafa fengið mest »þrískift«, stundum »tví- skift« og stundum ekki n§itt. Aftur heyrist að góður afli sé Austanlands og má vera að fiskganga sé farin hér framhjá að þessu sinni og komin lengra austur með landinu. — Fiskveiðar botnvörpuskjpa hafa byrjað óvenju snemma síðustu þrju árin. Áður var sú trú, að fiskvart yrði ekki á Sel- vogsbanka fyr en seinast í marz- mánuði. Fóru botnvörpuskipin því ekki þangað til veiða fyr en seint í þeim mánuði. Nú fóru þau þangað í febrú- ar, og þau fyrstu öfluðu vel. Svo smádró úr aflanum. Má- ske þetta sé bending um það, að fiskgöngur komi fyr en menn grunar á þessi veiðisvið? Getur ekki skeð, að fiskganga sé far- in fram hjá Vestmannaeyjum (austur um?) áður en menn telja vertíð komna, og að hin nafnfrægu Vesturlandsmið, sem nú eru að vísu ný, sé engu betri en mið hér sunnanlands? F*að er ofarlega í sumum mönnum nú, að reyna veiðiskap við Grænlandsstrendur. Væri ekki nær, að við reyndum að komast að raun um það, hvernig fiskgöngur og fiskakyn hagar sér hér við land, áður en við förum að seilast svo langt, því að það yrði nokkuð líkt og að vaða yfir læk til þess að sækja vatn? Þetta mál er svo mikils varð- andi fyrir útgerð þessa lands, að það er meir en tími til þess kominn, að það sé athugað grandgæflega. Ping-tíðindi. Sjávarútvegsnefnd Nd. hefir orðið samþykk frv. til laga um fislcveiðar í landhelgi, að því undanteknu, að Jón Baldvins- son er andvigur frv. Nefndin, eða meiri hluti hennar, leggur til að frv. verði samþykt með mjög lítilli breytingu. Greinargerðin er svo: »Með skírskotun til athugasemdanna við frumvarpið getur nefndin fallist á það, að viðauki sá, sem hér er farið fram á við fiski- veiðalöggjöf vora, sé nauðsyn- legur. Með þessum viðauka er alveg skorið úr þrætunni um það, hvort framvegis sé hægt að taka erlend skip á leigu til fiskveiða hér við land af ísl. ríkisborgurum, í skjóli laga um fiskveiðar í landhelgi frá 19. júní 1922. En fyrir þetta er girt með frumvarpinu. Að því er skip þau snertir, sem þegar hafa fengið hér leyfi til fiskveiða, en heimilisfang eiga í útlöndum, þá felst nefnd- in og fyllilega á það, að þeim beri að veita undanþágu frá þessari viðaukalagasetning, eins og frv. fer fram á, en álítur eftir I atvikum rétt, þegar sú undan- þága verður veitt, að hún verði bundin við ákveðið tímabil, en verði ekki gefin um aldur og ?efi«. Skiftimyntin. Allsherjarnefnd Ed. leggur til 'svolátandi breyt- ingartillögu viö frv. þetta: »Breyta má ákvæðum 2. og 3. gr. með konungsúrskurði, ef hin önnur Norðurlandaríki krefj- ast þess, eftir myntsamningnum, til þess að hin nýja mynt verði ekki of lík þeirra eigin skifti- mynt«. Loknnnrtími sölubúða. Frá allsherjarnefnd Nd. er komið fram álit um frv. þetta og legg- ur meiri hluti nefndarinnar til að frv. verði samþ. óbreytt. Minni hlutinn, Jón Kjartansson og Magnús Torfason áskilja sér óbundið atkv. um málið. Sáttasemjarl í vinnndeilnm. í*eir Tryggvi Þórhallsson og Ás- geir Ásgeirsson bera fram frv. í Nd. er fer í svipaða átt og gerðardómsfrv. Bjarna Jónsson- ar frá Vogi, að því breyttu, að þeir vilja að 11 manna nefnd, skipuð 5 mönnum úr félagi at- vinnuveitenda, 5 úr flokki verka- manna og einum manni tilnefnd- um af Búnaðaifélagi íslands og Fiskifélagi íslands, tilnefni dóm- ara í þessum málum og atvinnu- málaráðherra skipi hann siðan. Á sú skipan að gilda um 3 ár. Flutningsmenn segja í greinar- gerð: »Frv. þetta er í öllum aðalatriðum sniðin eftir löggjöf Dana í þessu efni. Hefir þetta skipulaga reynst stórlega vel í nágrannalöndunum«. Bann gegu botnvörpuveiðnm. Meiri hluti sjávarútvegsnefndar í Nd. leggur það til að frv. um þetta efni verði felt, en minni hlutinn (Ásgeir Ásgeirsson og Jón Baldvinsson) er frv. ein- I dregið fylgjandi. Frá bæjarstjórnaríundi. Bæjarstjórnarfundur var hald- inn í gærkvöldi og voru 13 mál á dagskrá. Byggingarleyfl nokkur voru samþykt umræðulaust, eftir til- lögum byggingarnefndar. þar á meðal var P. Petersen bíóstjóra leyft að byggja þrílyft kvik- myndahús úr sleinsteypu, neðan við Ingólfsstræti, á lóð sem hann hefir keypt af Jóni Zoéga kaup- manni. Stærð hússins er ákveðin 591,26 fermetrar.

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.