Dagblað - 06.03.1925, Qupperneq 2
2
|D A G B L A Ð
Álit skipulagsnefndar um
breytingu á Grjótaþorpinu og
skipulag gatna frá Ingólfsstræti
að Pósthússtræti, norðan Hverf-
isgötu og Hafnarstræti, var sam-
þykt eftir litlar umræður.
Voru skoðanir bæjarfulltrú-
anna helzt skiftar um það, hvort
ætti að meta meira að ákveða
skipuiag á gömlum bæjarhlut-
um eða þeim nýju, sem nú væru
að byggjast í útjöðrum bæjarins.
Forkaupsrétti var hafnað á
nokkrum erfðafestulöndum, þar
á meðal á Biönduhlið, sem
Björn Magnússon tjáist ætla að
selja fyrir 52,700 kr., og Brúar-
enda, sem Sigfús og Kristjana
Blöndahl ætia að seija fyrir 15
þúsund kr. Hvorutveggja löndin
ásamt öllum húsum og mann-
virkjum.
í umræðum út af uinsóknnm
um að breyta erfðafestulöndum
í byggingarlóðir, komu fram
raddir um það, að neita — und-
antekningarlaust — um slík leyfi,
nema e. t. ý. erfðafestulands-
höfum um nauðsynleg hús til
efgin afnota. Einnig var talið
æskilegt, að fasteignanefnd rann-
sakaði á hve mörgum leigu-
lóðum væri ekki bygt ennþá,
en sem leyft hefði verið að
byggja á, og að þær lóðir hyrfu
aftur til bæjarins. Og eins ætti
að vera um erfðafestulöndin,
þau sem ekki eru ræktuð innan
ákveðins tíma.
Rafveitan. Samþykt var að
bæjarsjóður gefi út skuldabréf
fyrir 1 miljón og 200 þúsund
kr., sem varið sé til greiðslu á
1 miljón og 100 þús. kr., sem
eru lausaskuldir rafveitunnar við
íslenzkra og danskra banka. Árs-
vextir séu 6 °/o, en söluverð
94 °/o af nafnverði.
Lánið sé tekið til 20 ára, sé
afborgunarlaust fyrstu 5 árin,
en greiðist síðan með jöfnum
afborgunum á 15 árum.
Eru nú þegar fengin loforð
fyrir sölu á 650 þúsund krónum
af bréfunum.
Gasstiiðln. Á henni hafði orð-
ið um 30 þús. króna reksturs-
hagnaður þetta ár og var hon-
um að mestu leyti varið til
endurgreiðslu á halla frá fyrri
árum. Eignir gasstöðvarinnar
umfram skuldir eru nú taldar
vera kr. 8427,59.
Esphollnbræðar á Akureyri
hafa sótt um að fá lóð við
höfnina fyrir væntaniegt frystihús
og höfðu flestar nefndir innan
bæjarstjórnarinnar haft einhver
atriði þessarar umsólcnar til .
athugunar.
G. Claessen taldi að nefndirn-
ar hefðu verið óvenjulega vika-
Iéttar og fljótvirkar við athugun
þessara umsókna og taldi mjög |
æskilegt að það væri fyrirboði
jafnfljótrar afgreiðslu framvegis,
á þeim málum sem þær fjallá um.
Borgin.
Sjáyarföll. Árdegisháflæöur: kl.
1,40. Síödegisháflæöur kl. 2,10. ■
Nætnrvörðnr í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfnr. í morgun var hlýviðri
um land alt og viðast vestlæg átt,
hvassviðri i Vestmannaeyjum. Hér
í Reykjavík hefir verið fjúk öðru
hvoru síðan i gærkvöldi. Veðurspá:
Fyrst vestlæg átt, hæg á Norður-
landi, snýst siðan sennilega í suöur
um stund. Úrkoma og óstöðugt veð-
ur á Suðvesturlandi.
Yarnlögreglan. Enn var lengi um
það mál rætt í gær. Jakob Möller
bar fram rökstudda dagskrá um
það, að vísa málinu frá, en hún
var feld með 16 : 12 atkv. Siðan
var frv. vísað til 2. umr. með 15 :
13 atkv.
Jarðarför ekkjunnar Guðrúnar
Porláksdóttir frá Gröf fór fram í
gær og hófst með húskveðju að
Leynimýri kl. 12s/<. og i kirkjunni
kl. 2. Var þar margmenni ættingja
og vina saman komið. Báru sona
og dætrasynir hennar kistuna út úr
kirkjunni.
»
Bæjarstjórastaðan á Akureyri er
auglýst laus frá 1. júli. Umsóknar-
írestur til 1. maí n. k.
Knnttspyrnufélag E.víknr heldur
afmælisfagnað á morgun í Iðno.
Botnvörpnngrarnir. Menja og Kári
Sölmundarson eru nýkomnir. Menja
með 70 tn lifrar. eða þar um, og
Kári með 80.
Jarðarför frú Guðrúnar Sveins-
dóttur frá Meistaravelli fer fram á
morgun og hefst kl. 1 e. h.
,ftS HíagSlaS.
, ( Arni Óla.
Ritstjórn: ( G. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðslal Lækjartorg 2.
skrifstofa j 8ími 744.
Ritstjór'n til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiöjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
<§ösfa cffierlincjs
Sýning í kvöld
kl. 81/*.
Skipaferðir. ísland er væntanlegt
hingað á morgun. Lagarfoss á að
koma hingað i dag. Kom hann frá
Vestfjörðum til Hafnarfjarðar i gær.
Gullfoss fór í fyrrakvöld frá Borg-
arfirði beint til Kaupmannahafnar. •
Leitarskipin Arinbjörn hersir,
Skúli fógeti, Ceresio og Fylla komu
hingað í gærkvöldi. James Long
var kominn áður. — Ensku herskip-
in taka nú við að leita og ætla að
lialda leitinni áfram i hálfan mánuð.
Trúlofun sína hafa opinberað þau
ungfrú Ásta Ólafsdóttir (Ólafssonar
prófasls frá Hjarðarholti) og Ólafur
Bjarnason bóndi í Brautarholti á
Kjalarnesi.
Dm Gösta Berlings söp.
Kvikmynd sú, er Nýja Bio
sýnir nú, er hin allra merkileg-
asta, og af öllum þeim kvik-
myndum, sem hér hafa sýndar
verið, einhver hiu allra fegursta
að frágangi og leik. Um þessa
myDd segir sænski rithöfundur-
inn Birger Mörner á þessa leið
í tímaritinu »Idun«: — Engan
sænskan leikanda virði ég eins
mikið og Gerda Lundequist.
Hún hefir aldrei reynt að koma
sér í mjúkinn hjá áheyrendum„