Dagblað

Issue

Dagblað - 11.03.1925, Page 1

Dagblað - 11.03.1925, Page 1
Midvikudag 11. marz 1925. I. árgangur. 33 tölublað. AÐ er nú æði langt síðan að hrejndýr voru ílutt hingað til lands frá Nor- egi, eða á áruoniji 1771—87. Voru þau aðallega send hingað sera gjöf frá kaupmanni í Ham- merf^st og Lapplending nokkr- um. Dýrunum var þá slept lausum og hafa þau síðan verið vilt á heiðum uppi. í hörðum vetrum hafa þau hrunið niður og um eitt skeið var lagt mikið kapp á að veiða þau. Hafa dýrin því gengið mjög til þurð- ar og má segjqi að þau sé að litlu gagni nú sem stendur, og hafi orðið íslendingum yfirleitt að litlu gagni. Stafar þetta af því, að dýrunum var slept laus- um svo að þau urðu vilt. En enginn minsti vafi er á því, að hér á landi mætti bafa stórar nytjar taminna hreindýra, eigi síður en í Lapplandi, og annars staðar, þar sem hreindýrarækt er stunduð. Hreindýrin eru mjög létt á fóðrum og dugleg að bjarga sér á útigangi. Þau eru mjólkurkýr Lappa, og koma þeim í stað hesta þegar þeir þurfa að ferðast. Slíkt gæti víða komið sér vel hér á íslandi, því að þar sem snjóþungt er, verða hestar altaf dýrir á fóðrunum hjá bændum. Mætti færa fram margar ástæður fyrir því, að Islendingum mundi stór bú- hnykkur að því að hafa tamin hreindýr. Kjöt af þeim er ágætt til átu, eigi síður en sauðakjöt. Hefir Vilhjálmur Stefánsson bent á þetta og gert tillögu um það, að hreindýrategund þeirri, sem hefst við nyrzt í Ameríku, verði gefinn meiri gaumur en verið hefir til þessa, og hefir hann þá að eins fyrir augum kjötmark- aðinn. Telur hann hreindýrakjöt fyrirtaks gott. — Hreindýr eru harðger og ekki jafnmikil áhætta á vanhöldum á þeim eins og á Sauðfé. Það hefir víst aidrei verið safnað neinum skýrslum um vanhöld sauðQár hér á Iandi, i61* hitt er újlum vifanlegt, að bændastéttin íslenzka líður stór- tjón á ári hverju einmitt vegna vanhalda á sauðfé. Það væri mjög æskilegt, að framtakssamir bændur gerði til- raunir með hreindýrarækt hér. Þyrfti þá að fá tamin dýr frá Lapplandi. Mætti byrja i smáum stíl, en færa sig heldur upp á skaftið þegar fram í sækir. Verð á hreindýrum mun ekki mjög hátt, svo að kostnaður við það að fá þau hingað mundi vel kleifur. Að vísu yrði flutnings- kostnaður töluverður, því að hreindýrin þyrfti að flytja á skipi frá einhverri nojðurliöfn Noregs suður til Bergen, og svo þaðan á Bergensskipunum hing- að. En ólíklegt er, að það yrði kostnaðarsamara að flytja hingað lifandi hreindýr, heldur en að senda lifandi sauðfé héðan á markað á meginlandi álfunnar, eins og gert hefir verið. Hestarækt hefir verið einhver helzta tekjugrein bænda í ýms- um héruðum íslands. En eftir þvL sem lengur líður verður hún ótryggari, vegna þess að mark- aður erlendis verður æ þrengri. Um skeið fór mest af hestum héðan til Englands. Nú er eftir- spurn orðin lítil þar vegna þess I að nú er farið að nota rafmagn nær eingöngu f kolanámunum þar í landi. Til Danmerkur hefir verið selt töluvert af hestum hin síðari ár, en engin trygging er fyrir því að sá markaður hald- ist. Bændur mega því búast við, að verða að breyta um og gera minna að hrossarækt en áður hefir verið. Hvað á þá að koma í staðinn? Mundi eigi verða heppilegast að það verði hrein- dýr? Aukin nautgriparækt getur tæplega komið til greina. Frem- ur yrði að auka sauðfjárrækt. En búskaparlagið er nú þannig víða hvar, að bændur geta ekki aukið sauðfjárstofn sinn að neinu marki og veldur þar mestu ura lílill heyskapur. Hreindýfin geta gengiö úti eigi síður en hestar og yrði því létt á fóðr- unum eins og þejr. Ef til vill ætti hið opinbera að hafa framkvæmdir i þessu pnáli, eða létta undir með bænd- um þeim, sem kynpu að vilja koma upp hreindýraræ^t hjá sér. Og ekki ætti það að vera lapgt utan við verkahring Bún- aðarfélags íslands að athuga þetta mál vandlega og afla upp- lýsinga um hreindýrarækt ann- ars staðar. Námuslys í Ruhr. 136 mcnn faraat. Laust fyrir miðjan febrúar- mánuð varð sprenging í kola- námu skamt frá Dortmund. Varð sprengingin djúpt niðri í námunni, eða 900 fetum frá yfirborði, og svo var hún ægi- leg, að sumir verkamennirnir fleygðust 30—60 fet og létust á augabragði. Sumir, sem voru lengra á burtu, höfðu getað skreiðst út í óhrunda námu- ganga og lifað þar nokkra stund. En af 145 mönnum, sem í nám- unni unnu, komust að eins 9 af. Nokkrir náðust með lífs- marki upp úr námunni, en lét- ust svo skömmu síðar af völd- um eiturgass þess, er þeir höfðu andað að sér. Bjargarlið kom þegar á vettvang, en gat lítið gert vegna eiturgassins, sem fylti námuna. Tveir menn, sem í bjargarliðinu voru, létust af völdum gassins. Það mátti sjá, að nokkrir námumenn höfðu þó haldið lífi nokkru eftir að sprengingin varð. Á einum stað lágu t. d. tveir menn saman og hafði áun- ar skrifað með krU neðan á skósóla hins: »K1. 11; er enn á

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.